Þó að Öræfin væru í alfaraleið þá átti jólasveinninn ekki leið um til að setja í skóinn
Jólagestur okkar 17. desember er Svavar M Sigurjónsson
Þegar leitað til mín varðandi það að vera jólagestur hér á Hornafjörður.is svaraði ég því til að ég væri lítið jólabarna og ennþá minni bakari en þar sem ég á mjög erfitt með að segja nei eins og aðrir Öræfingar þá féllst ég á að reyna setja nokkrar línur á blað með jólaminningum og fá aðstoð við baksturinn. Þó að ég sé kornungur maðurinn, varð rétt fertugur í sumar, þá man ég tímana tvenna í mörgum skilningi. Fyrir það fyrst þá er ég alinn upp í einni einöngruðustu sveit landsins sem þó var í alfaraleið að Litla-Hofi í Öræfum. Til dæmis var símanúmerið mitt ein löng og ein stutt alveg þangað til ég var 14 ára en svo trú börnin því ekki að ég hafi átt gemsa þegar ég eins árs !!! Ég ólst upp á heimili þar sem voru við systkinin þrjú (síðar komu tvö örverpi sem ekki tekur því að minnast á í grein þessari) og foreldrar og afi og amma og tvær systur afa, það er breytt heimilismynd frá því sem nú er.
Mér er minnistætt frá jólum sem ég hef líklega verið sex ára, að þá vorum við annaðhvort bara með sveitarafmangið eða skömmtun var á ríkisrafmagninu sem var að mig minni nokkur fyrstu árin eftir að rafmagnið kom. Þessi jól var veðrið frekar leiðinlegt, hvessti svolítið eins og kemur fyrir í Öræfum enn þann dag í dag, þannig að það fennti í sigtið upp í fjalli og pabbi þurfti að fara allavega einu sinni upp í fjall í myrki og snjókomu til að hreinsa sigtið en allt fór það ágætlega alla vega minnst ég ekki annars, en ég man vel þegar hann kom snjóugur til baka. Annað sem tengdist jólunum var að þá var oft málað og þá hafði málning lykt og ósjálfrátt fór maður að tengja málningarlykt við jólin en nú er búið að taka það frá manni með lyktarlausum umhverfisvænum máliningum !!. Annað sem tengdist þessu gömlu tímum var að í þá dag voru ekki ávextir á borðum nema um hátíðir, en við fengum alltaf senda eplakassa frá heildsala sem hafði átt börn í sveit nokkur sumur þannig að eplalyktin og málningarlyktin var órjúfanlegur hluti af jólunum. Mikil breyting er á sjóvarpsdagskránni frá þessum tíma og sársakna ég sjóvarpslausu júlímánaðanna og fimmtudagskvöldanna. Í þá dag var einungs (að það mig minnir) eina barnaefnið Stundin okkar sem var í tæpa klukkustund einu sinni viku (og oft missti maður af henni vegna anna við bústörf !!!!) þannig að það var tilbreyting að horfa á barnaefni í 2-3 tíma sem vara á aðfangadag og gamlaársdag, ásamt Sirkus Billy Smart (eða hvað hann hét).
Á aðfangadagskvöld voru ávalt borðaðir saltaðir bringukollar og var það herra manns matur en þegar við tengdumst meira siðmenningunni og borgarsollinum þá var farið yfir í hefðbundnar jóla mat og haft keypt reykt svín. Reyndar eru bringukollar í dag nánast eingöngu kjöt en ekki með þverhandaþykkt af fitu eins og var í þá daga, en kröfur samtímans og ræktun búin að eyðileggja þennan ljúffenga rétt. Á jólunum var alltaf farið á jólaball í fundarhúsinu á Hofi og ég man hvað jólatréð var rosastórt í fyrst skipti þegar ég sá það en árinu seinni var það minn og svona gekk það, það minnkaði á hverju ári þó alltaf hafi verið notað sama tréð, og að lokum var það orðið minn en maður sjálfur !!! Þó að Öræfin væru í alfaraleið þá átti jólasveinninn ekki leið um þessa sveit til að setja í skóinn. Og heyrði maður ekki um þann vana fyrr en maður kom á suðvesturhornið, reyndar fær maður ekki miklar undirtektir undir því að styðja jólasveinninn að hafa sama lag á í Kópavoginum !!!! Farið var í messu á milli jóla og nýárs og sá Séra Fjalar um messuhaldi í þá dag með stakri prýði, þótt mér gaman að fara í messi en samt spurði ég að því einhvern tíma hvenær yrði messa þar sem presturinn yrði ekki !!!
Varðandi uppskrifin sem á að fylgja með þá leitaði ég til mömmu og bað hana um að segja mér hvernig kornfleskkökur væri búnar til en það var ein af þeim smákökum sem við fengum þegar við vorum lítil en eitthvað er síðan ég fékk. Þessi uppskrift bendir reyndar il þess að sá ameríski morgun verður sem kornfleks er hafi borist snemma í Öræfin.
Kornflekskökur:
Kornfleks.
Kakó (gott er að nota súkkulaði í stað kakósins að hluta eða alveg)
Flórsykur
Jurtafeiti (kókosfeiti)
Vanilludropar
Hlutföll eru geðþóttarákvörðun hjá bakaranum í hvert sinn. Þessu blandað saman og sett á plötu í passlegum hraukum og sett á kaldan stað og brátt tilbúið.
Svo vill ég benda öllum á að ómissandi sé að sjóða pokabaunir með hangikjötinu á jóladag en það er hið minnsta mál, setja gular baunir í bleyti yfir nótt (ekki nauðsynlegt) slá um þær léreftspoka, gamalt viskustykki er ágætt og binda fyrir og láta þetta malla með hangikjötinu þá er komið meðlæti sem er algerla nauðsynlegt að hafa með hangikjötinu. Einhversstaðir heyrði ég að þessi siður hefði líklega komið fyrst til landsins í Öræfum með frönskum sjómönnum, á þessu sést hvað Öræfin hafa verið tengda hámenningu suður Evrópu.
Ég held að þetta sé gott í bili og sendi jólakveðju frá mér og mínum í Kópavogi og bið Skaftfelling hér og þar vel að lifa og óska þeim góðra jóla




Skrifa athugasemd