Jólagestir
Afmali-2007-029-(2)
Afmali-2007-029-(2)
Sofandi í afmæli Jesú!

24.12.2007 Jólagestir

Síðustu áratugina hafa jólin yfirleitt farið í það að koma börnunum í háttinn.

Jólagestur okkar 24. desember er Baldur Kristjánsson

Komiði öll sæl og blessuð lesendur mínir (og líka þeir sem bara lesa fyrirsögnina)
Ég man ekkert markvert frá fyrri jólum. Ég ólst upp i ósköp hefðbundnu fjölskylduumhverfi í hlíðunum Reykjavík -við bjuggum í venjulegri íbúð í blokk. Ég er sem sagt ekki nógu gamall til þess að muna jól í torfbæ. Jólatré voru komin til sögunnar þegar ég var ungur. Tilefni jólanna var það sama og nú og umgjörðin mjög lík. Þegar ég var átta ára fékk ég bíl í jólagjöf, svona litla drossíu sem ekkert var hægt að gera við nema að skríða með eftir gólfinu og burra. Mér fannst þetta léleg gjöf og lét það í ljós við foreldra mína. Ég þótti vanþakklátur. Þau jól liðu í hálfgerðu fílukasti.

Ég man heldur ekkert langt aftur. Man þó eftir því að sitja í einhverju korsíletti og sokkabuxum í stól og náði ekki niður og það var öll fjölskyldan við borðið og hangikjöt og það var sussað á mig af því að Jón Auðuns dómkirkjuprestur var að halda ræðu í jólaútvarpsmessunni um Jesúbarnið og fæðingu þess. Þið kannist við þá frásögn. Hann færði margvísleg rök að því, man ég, að þessir atburðir hefðu gjörst og vitnaði því til sönnunar í fræga ameríska vísindamenn. Þetta var löng ræða og ég mátti ekkert segja á meðan heldur hallaði undir flatt og sveiflaði fótunum og lét einhvern veginn. Síðan hefur mér verið meinilla við langar ræður. Einhver tíma fór fjölskyldan í aftansöng kl. sex á aðfangadag. Við börnin höfðum ekkert fengið að borða nema saltfisk alla aðventuna og hungrið var orðið gífurlegt. Þegar klukkan í Sjómannaskólanum sem var næsta bygging við kirkjuna sló sjö þá var presturinn séra Emil Björnsson bróðir Árna hótelsstjóra og Ragga heitins Björns að fara með fimmta erindið af sautján í frumsömdu jólakvæði sínu um Jesúbarnið. Sá merki maður Emil Björnsson sem var bæði prestur og fréttastjóri Sjónvarpsins var þarna of andríkur fyrir minn smekk og var ég farinn að halla hátt í þrítugt þegar ég fór næst í kirkju á jólum.

Síðustu áratugina hafa jólin yfirleitt farið í það að koma börnunum í háttinn. Þau eru yfirleitt orðin það yfirspennt eftir jólasteikina sem yfirleitt er ekki hangið yfir og gjafirnar að spennuþrungin grátur brestur á og síðan er sofnað. Þá sest mæddur presturinn við tölvuna sína því honum fannst ræðan sem hann flutti kl. sex alls ekki nógu góð. Þar var ekkert frumsamið ljóð, ekkert sagt sem ekki hefur verið betur sagt áður. Best að hafa alveg nýja ræðu á morgun, hugsar hann. Enda ekkert annað að gera. Börnin sofnuð og konan skriðin uppí með ævi og ástir Susan Sheridan.

Það er þó allt í lagi að vera einn með þessum hætti. Ég hef líka verið alveg einn á jólum, kominn þá nokkuð við aldur. Það er satt að segja ömurlegt hlutskipti sem enginn ætti að þurfa að upplifa. En því miður eru margir einir; ekklar og ekkjur, fráskilið fólk og fólk sem hefur varast hjónabandið eða ekki gengið út. Þetta fólk ber sig gjarnan vel og þiggur ekki að eyða jólum með öðrum en það er ástæða til þess að nálgast það undir einhverju yfirskyni. Jólin kalla nefnilega fram umhyggju og náungakærleika, ástúð og gleði allt saman kenndir sem fá ekki útrás ef maður er einn og ástandið batnar ekkert þótt lækki í koníaksflöskunni, bara versnar.

Ég kann engar uppskriftir. Stundum þegar ég hef verið í makaleit hef ég þóst vera góður í eldhúsinu en í raun og veru á ég ekkert erindi þangað og gæti fyrr flogið fjaðralaus en búið til góða köku. En ég kann að spila brids og læt því fylgja með góða bridsuppskrift þ.e. segja bridsþraut. Hún kemur sér líka vel fyrir þá sem kynnu að vera einir.

Norður
ÁK932
K4
ÁDG10
63
Suður
G4
Á763
K76
ÁD92

Þú ert í suður og lélegur makker þinn hefur komið þér í 6 grönd. Vestur kemur út með tígul þrist. Austur lætur fimmuna. Hvernig er skást að spila? Hver er áætlunin?
Þetta tæknipróf er frá Edwin B. Kantar. Ég mun birta áætlun hans hér einhvern tímann eftir jól.

Í jólaskapi og sendi það til ykkar allra.

Yðar alltaf einlægur

Baldur Kristjánsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica