Jólagestir
Anna Kristín Hauksdóttir
Anna Kristín Hauksdóttir
Anna Kristín Hauksdóttir ásamt dóttur

02.12.2008 Jólagestir

JÓL, JÓL og fullt af þeim.

Jólagestur okkar 2. desember er Anna Kristín Hauksdóttir

Ja hérna nú eru þau að koma aftur blessuð jólin og mikið er ég fegin, búin að bíða síðan síðustu jól kvöddu okkur.
Hver einustu jól skipta mig miklu máli, ég byrja að skreyta um miðjan nóvember til að geta notið jólaljósanna og skreytinganna lengur.  Í minni æsku voru jólin alltaf skemmtilegasti tíminn á árinu ekki einu sinni afmælið mitt komst fram yfir jólin. Ég ólst upp í Grindavík. Aðfangadagur byrjaði á því að við systkinin (sem erum fjögur) byrjuðum á því að kíkja í skóinn okkar og svo eftir þann glaðning frá Sveinka var rokið í síðasta súkkulaðimolann í jóladagatalinu og drukkin ísköld mjólk með.

Svo leið dagurinn og spenningurinn fór að taka völdin eftir nokkrar ferðir inn í búr sem mamma og pabbi voru búin að fylla svo vel af eld- rauðum eplum, appelsínum, mandarínum og konfekti. Og ég man sérstaklega eftir lyktinni þar inni ,,,,,,,,,,,mmmmm hún var yndisleg, ekta jólalykt. Um kl fjögur fóru allir í jólabaðið, fyrst mamma því hún þurfti að vera yfir matnum svo restin koll af kolli. Afi okkar( pabbi mömmu) kom alltaf til okkar á meðan hann hafði heilsu til en hann þurfti ekki að nota baðið hjúkk sem betur fer því hann tók svo sannarlega sinn tíma þar inni. Hann kom alltaf bara tilbúin með Old Spice rakspírann á sér og mikið af honum. Hehehe.

Kl 18-00 hækkaði mamma í útvarpinu ( og var sko ekkert að spara volume takkann) og við hlustuðum á jólaklukkurnar hringja jólin inn, meðan á því stóð fékk ég alltaf gæsahúð, fannst þetta svo tignarlegt og svo hátíðarlegt. Eftir að vera búin að taka á móti jólunum fórum við systur að raða pökkunum undir jólatréð sumir soldið skrítnir á að líta eftir mikið þukl, klíp og krafs síðustu dagana fyrir jól, mamma faldi þá alltaf inni í fataskáp inni í hjónaherbergi og við krakkarnir vorum nú alveg búin að fatta það. Oft var verið að laumast með límband þar inn til að reyna að fela ummerkin.

En já þegar pakkarnir voru komnir undir tréð og pabbi komin heim eftir 18-00 messu (hann var í kirkjukórnum þar í bæ ásamt mömmu en mamma fór ekki til messu kl 18-00 vegna þess að hún varð að sjá um matinn). Settust allir til borðs og gæddu sér á svínahamborgahrygg og fullt af góðu meðlæti. Það var stundum ís í eftirrétt en ekki oft. Ég var yfirleitt fljótust að klára matinn minn og gat svo varla beðið nei ég gat bara ekki beðið eftir að hinir kláruðu sinn mat. Pabbi talaði oft um að það hefði mátt þakka fyrir að þau hin hefðu mátt klára matinn sinn áður en ég var búin að taka diskinn þeirra. Eftir matinn var alltaf hefð fyrir því að ég og systir mín (Solla hans Palla pósts) vöskuðum upp og gengum frá eftir matinn. Svo var byrjað á pökkunum og pabbi las alltaf á þá og ég bara get ekki lýst titringnum og spennunni sem fór um mig þá og ótrúlegt en satt þá gerist það enn í dag , ég dett bara niður í 10 ára smá stelpu í kringum miðjan des. Þetta er æðislegt. En já þegar pakkarnir voru allir búnir þá kl 24-00 fóru allir í fjölskyldunni saman í messu sem var alveg yndisleg slökun eftir allan hamaganginn. Pabbi heitinn dó svo 1998 og eftir það höldum við systir mín alltaf þeirri hefð að skreyta jólatréð okkar 19. des og kveikjum á því 20. des því þá átti pabbi afmæli.

Hér er svo ein uppskrift af smákökum sem kom mér og okkur öllum á heimilinu alltaf í jólagírinn og aumingja mamma heitin hún fékk aldrei frið með þær, það endaði með því að hún þurfti að fela kökurnar

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár til ykkar allra

- Anna Kristín



 



Hálfmánar:
500gr hveiti
200gr smjörlíki
200gr sykur
1/2 tsk kanill
1/2 tsk kardemömmudropar
1/2 tsk hjartasalt
1 tsk lyftiduft
1-2 egg
1/2dl mjólk.

Þessu er hnoðað saman og flatt svo út,skornir út hringir með glasi.Sett smá sultutau og þeir svo brottnir saman og festir saman á endunum með gaffli.

Bakað í ofni 200 gráður þanga til er komin faleg gull húð eða brúnn litur á þá.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica