Sko, ef jólasveinninn spyr þig að einhverju þá segir þú bara yes eða no
Jæja tíminn flýgur áfram og jólin kominn áður en maður veit af. Ég vildi að tíminn hefði verið svona fljótur að líða þegar að maður var krakki að bíða eftir jólunum en það var nú annað mál tíminn leið svo rosalega hægt. Þegar ég var krakki þá fór ég nokkru sinnum á kanajólaball út á Stokksnesi með frænku minni og jafnöldru, henni Elínu. Pabbi hennar vann út á Stokksnesi þannig að þau fóru alltaf á jólaball þar og var mér oft boðið með þeim. Ég man sérstaklega eftir einu skipti þegar ég hef verið svona u.þ.b 5 ára. Ég man að á leiðinni út á Stokksnes sátum við í bílnum og Elín var að segja mér hvernig jólaböllin væru, að við myndum setjast í fangið á jólasveininum (sem var útlenskur) og hann myndi spjalla við okkur og svo fengjum við pakka. Það fannst mér nú ekki nógu gott því að ég kunni ekki útlensku og ég gæti ekki tala við jólasveininn, svo hún ákvað að kenna mér útlensku á leiðinni því að hún kunni víst útlenskuna mjög vel. Hún sagði við mig "Sko, ef jólasveinninn spyr þig að einhverju þá segir þú bara yes eða no", ok þá var þetta ekkert mál ég kunni núna að svar jólasveininum á útlensku.
Við æfðum þetta svo eitthvað aðeins á leiðinni. Svo kom að því að ég settist hjá jólasveininum og hann spurði "What is your name?" Ég svaraði auðvita eins og mér hafi verið kennt ?"Yes" og sveinki brosti og spurði svo "How old are you?" Og ég svaraði "No" og hann spurði að einhverju fleiru sem ég man ekki, en ég man að jólasveinninn og allir í salnum voru skellihlæjandi.
Þannig að þegar ég kom frá sveinka þá sagði pabbi Elínar mér að jólasveinninn hefði spurt meðal annars hvað ég héti og hvað ég væri gömul og að ég hefði bara svarað já eða nei. Ekki alveg rétt svar. En ég vissi náttúrulega ekkert hvað Yes eða no þýddi. Þetta voru eflaust mjög skemmtileg jólaböll en þetta er það eina sem ég man frá þeim.
Uppskriftin sem ég ætla að láta ykkur hafa er af mjög góðum smákökum. Þessar kökur kláruðust yfirleitt fyrst á mínu heimili og stundum meira að segja fyrir jól, þó svo að mamma væri nú ekkert alltof ánægð með það að við krakka grísirnir værum búin að stelast í kökurnar. En það voru ég og Helgi bróðir sem vorum duglegust við það. Ég baka þessar kökur 2-3 sinnum fyrir jólin því þær klárast alltaf.
Lakkrístoppar
3 Eggjahvítur
200 gr. púðursykur
150 gr. rjómasúkkulaði
2 pk. lakkrískurl
Þeytið hvíturnar og bætið svo púðursykrinum saman við, og þeytið þar til sykurinn er horfinn. Saxið súkkulaðið niður og blandið því og lakkrískurlinu saman við.
Bakið við 170° í 11-13 mínútur.
Ég vil óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Jólakveðja
Jóna Margrét Jónsdóttir




Skrifa athugasemd