Rjúpnakappát bræðra minna, en þar var keppt i magni en ekki tíma
Jólagestur okkar 23. desember er Gauti Árnason
Merkilegt með þessi blessuðu jól, þau eru alltaf full af hefðum, en samt svo misjöfnum. Sumir eru með hefðir er varða matinn, forréttin, eftirréttin, nú eða smákökusortir. Svo eru líka hefðir er varða jólakortin, á að opna þau strax eða á aðfangadag. Sumir senda í pósti og aðrir hafa þá hefð að keyra kortunum út sjálfir. Það er ein af hefðunum sem ég erfði því pabbi lét mig alltaf hlaupa en nú læt ég ormana mína hlaupa en sit sjálfur í bílnum og rifja upp gamlar stundir. Og svo má ekki gleyma jólaskrautinu og ljósunum. Margir eru alveg fastir á því að skreyta ekki híbýli sín fyrr en einhvern ákveðinn dag, þó svo að öll gatan sé jafnvel búinn að skreyta mörgum vikum áður, en aðrir, eins og ég, virða enginn boð og bönn eða gamlar hefðir, og vilja helst hafa jólaljósin logandi allan veturinn.
Ég hef í gegnum tíðina gengið í gegnum allskyns hefðir, tileinkað mér sumar en látið aðrar hverfa. Þegar ég kynntist Röggu minni þá kynntist ég til dæmis öðrum sið með jólamatinn en ég var vanur úr minni fjölskyldu. Ég reyndi nú að beita mínum þunga og breyta þeirra sið en hafði ekki árangur sem erfiði. Þannig að ég hef tekið upp hennar sið en gert hann svolítið að mínum. En ég er sem sagt eina 6-8 klst að dunda mér við hamborgarhrygginn, eitthvað sem tíðkaðist nú ekki í Breiðdalnum hér áður. Þannig held ég að siðirnir þróist með hverjum og einum, enda er það mjög nauðsynlegt að láta þetta þróast því öll stefnum við jú framávið.
Miklar og góðar minningar hef ég um mín æskujól hér á Höfn. Minningar um systkini mín koma heim úr skólum í Reykjavík, rjúpnakappát bræðra minna, en þar var keppt i magni en ekki tíma, samveru stór fjölskyldunnar þar sem ungir sem aldnir nutu góðra veitinga og samvistar hvors annars. Mikið af mínum jólaminningum eru eðlilega tengdar Hótelinu, hvort sem það er þegar Austurleiðarrútan koma yfirfull af jólapökkum, stríðinu við að halda öllum perunum á stjörnunni lifandi eða jólaböll Karlakórsins og Lions. Síðan við fluttum hingað aftur á Höfn, 2004, hefur margt breyst og hefðirnar líka. Sumar hafa dottið út en ein sú hefð sem hefur bæst við er að við reynum að eyða einum jóladegi í paradís fjölskyldunnar í Stafafellsfjöllum. En þar er alltaf gott að vera hvort sem að snjóar eða rignir eða hvað annað sem veðráttan bíður uppá.
Það er sem sagt mjög nauðsynlegt fyrir fjölskyldur að halda sínum hefðum og siðum en það er einnig nauðsynlegt að þróa þær í takt við tímann. Festast ekki í einhverju gömlu fari, en boðskapur jólanna er alltaf sá sami, og hefðirnar eru til að kalla hann fram.
Ein skemmtilegasta matarhefðin sem er tengd jólum er sú sem er tengd við Þorláksmessu, eða skötuveislan. Þar er kominn saman vinnustaðurinn, fjölskyldan eða vinahópurinn og borðar saman mat, sem fólki finnst mis góður en lætur sig þó hafa það því félagsskapurinn er ekki síður góður en maturinn. Á seinni árum hef ég lært að meta skötuna og það sem henni fylgir. Samt er ég ekki búinn að læra að meta hnoðmörina en það hlýtur að koma. En í raun er það að borða skötu á Þorlák orðin jafn sjálfsögð hefð eins og borða stórsteik á aðfangadag. Og það skemmtilega við skötuveisluna er stemmingin, hún er svo frjálsleg og hálf vilt, kemur bara í vinnufötunum á veitingastaðina og raðar í sig allskyns góðgæti og skolar niður með ýmsum mjöðum, en á aðfangadag eru allir svo settlegir, búnir í jólasturtunni og komnir í það allra fínasta. Þarna eru í raun tvær stórveislur með sólarhrings millibili en út frá sitthvorri hefðinni. Þetta er gott dæmi um skemmtilegar hefðir.
Ég ætla að láta fylgja hér með uppskrift að sérlega einfaldri og þar af leiðandi gríðarlega góðri hvítri lagköku með súkkulaðikremi. Þetta er kaka sem mamma bakar alltaf og var svo elskuleg að kenna mér tökin á henni fyrir nokkrum árum
Lagkaka með súkkulaði
250 gr smjör
260 gr sykur
260 gr hveiti
2 tsk lyftiduft
4 egg
1 msk mjólk
smá vanilludropar
Sykur og smjör unnið vel saman, egg útí eitt og eitt, síðan þurrefni og mjólk.
Bakað við 180°c í ca 15 mín.
Krem
100 gr jurtafeiti eða smjör
200 gr suðusúkkulaði
2 egg
súkkulaði og feiti brætt saman við lágan hita og egg hrærð útí, kælt, en þó þannig að gott er að hella yfir og smyrja
Borðist vel og mikið með stóru glasi af mjólk
Með jólakveðju
Gauti Árnason og hinir gosarnir í Bjarmalandi




Skrifa athugasemd