Jólagestir
Sigrún Sigurgeirsdóttir
Sigrún Sigurgeirsdóttir
Sigrún Sigurgeirsdóttir

11.12.2007 Jólagestir

Það er vissulega gaman að koma sér upp jólasiðum

Jólagestur okkar 11. desember er Sigrún Sigurgeirsdóttir

Sinn er siður í hverju landi og hvað jólin og jólaundirbúning snertir þá eru hefðirnar ólíkar milli landshluta og jafnvel milli heimila sem þó standa hlið við hlið! Einu sinni heyrði ég dóttur mína segja "á jólunum situr mamma alltaf hérna og pabbi þarna". Ég varð alveg hissa, hafði ekki gert mér grein fyrir að sætaskipanin væri í föstum skorðum á jólunum, en þegar ég fór að hugsa mig um þá áttaði ég mig á að þessi tvenn jól sem við höfðum verið í þessu húsi höfðum við jú setið í þessum sætum við matborðið. Alveg kemur það manni á óvart stundum hvernig allt í einu er komin hefð á eitthvað! Það er vissulega gaman að koma sér upp jólasiðum. Það er jú eitt af verkefnum hverrar fjölskyldu að skapa sér jólahefðir; oftast eru þeir settir saman úr jólahefðum hans og hennar, en stundum ákveður fólk að brydda upp á nýjungum sem menn hafa kynnst annars staðar. Það getur vissulega verið skemmtilegt að skoða í félagi hvernig fjölskyldan vill hafa jólastemminguna og prófa ýmsar leiðir til að gera hátíðina eins og við viljum hafa hana.

Sumir segja að undirbúningurinn sé órjúfanlegur hluti af veisluhöldum og vissulega er tilhlökkun, bakstur, föndur og val á gjöfum stór hluti af jólahaldinu. Allt er þó í hófi best og við þurfum aðeins að gæta okkar núna að láta ekki þennan undirbúning ríða jólunum að fullu: það er ósköp lítið hátíðlegt ef gjafirnar verða svo dýrar að jólin hverfi í skuggann af áhyggjum af því hvernig eigi að borga reikningana sem berast í janúar! Auglýsendur virðast telja það fullvíst að allir vilji kaupa rándýrar gjafir og það getur verið erfitt að neita sínum börnum um það sem menn telja víst að hin börnin fái (enda töluverðar líkur á að þau fái dýrar og fínar gjafir...), en það er samt á ábyrgð okkar foreldra að halda í taumana og láta ekki auglýsendur tæla okkur til að kaupa meira en við ráðum við eða höfum sjálf áhuga á. Sjálfri finnst mér ágætt að hafa samráð við foreldra barnanna sem ég skiptist á jólagjöfum við, því í raun eru allir sammála um að gjafir eru skemmtilegri ef verðið á þeim fer ekki fram úr hófi.

Já þetta með jólaundirbúninginn, hver man ekki eftir jólahreingerningunum frá fyrri tíð þar sem húsið var hreingert í hólf og gólf, gluggatjöldin þvegin og allt ilmaði af sápulegi. - Mér finnst ágætt að strjúka yfir gólfin fyrir jólin, en það er ansi margt framar í forgangsröðinni hjá mér en alls herjar hreingerning. Þegar ég var unglingur þá bökuðum við mamma yfir 10 tegundir af smákökum og alls konar tertur því til viðbótar; þetta borðaðist allt upp til agna á jólunum. Í dag legg ég meiri áherslu á matinn en kökurnar!
Nágrannakona mín var að tala um það fyrir skömmu að boðskapur jólanna væri alveg að gleymast í gjafaflóðinu; jólin ættu að snúast um Jesú en ekki jólasveinana. Sjálfri finnst mér jólasveinarnir vera nauðsynlegur hluti af jólastemmingunni, en ég er reyndar alveg sammála því að jólastressið má ekki verða of mikið.
Ég ætla að senda uppskrift að kartöflusalati, en sjálf fer ég reyndar frekar frjálslega með uppskriftir, hef þær meira til hliðsjónar en að ég fari nákvæmlega eftir þeim. T.d. mæli ég aldrei mæjónesið og sýrða rjómann, set bara slettu af hvoru fyrir sig (kartöflur eru líka mis stórar þannig að þetta er allt frekar ónákvæmt hjá mér...)

Kartöflusalat

6 kaldar, soðnar kartöflur
½ gul paprika
½ rauð paprika
½ rauðlaukur
½ blaðlaukur
15 stk græn vínber
1 grænt epli
2 dl sýrður rjómi
1 dl mæjónes
½ tsk fljótandi hunang
salt og pipar eftir smekk


Allt hráefnið bitað niður nema sýrði rjóminn og mæjónesið sem er hrært saman ásamt hunangi. Kryddað með salti og pipar.
Hrærið síðan allt varlega saman nema kartöflurnar, bætið þeim útí síðast þannig að þær fari ekki alveg í mauk við hræringinn!

Gleðileg jól.

- Sigrún Sigurgeirsdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica