Jólagestir
Pálmi Guðmundsson
Pálmi Guðmundsson
Pálmi Guðmundsson

03.12.2007 Jólagestir

Tímaleysi og minningarbrot úr bernsku

Hvað var ég nú eiginlega að taka að mér? Oh, afhverju sagði ég ekki bara nei, því miður er ég svo upptekinn? Ég kunni ekki við að segja nei við hana Júlíu, þegar hún bað mig svona fallega að vera jólagestur á hornafjordur.is. Næstu dagar liðu án þess að ég kæmi mér að skriftum, var eiginlega búinn að gleyma þessu þegar ég mætti samstarfskonu minni í Nettó í eitt skiptið (henni Dísu Imsland), ó.... ég var búinn að lofa mömmu hennar að skrifa niður einhver minningarbrot frá liðnum jólum í lífi mínu. Ég leiddi hugann að því, hvort það væri ekki ennþá verra að segja já en standa síðan ekki við gefið loforð. Ja... það væri nú þokkalegt að byrja aðventuna með svona ókristilegri framkomu. Nei!, þetta gengur ekki, ég verð að einhenda mér í þetta í kvöld þegar ég kem heim úr vinnunni, ekkert mál.

Eftir matinn þegar ég ætlaði að setjast niður við skriftir þá kom í ljós að danski spennuþátturinn, sem ég mátti alls ekki missa af, var að byrja í sjónvarpinu. Ella mín ég verð að sjá þennan þátt hann er svo spennandi, síðan dríf ég bara í þessu á eftir þetta tekur bara nokkrar mínútur.? Eiginkonan horfði á mig mæðuleg á svip og sagði "jæja góði minn, einmitt það." Ekki batnaði líðan mín við þessar móttökur og samviskubitið hélt áfram að naga mig að innan meðan ég fylgdist með danska spennuþættinum. Þegar ég settist loksins niður eftir þáttinn til að hripa niður einhver minningarbrot frá jólum úr bernsku velti ég fyrir mér, skyldi ég nokkuð hafa tíma fyrir jólin?

Minningin um jólin úr bernsku í fæðingarbæ mínum Borgarnesi, kalla fram ljúfar og góðar tilfinningar. Ég man að móðir mín var ekki í vandræðum með jólaundirbúninginn, allt hvítskúrað og bónað innanhúss, jólafötin mín heimasaumuð og mikið bakað af smákökum, tertum, heimalöguðum ís ofl. Faðir minn sem upphaflega lærði bakaraiðn, sá um að fletja út og steikja laufabrauðið, skreyta tertur og skrifa yfir hundrað jólakort til vina og vandamanna, að öðru leyti sá móðir mín að mestu um jólaundirbúningin. Ég og systir mín hjálpuðum til við að skreyta jólatréð. Jólamaturinn var hefðbundinn, hamborgarhryggur á aðfangadagskvöld og hangikjöt og reykt nautatunga á jóladag. Spenningurinn á aðfangadag var mikill, annars vegar keppnin um hver fengi möndlugjöfina og hins vegar erfið bið þar til leyfi fékkst til að opna pakkana. Við áttum stóra fjölskyldu í Borgarnesi, afa og ömmur, fimm föðurbræður, tvo móðurbræður og fjölskyldur þeirra, mikið af börnum á ýmsum aldri. Jólaboðin hjá afa og ömmu og Önnu frænku (ömmusystir) voru fastir liðir hjá stórfjölskyldunni og þar var nú þétt setið því híbýli þeirra voru ekki stór og erfitt að ímynda sér í dag hvernig hægt var að koma öllum fyrir. Minningin um afa og ömmu, sem fallin eru frá fyrir löngu síðan í þessum jólaboðum bernskunnar er ógleymanleg, væntumþykja þeirra, þolinmæði og umhyggja fyrir barnabörnunum var einstök og gott veganesti fyrir lífið. Þau höfðu alltaf nægan tíma.

Nú nokkrum áratugum síðar, stöndum við "gömlu hjónin" á Lækjarbrekku í sporum afa og ömmu með stækkandi hóp yndislegra barnabarna. Á þeim tímamótum er hollt að staldra við, hugsa til þess hve tíminn sem við eigum saman með fjölskyldunni um jólin er dýrmætur.

Munum að gefa okkur tíma til að njóta jólanna í faðmi fjölskyldunnar........ Lifið heil.

- Pálmi Guðmundsson, Lækjarbrekku

 

Lifrarkæfa Ellu

1 kg svínalifur

400 gr spekk

100 gr beikon

1 stór laukur

Hráefnið að ofan er hakkað tvisvar sinnum í hakkavél

150 gr smjörlíki

175 gr hveiti

8 dl mjólk

4 eggjarauður

4 stífþeyttar eggjahvítur

5-6 msk salt

1 msk negull

slatti pipar

Búið til jafning, lifrarmaukið sett saman við ásamt eggjarauðunum, má ekki sjóða. Kryddað og smakkið til. Að lokum eru þeyttu eggjahvítunum hrært varlega saman, sett í form og fryst.

Tekið fram eftir þörfum og bakað í vatnsbaði í 175 gr í ca 60 mín. Borðið kæfuna heita með steiktum sveppum, beikoni, asíum og góðu brauði. Hún er líka góð köld.

Njótið vel.

 

 

 


 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica