Jólagestir
Jóka Stígs
Jóka Stígs
Jóka Stígs

18.12.2007 Jólagestir

Alltaf hafði pabbi þann sið að láta ljósið loga hjá kusunum sínum á aðfangadagskvöld

Jólagestur okkar 18. desember er Jóka Stígs

Já bernskujólin mín , úff ég man ekki svo langt en bíðum við. Mikið ósköp áttum við systkinin erfitt með að bíða eftir að mamma og pabbi væru búin að mjólka kýrnar (ég er alin upp í sveit), við fórum margar ferðir í fjósið til að spyrja ,,eruð þið ekki að verða búin?. Pabbi fór alltaf aðeins fyrr í fjárhúsið og fjósið á aðfangadag og var maturinn alltaf kominn á borðið kl. 19.00. Það hefur sennilega fylgt mér að skreyta mikið því við systkinin bjuggum alltaf til mikið af músastigum, óróum og öðru jólaskrauti og skreyttum svo mikið að stundum sást varla í loftið í stofunni. Alltaf hafði pabbi þann sið að láta ljósið loga hjá kusunum sínum á aðfangadagskvöld og mikið ósköp þótti honum vænt um þær. Eins hlökkuðum við alltaf til að fara að Skeiðflöt milli jóla og nýjárs en það er næsti bær við Steig. Þar sáum við alltaf eitthvað íslenskt skemmtiefni, en þetta var þegar sjónvarpið var að byrja og þetta var næstum eini bærinn í sveitinni sem var kominn með sjónvarp, síðan var alltaf rosa tertu-og kökuveisla sem beið okkar.

En að öðru, fyrir nokkrum árum datt Gísla syni okkar í hug að fá pabba sinn í lið með sér að skreyta húsið okkar aðeins, síðan hefur þetta margfaldast. Nú er Gísli farinn í skóla til Reykjavíkur og ég tók við úti-skreytingarmálunum, ég sem var búin að heita því þetta sæju þeir feðgar um en ég um það sem er inni. En hvað um það , ég er meira að segja farin að setja meira upp en Reynir. Við hér á 31. erum að verða búin með útiskreytinguna en þá tekur við að skreyta inni sem er ansi mikið, okkur finnst svo gaman að hafa jólalegt hjá okkur.

Hér áður fyrr mátti ekki einu sinni setja seríur í glugga fyrr en svona viku fyrir jól og skreyta jólatréð á aðfangadag en þetta hefur nú allt breyst.

Fyrir nokkrum árum skapaðist sú hefð hjá okkur að hér er e mikil skötuveisla í hádeginu á Þorláksmessu með um 20 manns og er þetta alltaf mikil tilhlökkun hjá öllum. Síðan má ekki gleyma jólakveðjunum, þær hef ég alltaf hlustað á frá því ég var krakki.

Ég óska öllum hér á Höfn og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla árs og friðar.

- Jóka Stígs.



Ég ætla að láta fylgja hér með uppskrift af rauðkáli og rauðrófum sem ég geri alltaf á haustin þetta er ótrúlega gott og betra heldur en þetta danska í krukkunum.

Rauðkál.
1 stk. Rauðkálshaus
4-5 d. edik
4-5 d. Sykur
2 msk. smjör
2 msk. Rifsberjahlaup eða 2-3 súr epli smátt söxuð.(hýði og kjarni hreinsað úr. Ég nota eingöngu epli).

Rauðkál saxað og soðið í 1 klst. Smjör er látið fyrst í pottinn og látið bráðna síðan allt hitt sett í. Sett í krukkur og 4-6 sinnepskorn ofaná hverja krukku. Lokað strax þ.e. heitt. Sinnepskornin draga úr myglu og gerjun.

Rauðrófur niðursoðnar.
Rauðrófur eru soðnar í 2 klst.
Í 2 kg af rauðrófum er lögurinn 1 l. edik og ½ kg sykur.
Lögurinn soðinn í potti og hellt yfir rauðrófurnar í krukkunum.
Þetta á allt að vera heitt og setja sinnepskorn ofaná og loka strax..

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica