Þá missti maður andann svo kæst var tindabikkjan
Jólagestur okkar 8. desember er Ásgerður K. Gylfadóttir
Það er alltaf smá sjarmi við að líta til baka og rifja upp liðna tíma. Maður spyr sig hvort að bragðið sem maður hefur verið að leita að í "skötuveislum" sé virkilega til eða sé aðallega bundið tilfinningum frá uppvaxtarárunum í Hnífsdal. Fyrir þá sem eru aðeins farnir að ryðga í landafræðinni þá er Hnífsdalur á milli Ísafjarðar og Bolungavíkur. Lyktin sem virkilega kallar fram jólaskapið og minningarnar að vestan er auðvitað ráðandi á mörgum stöðum á Þorláksmessu - skötulyktin. Minningin úr eldhúsinu hjá ömmu Jönu og afa Kalla, vel kæst tindabikkja og hnoðmör. Þetta var nú svolítið erfitt, smá fiskbiti og hálf kartafla. Þrátt fyrir kartöfluna þá missti maður andann svo kæst var tindabikkjan.
Í minningunni er þetta alveg æðislegt móment og hef ég eins og áður kom fram verið að leita eftir þessari tilfinningu við skötuát vítt og breitt t.d. á Víkinni, Hótel Höfn og Kaffihorninu. Á aðfangadagsmorgun kíkti maður svo aftur til ömmu og afa og fékk þá skötustöppu úr afgöngum frá kvöldinu áður.
Í minningunni er svo auðvitað þéttur og fínn snjór sem marraði í þegar gengið var til aftansöngs klukkan sex á aðfangadag í Hnífsdalskapellu. Það var fastur og mjög svo hátíðlegur liður í jólahaldinu því bæði Helgi fósturpabbi minn og amma voru í kirkjukórnum. Við systkinin vorum nú ekki alltaf þolinmóð að bíða jólanna og var messan oft lengi að líða. Þá var stundum svolítið vesen og brölt á okkur en þó frekar á Gísla bróður mínum. Ein jólin festi hann fingur á milli röra í miðstöðvarofninum. Mamma átti í heilmiklu basli við að losa hann án þess að vekja of mikla athuguli og önnur jólin hvarf hann úr kapellunni strax eftir messuna. Fannst hann svo heima byrjaður að opna pakkana! Það var auðvitað heilmikið mál að finna út hver áttir hvað og frá hverjum hver pakki var.
Uppskriftin sem að fylgir hér að neðan er af ananasfrómas. Mamma er alltaf með hann í eftirrétt á eftir hamborgarhryggnum og svo fyrstu jólin okkar Jónasar saman tilkynnti hann að einu mætti ekki hnika í jólamatnum það væri eftirréttinum - ananasfrómas! Þar var ég komin í hring og kann bara mjög vel við hann.
5 egg
250gr sykur
10-12 matarlím
1dós ananas (stór)
½ l rjómi
Sítrónusafi.
Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Þeytið egg og sykur saman í ljósa froðu. Bætið söxuðum ananasnum samanvið. Bræðið matarlímið í sítrónusafanum og hellið rólega saman við. Hrærið í á meðan svo matarlímið fari ekki í kekki. Þeytið rjómann og blandið honum varlega saman við með sleif ásamt 1 dl af safanum úr ananasdósinni. Setjið í skál og látið stífna í kæli í nokkra klukkutíma. Skreytið svo með t.d. ananasbitum /hringjum og/eða rjóma.
Lesendum þessa pistils og öðrum landsmönnum óska ég svo góðra og gleðilegra jóla.
Ásgerður K. Gylfadóttir




Skrifa athugasemd