Á aðfangadagsmorgun fer pabbi út í skóg og nær í grein af tré
Jólagestur okkar 16. desember er Natasa Colic
Ég flutti til Íslands frá Serbíu 1998 og ég held íslensk jól með börnunum mínum tveim þeim Nikola og Saska því hér eigum við heima og okkur finnst íslensku jólin yndisleg. Jólahald í Serbíu er afskaplega ólíkt því sem hér er, þar eru helgisiðir í föstum skorðum og jólin eru mikil trúarhátíð. Aðfangadagur hjá rétttrúnaðarkirkjunni er 6. janúar og jóladagur er 7. janúar Mig langar til að gefa ykkur smá innsýn í jólahald heima hjá foreldrum mínum í Aradac sem er um 5000 manna bær sem við köllum reyndar sveit en þetta er aðeins smábrot af þeim helgisiðum sem tilheyra jólahátíðinni. Á aðfangadagsmorgun fer pabbi út í skóg og nær í grein af tré sem síðan er geymt úti þar til á aðfangadagskvöld, þá er greinin færð inn í stofu og henni skipt í fjóra hluta, ljós tendruð á þrem þeirra en fjórða greinin er geymd ónotuð í húsinu til næstu jóla sem verndargripur heimilisins.
Jólaskreytingar eru aðeins innandyra og þar er fyrst og fremst jata fyrir Jesúbarnið. Þegar farið er að borða er kveikt á einu stóru kerti á borðinu, ekki er þó neitt kjötmeti á aðfangadagskvöld því 40 daga föstunni líkur ekki fyrr en á jóladag.
Snemma á jóladagsmorgun kemur frændi í heimsókn og fara hann og pabbi til kirkju hlíða á messu og ganga til altaris. Á meðan bakar mamma jólabrauðið sem hún lætur einn pening í, gæfupening. Þegar pabbi og frændi koma úr kirkjunni og segja við okkur sem heima erum ,,Kristur er fæddur " og við tökum undir og segjum ,,hann er fæddur", eru jólin gengin í garð og þetta er okkar jólaávarp eins og hér er sagt gleðileg jól.. Þegar pabbi hefur signt sig og kveikt á kertinu á borðinu brjóta hann og frændi brauðið og deila því milli fjölskyldunnar og sá sem finnur peninginn í sínum parti mun njóta gæfu og góðs gengis á árinu. Þegar allir hafa signt sig og farið með bænina faðir vor er byrjað á jólamáltíðinni sem er fjölbreyttir kjötréttir með tilheyrandi meðlæti sem allir njóta vel þar sem ekki er borðað neitt kjöt á föstunni. Jólin eru hátíð fjölskyldunnar þar sem allir eru kátir, segja sögur syngja og skemmta sér og sé einhver ósáttir við einhvern skulu þeir sættast og veita fyrirgefningu.
Jólagjafir eru með allt öðrum hætti en hér, þar eru einungis pakkar sem jólasveinninn, sem er aðeins einn, gefur börnunum. Áður hafa pabbi eða mamma farið í fyrirtækin þar sem þau vinna og greitt fyrir einn pakka fyrir hvert barn sem jólasveinninn sér svo um að koma til skila.
Þegar ég kom í heimsókn til Íslands í desember 1997 var það eins og draumur að sjá allar þessar fallegu jólaseríur um allt, 13 jólasveina og allt þetta sem tilheyrir jólunum hér. Eitt hús er mér sérstaklega minnistætt fyrir það hvað það var fallega skreytt algjört draumahús en þetta var húsið hennar Jóku Stígs. Í Aradac áttum við aðeins einn jólasvein sem heitir bara Jólasveinn en nú eigum við 13 jólasveina sem heita hver sínu nafni og finnst okkur það mikið ríkidæmi að eiga svo stóran hóp af þessum föngulegu sveinum. Sonur minn kunni vel að meta þann sið að setja skóinn út í glugga til að fá eitthvað í hann frá jólasveininum.
Gleðileg jól og farsælt nýtt ár með mikilli hamingju, heppni og nóg af brosi.
- Natasa Colic.
Eplabaka :
200 gr smjörlíki
200 gr sykur
200 gr hveiti,
8 gul eða græn epli
Kanilsykur
Púðursykur til að strá yfir.
Smjörl. Sykur og hveiti mulið saman. Eplin flysjuð, brytjuð og sett í eldfast mót.
Kanilsykri stráð yfir eplabitana og deigið mulið yfir. Púðursykrinum stráð yfir.
Bakað í ca 50 mín við 180°
Ómissandi að hafa rjóma og ís með bökunni.




Skrifa athugasemd