Síðan þá kann ég öll erindin í Oh come all ye faithful
Þegar ég var beðin að skrifa þennan pistil fór ég auðvitað að leiða hugann að jólunum þegar ég var barn. Það sem mér datt fyrst í hug var mamma uppi á eldhúsborði að þvo loftið því ekki dugði minna en allsherjar hreingerning. Allt var tekið í gegn og við pabbi fengum það hlutverk að pússa silfrið og taka ljósakrónuna í stofunni niður og hreinsa hana. Heimilið angaði allt af hreingerningalykt.
Fjölskyldan fór ekki í kirkju á jólunum en á aðventunni var alltaf ensk messa í Hallgrímskirkju og þar sem pabbi var frá Englandi var fjölskyldan dubbuð upp og farið í þá messu. Áður var búið að spila plötu með enskum jólasálmum svo að við systur gætum tekið almennilega undir í söngnum. Síðan þá kann ég öll erindin í Oh come all ye faithful.
Þegar kom að því að skreyta áttum við sama jólaskrautið öll mín barnaár og það fór allt á sama staðinn ár eftir ár, annað hefði eiginlega verið helgispjöll. Á þessum árum var þó eitt sem ég var ekki ánægð með, við áttum nefnilega plastjólatré (sem enn lifir góðu lífi). Svoleiðis tré var hvergi til á neinu heimili sem ég hafði komið á, allir voru með alvöru tré sem þurfti að vökva. Okkar tré var geymt í stórum pappakassa í geymslunni og sett saman eftir kúnstarinnar reglum. Ég sætti mig samt við það þegar var búið að festa á það seríuna. Þessi sería var eldgömul þegar ég kom til sögunnar. Hún var þannig að glerrör voru fyllt með vatni í ýmsum litum og þegar var búið að vera kveikt á henni í svolitla stund og hita hana upp fór vökvinn að bubbla, algjörir galdrar fannst mér.
Það var ekki nein ákveðin matarhefð á jólunum, mamma prófaði hitt og þetta og við systurnar vorum hvort eð er meira spenntar fyrir eftirmatnum. Það var þess vegna óskaplegt svekkelsi þegar pabbi fékk að ráða og vildi hafa það sem kallað er Christmas pudding í eftirmat. Þetta er hálfgerð kaka úr ýmsum ávöxtum sem soðin var hálfan daginn í nokkurs konar blómapotti og svo hvolft á disk og borin fram með rjóma. Mér þætti þetta sjálfsagt gómsætt í dag.
Ég hlakkaði alltaf óskaplega mikið til jólanna og var svo spennt að ég var varla húsum hæf, því greip fjölskyldan til þess ráðs a.m.k. tvisvar að halda því leyndu að jólin væru að koma. Það var hægt á þessum árum þegar var bara ein útvarpsrás og ekkert sjónvarp. Ég man ennþá og held bara að það sé mín fyrsta minning sem tengist jólunum hvað ég var hissa og glöð þegar ég heyrði að verið var að lesa jólakveðjurnar í útvarpinu og áttaði mig á því að jólin væru að koma og mamma sagði að þau væru á morgun. Í anda jólakveðja ríkisútvarpsins eins og ég man þær óska ég landsmönnum öllum til sjávar og sveita gleðilegra jóla.
- Áslaug
Ég er að hugsa um að láta uppskriftina af enskum christmas pudding fylgja. Ég hef aldrei reynt þetta sjálf. Mér skilst að best sé að gera búðinginn allt að ári áður en á að nota hann svo að nú er kannski rétti tíminn fyrir næsta ár.
Það er gaman að geta þess að fyrstu sögur af jólabúðings gerð í Englandi eru frá því um 1550 svo að uppskriftir ættu að standa á gömlum merg. Alls konar hjátrú hefur tengst gerð búðingsins, svo sem að það þurftu að vera 13 tegundir hráefna í honum til að tákna Jesú og lærisveinana. Alltaf átti að hræra í honum frá austri til vesturs með viðarskeið til að heiðra vitringana 3 og allir fjölskyldumeðlimir áttu að taka þátt í að hræra og óska sér einhvers sem engum mátti segja.
Enskur christmas pudding eða jólabúðingur (með fleira en 13 hráefni)
250 gr. af hverri sort; Rúsínum, kúrenum, gylltum (ljósum) rúsínum, brauðraspi og púðursykri.
250 gr. súkkat
125 gr. af hvoru; söxuð kirsuber og saxaðar möndlur
1 stk af hverju; Sítróna ( rífið börkinn og notið), appelsína (rífið börkinn og notið) rifin gulrót, rifið epli.
100 gr hveiti
1 tesk. allrahanda
1 tesk negull
1 tesk kanill
smá salt
6-8 egg
300 ml. Dökkur bjór (guiness) EÐA 150 ml. mjólk og 150 ml. Whiskey.
Blandið þurrefnum í skál. Bætið út í létthrærðum eggjum og vökva. Smyrjið að innan (mamma notaði leirskál sem helst minnti á blómapott) skál og þrýstið deiginu í. Setjið vaxpappír yfir og álpappír þétt yfir það. Setjið skálina í ofnskúffu eða pott í ofni með vatni í og passið að vatnið þorni ekki upp. Soðið í ofninum í 4 klukkustundir. Geymist eins lengi og hægt er í skálinni. Þegar bera á fram búðinginn skal hann hitaður á sama hátt í um það bil tvær klukkustundir.




Skrifa athugasemd