Jólagestir
Ásdís Erla Ólafsdóttir
Ásdís Erla Ólafsdóttir
Ásdís Erla Ólafsdóttir

06.12.2008 Jólagestir

- og mamma var búin að setja upp hvítu blúndusvuntuna -

Jólagestur okkar 6. desember er Ásdís Erla Ólafsdóttir

Í minningunni eru jólin mér mjög kær það var svo gaman að vera barn og upplifa jólin, en í dag er ég í sjálfu sér ekkert sérlega mikil jólamanneskja, ég þarf ekki endilega að fara eftir einhverjum hefðum, heldur bara svona geng í gegnum þessa hátíð á frekar óhefðbundinn hátt en það er samt nokkur atriði sem eru ómissandi. Við í fjölskyldunni höfum einu sinni verið á Kanaríeyjum um jól og áramót og einu sinni um áramót og það fannst mér alveg frábært. En þó fannst mér mikilvægt að koma á Hornafjörð um jólin þegar ég bjó í Rvk. Því það voru ekki almennileg jól nema að vera á Hornafirði og þá í Hlíðartúninu hjá mömmu og pabba.

Þegar ég var barn þá man ég helst eftir öllum hefðunum sem tilheyra jólunum. Mamma að baka allar góðu kökurnar og við systur að fylgjast með, og það var alltaf mjög hátíðleg athöfn þegar við systurnar fengum svo að mála á piparkökurnar og auðvitað að smakka öll herlegheitin. Þorláksmessa var alltaf svolítið spennandi og þá var náttúrlega borðuð skata eins og sönnum íslendingum sæmir og byrjað að skreyta húsið hátt og lágt, síðan um kvöldið var jólatréð skreytt og það fannst mér óskaplega skemmtileg stund. Aðfangadagur einkenndist af spennu og tilhlökkun, ég hafði ekki mikla eirð í mér að sitja við sjónvarpið, heldur biðum við systur spenntar eftir því að fara með pabba á gjafa og jólakorta rúntinn. Þá fórum við og deildum út gjöfum til ættingja og kíktum aðeins í kaffi í leiðinni. Eftir það var farið heim í jólabaðið og mamma var búin að setja upp hvítu blúndusvuntuna þá var þetta allt að koma . Þegar líða tók á aðfangadag fór rjúpuilmurinn fljótlega að fylla húsið það finnst mér í dag vera algjört skilyrði fyrir sönnum jólum. Alltaf var og er kveikt á útvarpinu til að heyra kirkjuklukkurnar hringja jólin inn kl 18.00 , það er mjög hátíðleg stund eins og jólin eru og eiga að vera. Rjúpa og tilheyrandi meðlæti var alltaf á aðfangadagskvöld og oft ís á eftir eða Frómas a la mamma . Eftir mat fengum við systur oft að opna einn pakka , svona aðeins til að róa okkur á með þau gömlu vöskuðu upp. Eftir allt pakkaflóðið komu amma, afi og Einar Björn frændi í kaffi og þá man ég sérstaklega eftir sherrýtertunni hennar mömmu sem mér fannst alveg ómissandi í öllum jólaboðum ( og er reyndar enn á því) og skonsubrauðtertan. Á jóladag var síðan borðað hangikjöt og farið í jólaboð.
Mér finnst jólin vera hátíð ljóss og friðar og að fjölskyldan eigi að vera sem mest saman.

Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og farsælt komandi ár.

- Ásdís Erla



Verð að láta fylgja uppskriftina af Sherrytertu ömmu og mömmu:

2 egg
100gr sykur
150gr hveiti
200gr döðlur
2 tsk lyftiduft
50 gr hnetur eða möndlur (sleppi oftast)
Egg og sykur hrært vel saman. Síðan er hveiti og lyftidufti hært saman við og síðast smátt brytjuðum döðlum. kakan er bökuð við tæpl. 200°c, þegar hún er bökuð er henni hvolft á plötu eða bara tertudisk og svo er ca ½ bolli af sherrýi helt yfir ,eða bara eins mikið og hver vill, en ekki tapa sér alveg.  Ca 1 plata af síríus suðusúkkulaði brytjað yfir kökuna og þá er gott að setja hana aðeins inn í heitann ofninn og smyrja því yfir ( eða bræða yfir vatnsbaði). Borið fram með rjóma.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica