Jólagestir
Cristiane dos sontos Oliveira
Cristiane dos sontos Oliveira
Cristiane dos sontos Oliveira

05.12.2008 Jólagestir

Jólin mín

Jólagestur okkar 5.desember er Cristiane Oliveira

Það er mér ánægja að fá að segja ykkur aðeins frá því hvernig við höldum jólin í Brasilíu.
Við erum ekki eins skreytingaglöð í Brasilíu eins og við hér á Íslandi. Við byrjum að skreyta mun fyrr og um miðjan nóvember er allt klárt fyrir jólin. Heima við notum við aðallega styttur og þess háttar af Jesúbarninu í jötunni, þetta er jú afmælið hans. Við skreytum einnig með nátturulegum skrauti eins og blómum og svo skreytum við tréin úti með smá ljósum. Á götum og torgum er meira skreytt með ljósum og jólatrjám.

Við eigum líka jólasveininn í Brasilíu sem kemur með gjafirnar til barnanna og við erum vön að tala um að hann komi frá Grænlandi, en nú veit ég að sjálfsögðu betur og er gaman að geta sagt frá því að hann komi héðan úr Ketillaugafjallinu. En þegar sveinki kemur til byggða hjá okkur þarf hann að hafa fataskipti og vera í léttari fötum en hér því í desember er jú að koma sumar hjá okkur í Brasilíu.

Heima bökum við mikið af smákökum og jólabrauði fyrir jólin. Á aðfangadag er venja hjá fjölskyldunni okkar að borða saman kl. 19.00 og þá má alls ekki vanta kalkúninn. Við skiptumst á gjöfum innan fjölskyldunnar, en magnið af gjöfunum er ekkert í líkindum við það sem ég hef séð hér. Seinna um kvöldið förum við síðan öll saman í miðnæturmessu og á Jóladag förum við í messu kl. 18.00. Á Jóladag skjótum við einnig upp flugeldum.
Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að jólin væru eins við höldum jólin hér á Íslandi, öll húsin svona skreytt og það er eins og fólk lyftist allt upp um jólin.
Vissulega er jólahátíðin mjög skemmtilegur tími og við meigum ekki gleyma því að við erum að halda upp á þá stærstu gjöf sem Guð gaf okkur öllum, fæðingu frelsara okkar Jesú Krists.
Ykkur öllum óska ég friðsælla og gleðilegra jólahátíðar og farsælt komandi ár...

Cristiane Oliveira.

Hér kemur svo ein samba-smáköku uppskrift:

6 dl Maisena
2 dl Hveiti
6 matsk smjörlíki
2 dl sykur
1 egg
1 matsk lyftiduft
200 gr kókosmjöl
1 tesk vanilludropar
Smá salt

Hrærið öllu saman og hnoðið í höndunum.
Gerið smá kúlur og hitið í ofni á 150° í 30 mín.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica