Kannaballið og jólakötturinn
Jólagestur okkar 6. desember er Gísli EInarsson
Það sem mér finnst standa uppúr í minningunni um bernskujólin er ?kannaballið? en það var þegar hermennirnir á Stokksnesi buðu krökkunum á Höfn á jólatréskemmtun, eftirminnilegast eru teiknimyndirnar með Andrés Önd og fleiri fígúrum, en á þeim árum var mjög lítið barnaefni í sjónvarpinu. Annað sem er ansi ofarlega í minningunni er þegar ég sá jólaköttinn, vorum við, mamma, pabbi og Jóna á labbi að kvöldlagi (allavega var myrkur) inn Litli-brú og fyrir framan okkur hljóp köttur og var ég harður á að þetta væri jólakötturinn, hef ég sennileg verið 5 til 6 ára þegar þetta var. Jólatréð var og er skreytt á Þorláksmessu og hlustað á jólakveðjurnar á rás 1, jólakveðjurnar finnst mér vera ótvírætt merki þess að jólin séu að koma.
Ég er hef gaman af að skreyta húsið og garðinn með jólaseríum og hafði það af að vinna jólaskreytingakeppnina hér í Hrísey fyrir tveimur árum, byrja ég á þessu seríustandi seinni hluta nóvember og er að tína þær upp langt fram í desember.
Kirkjuferðum átti ég ekki að venjast í æsku en eftir að ég fór á búa þá hef ég flest jól farið í aftansöng á aðfangadag. Aðra helgi í aðventu er kveikt á ljóskrossum í kirkjugarðinum og reynir fjölskyldan að vera þar.
Varðandi mat um jólin er ekki föst hefð í þeim efnum heldur breitt aðeins til en oft vill það verða reykt svínakjöt á aðfangadag og að sjálfsögðu hangikjöt og laufabrauð á jóladag. Alltaf finnst mér smákökurnar bestar þegar maður nær að stelast í kökubaukanna fyrir jól og hefur það ekkert breyst frá því í æsku.
Annað sem er stór þáttur í jólahaldi hjá mér er flugeldasala fyrir björgunarsveitina en ég hef haldið utan um hana í mörg undanfarin ár, strax á annan í jólum er farið að vinna í flugeldum og er verið að meira og minna langt fram eftir gamlársdegi.
Á aðventunni 2006 þá fór fjölskyldan austur í Mývatnsveit að hitta jólasveinanna í Dimmuborgum, vorum við heppin með veður, bjart yfir, logn og -15°frost, er þetta mjög skemmtileg nýbreytni í undirbúningi jólanna og mæli ég með svona ferð í Mývatnsveit á aðventunni. Er stefnt að því að fara aftur í ár.
Og þá er það uppskriftin, núna verð ég að leit á náðir konunnar, ég er voða lítið fyrir bakstur, finnst betra að borða afraksturinn og þessar eru alveg ágætar,
Ameríski draumurinn
330 gr. hveiti
160 gr. haframjöl
310 gr. sykur
120 gr. rúsínur
170 gr.smjörlíki
¾ tsk. matarsóti
2 stk. egg
Setjið allt saman í skál og vinnið vel saman með káinu, látið deigið aðeins standa, gerið kúlur og setjið á plötu með smjörpappír. Bakið við 180° í 11-13 mínútur.
Megi allir eiga gleðileg jól
Jólakveðja
Gísli Einarsson




Skrifa athugasemd