Jólagestir
Hermann Hansson
Hermann Hansson
Hermann Hansson

13.12.2007 Jólagestir

Jól í útlöndum

Jólagestur okkar 13. desember er Hermann Hansson

Frásögn af mínum bernskujólum yrði vafalaust með líkum brag og hjá mörgum öðrum, að öðru leyti en því að ég er alinn upp í sveit og þar var hluti af jólahaldinu að ljúka við gegningar og gera skepnunum til góða í fóðri og umhirðu í tilefni hátíðarinnar.
Mér dettur hinsvegar í hug að rifja upp einu jólin sem ég hef fram að þessu átt á erlendri grund. Þá var ég 18 ára gamall. Ég hafði farið til London snemma hausts ásamt tveimur skólafélögum mínum. Þar settumst við á skólabekk í enskuskóla og nú skyldi læra málið og geta talað og skrifað á enska tungu. Haustið var viðburðaríkt við nám, skoðunarferðir um markverða staði í borginni og ýmsa skemmtan. Enskunámskeiðinu sem við sóttum lauk með prófi stuttu fyrir jól. Það var jú alltaf vitað og þess vegna höfðum við félagarnir lagt á ráðin um að reyna að fá vinnu í Englandi til að kynnast nú málinu og landi og þjóð betur. Við höfðum fengið mann sem hafði sambönd í Englandi til að kanna fyrir okkur möguleika á atvinnu.

Okkur var kunnugt um að eftir að loforð um atvinnu væri fengið þyrfti að sækja um atvinnuleyfi og það gæti tekið alllangan tíma. Leið nú og beið fram undir jólin og lítið gerðist. Loks kom um það frétt, að fengist hefði verkefni fyrir einn mann yfir jólahátíðina. Um var að ræða starf aðstoðarmanns í skóla norður í miðju landi, þar sem nokkur hópur fólks kæmi alltaf saman um jólin.
Aðstoðarmaðurinn átti að hjálpa til við uppvask og þrif og annað slíkt í nokkra daga. Launin mundu verða ferðakostnaður báðar leiðir, frítt uppihald og nokkur sterlingspund að auki. Við félagarnir settumst á rökstóla og niðurstaðan var sú að ég væri rétti maðurinn til að taka að mér verkefnið. Trúlega hefur aðalástæðan verið sú að við vissum allir innst inni að ég mundi hafa minnst auraráðin og veitti því ekki að aukapening þó lítið væri.

Þann 21. eða 22. desember lagði ég af stað með lest norður til áfangastaðarins, sem var lítið sveitaþorp stutt sunnan við Sheffield. Oft hef ég undrast það síðar hvernig ég rambaði á rétta staðinn. Eftir að úr lestinni kom þurfti ég að taka strætisvagn. Taka átti á móti mér á réttri stoppistöð. Ég var hinsvegar svo seinheppinn að fara of snemma út. Tókst samt eftir nokkra stund að spyrjast til vegar og komast alla leið á heimili fólksins sem ég átti að hitta. Þar bjuggu hjón með tvö börn sín og faðir konunnar var einnig í heimili. Þarna var mér vel tekið og síðan vísað í svefnstað í heimavist skólans þar sem ég átti að vinna og sofa meðan ég dvaldi á staðnum. Gestirnir sem ætluðu að dvelja á staðnum um jólin komu síðan á Þorláksmessu. Hið vingjarnlegasta fólk. Á aðfangadagskvöld var setið og spjallað, farið í einhverja leiki og eitthvað drukkið af bjór. Gestirnir vildu endilega að ég - útlendingurinn - tæki þátt í þessu með þeim og gerði ég það enda ekki annað við að vera. Það var bæði ánægjulegt og óvenjulegt. Á jóladag skiptist fólk á gjöfum um hádegisbil, en ekki man ég svo gjörla hvað annað var gert. Starf mitt við uppvask og þrif gekk áfallalaust. Þar var ég í verki með stúlku frá Írlandi, sem reyndi að leiðbeina mér um hvað ætti að gera og hvernig. Sennilega bý ég að þessari kunnáttu ennþá.

Ég hygg að það hafi verið á þriðja í jólum sem ég lagði aftur af stað til London og hitti félaga mína þar. Reynslunni ríkari og nokkrum sterlingspundum, en ekki hef ég í annan tíma verið einn íslendinga meðal útlendinga á jólum. Það var lærdómsríkt en einmanalegt.

Heiðrún leggur til uppskrift að Súkkulaðirúllutertu:

4 egg,
2 dl strásykur,
4 msk kakó,
2 dl hveiti,
1 tsk lyftiduft,
vanilludropar, örlítið salt.
Þeytið saman egg og sykur. Blandið þurrefnunum varlega saman við.
Sett í rúllutertumót. Bakist við 200 gráðu hita í nokkrar mínútur.
Hvolfið kökunni á sykri stráðan pappír, látið kólna.
Fylling:
3 dl rjómi, þeyttur,
1 tsk. Neskaffi eða Nesquick
Fylling sett á kökuna og henni rúllað upp. Skreytt með þeyttum rjóma og ávöxtum.


Sendi öllum mínar bestu jóla- og nýjársóskir.

Hermann Hansson,

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica