Jólagestir
Soffía Auður
Soffía Auður
Sigríður Þórunn dóttir Soffíu að borða roscón.
Mynd 1 af 2
1 2

07.12.2007 Jólagestir

Appelsínujól

Jólagestur okkar 7. desember er Soffía Auður Birgisdóttir

Mig langar að segja ykkur frá jólahátíðinni í Andalúsíu á Spáni því þar bjuggum við fjölskyldan einn vetur, nánar tiltekið veturinn 2003-4. Þegar leið að jólum í Sevilla, þar sem við bjuggum, var ekki margt sem minnti á jólin eins og við þekktum þau. Nóvember er uppskerutími appelsína á Spáni. Appelsínutré eru út um allt, við umferðargötur eru ýmist appelsínutré eða pálmar. Það var skemmtileg tilbreyting að ganga undir drjúpandi appelsínuklösum á ferð sinni um göturnar í stað þess af ösla slabbið og reyna að skýla sér fyrir vindi. Appelsínurnar voru síðan seldar í kílóavís, þrjú kíló boðin á eina evru og við fórum í gegnum mörg kíló á viku enda nýkreistur appelsínusafi algjört lostæti í morgunsárið.

Í desember skein sólin glatt og hlýtt var úti eins og á góðu íslensku vori. Það var dálítið skrýtið að horfa á jólaskreytingarnar sem hengdar voru yfir flestar götur og stirndi á yfir appelsínutrjánum. Aðal jólaskreytingarnar voru hins vegar í formi fjárhúsa sem voru múruð upp hér og þar um bæinn þar sem hinni heilögu fjölskyldu var stillt upp - jafnvel í bland við lifandi dýr (lömb og hænur). Í öllum hverfum mátti sjá svona fjárhús á torgum og alls staðar voru hverfiskórar að syngja jólalög við sömu torg.

Í Sevilla eru það María, Jósef og Jesú sem alls staðar er skreyta búðarglugga en fátítt að sjá jólasveina. Sums staðar mátti einnig sjá erkiengilinn Gabríel, sem og asna og nautgrip sem ku hafa verið viðstaddir hina heilögu fæðingu. Að sjálfsögðu festum við líka kaup á einni heilagari fjölskyldu, ásamt nautgrip, asna og erkiengli úr leir sem við stilltum upp í stofunni og reyndar er þetta aðaljólaskrautið á heimili okkar í dag. En það var dálítið erfitt að koma sér í jólaskap í sólinni, hitanum og appelsínuilminum... Ég er ekki frá því að stemmingin hafi komið með lyktinni sem fyllti íbúðina þegar við kveiktum undir hangikjötinu sem Kolbeinn sonurinn minn kom með frá Íslandi þegar hann kom til okkar í jólafríinu sínu.

Á Íslandi segjum við gjarnan að jólin séu hátíð barnanna en á Spáni er það þrettándinn sem er hátíðisdagur barnanna og þau bíða öll eftir í ofvæni. Þetta er dagurinn þegar "los reyes magos" (töfrakóngarnir, bókstaflega) koma í bæinn með gjafir sínar. Þeir gefa ekki lengur gull, reykelsi og myrru (og vonandi ekki bull, ergelsi og firru) heldur alls konar nútímaleikföng sem þeir hafa eflaust tekið upp eftir jólasveininum. Þessir kappar heita Kaspar, Melkíor og Baltasar (börnin rugluðust stundum og kölluðu þá: Kasper, Jesper og Jónatann. Þó var best þegar Árni Birgir mismælti sig og sagði "Hafnfirðingarnir þrír" og þegar allir fóru að hlæja leiðrétti hann sig í snatri: "Ég meinti vitfirringarnir þrír" - og skildi ekkert í því af hverju allir hlógu ennþá hærra!)

Reyndar eru aðalhátíðarhöldin daginn fyrir þrettándann því þá eru miklar skrúðgöngur og skrautsýningar haldnar í öllum bæjum og borgum Spánar þar sem fulltrúar vitringanna fara um götur ásamt fríðu föruneyti og trommuslætti og lúðrablæstri og láta brjóstsykursmolum (sem þeir kalla "caramellos") bókstaflega rigna yfir vegfarendur. Það eru víst mörg tonn af þessum molum sem kastað er yfir lýðinn sem safnar þeim saman af miklu kappi. Þótt sælgætið sé innpakkað fer ekki hjá því að stigið sé á það og göturnar eru eitt sykurklístur þegar gangan er farin hjá. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvort þau systkin Sigríður Þórunn og Árni Birgir hafi ekki haft gaman af - þau höfðu sjaldan upplifað aðra eins dásemd og söfnuðu af miklu kappi í poka sína.

Skrúðgangan í Sevilla hófst klukkan fimm um eftirmiðdaginn og stóð yfir í 5-6 klukkustundir. Hún fer um allan bæinn svo allir fái litið dýrðina augum. Um kvöldið hefst svo undirbúningur komu þeirra á heimili bæjarbúa því líkt og frændi þeirra jólasveinninn koma þeir að næturlagi inn á heimilin og skilja eftir sig gjafir. En þeir vilja fá eitthvað fyrir sinn snúð, enda þreyttir og svangir eftir langt ferðalag á kameldýrum. Það er því lagt á borð fyrir þá: vín, brauð og ávextir og ekki má gleyma að skilja eftir nóg af vatni handa kameldýrunum. Sigga og Árni Birgir tóku þetta afar alvarlega, lögðu fallega á borð með servíettum, teiknuðu mynd handa vitringunum og pössuðu að setja stóra vatnsskál á borðið (fyrir kameldýrin). Um morguninn þegar þau vöknuðu sáu þau greinilega að kapparnir höfðu komið við og fengið sér að snæða, enda skildu þeir eftir gjafir. Það sem meira var: Þegar Árni Birgir rumskaði um nóttina og fór inn til pabba og mömmu sá hann að ljós var í stofunni og þótt hann þyrði ekki alla leið þá sá hann glitta í einn vitringinn!

Með þessu lýkur sem sagt jólunum hér í Sevilla og það var gaman að upplifa öðru vísi jól einu sinni, þótt íslensk jól standi alltaf fyrir sínu.

Roscón de reyes

Hér fylgir með uppskrift af roscón de reyes (hringur vitringanna) sem er hveitihringur með ávöxtum sem venja er að borða á þrettándanum. Inn í kringluna á að setja litla gjöf (eitthvað sem má bakast með) - sá er heppinn sem hana hlýtur.

400 gr. hveiti
3 egg + 1 eggjarauða
100 gr. smjör
100 gr. sykur
1 tsk. lyftiduft
¼ l. mjólk
rifinn sítrónubörkur
ávextir og flórsykur til skreytingar
roscón-gjöf

Leysið lyftiduftið upp í nokkrum skeiðum af mjólkinni og blandið ¼ af hveitinu saman og hnoðið í mjúka kúlu. Breiðið yfir kúluna klút og látið hefast þar til deigið hefur tvöfaldast að stærð. Blandið saman þremur eggjunum, restinni af hveitinu og mjólkinni, sykrinum, smjörinu og rifna sítrónuberkinum og hnoðið vel saman. Hnoðið síðan báðum deigkúlunum saman og geymið undir klút á hlýjum stað í ca. 2 tíma. Þá er deigið hnoðað enn á ný og mótaður hringur sem er skreyttur með ávöxtunum (t.d. þurrkuðum eða sykruðum eða kokteilberjum o.s.frv.) og síðan penslaður með eggjarauðu. Síðast er flórsykri dreift yfir hringinn og hann bakaður í 15-20 mínútur við 160 gráður. Sumir kljúfa hringinn og setja þeyttan rjóma inn í en einnig má bara borða hann beint úr ofninum - og passa tennurnar ef roscón-gjöfin er hörð!

Soffía Auður Birgisdóttir, verkefnastjóri á Háskólasetrinu í Nýheimum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica