Jólagestir
Hólmgrímur E. Bragason
Hólmgrímur E. Bragason
Hólmgrímur E. Bragason

25.12.2006 Jólagestir

Ástríkur Gallvaski oft upp úr jólapökkunum

Jólagestur okkar á jóladag er Hólmgrímur E. Bragason

Þegar ég lýt til baka og minnist jólanna frá æskuárum mínum hlýnar mér um hjartarætur. Ég er einn af þeim heppnu sem hef fengið að njóta þeirra forréttinda að tilheyra kærleiksríkri fjölskyldu. Ég ólst upp á Snæfellsnesi, nánar tiltekið á Rifi og Hellissandi. Þar stundaði faðir minn sjóinn og móðir mín vann hin ýmsu verkamannastörf auk þess að sjá um heimilið. Við erum þrír bræðurnir og þegar ég hugsa til jólanna okkar dettur mér fyrst í hug þeir siðir sem litla fjölskyldan tileinkaði sér og gerði að sínum. Jólin hófust á Þorláksmessu þegar pabbi var sendur út í bæ til þess að gæða sér á vestfirskri skötu. Notuðum við hin tækifærið og gæddum okkur á sérvöldu lambaketi sem ávallt bragðaðist einstaklega vel. Ég man það að einu sinni var reynt að hafa skötu á Þorláksmessu heima og boðið var góðum gestum. Það var aldrei reynt aftur þar sem ég skilaði henni sömu leið og hún kom yfir allt og alla sem þarna voru í sínu fínasta pússi.

Ég get enn þann dag í dag fundið lyktina af karli föður mínum þegar hann kom til baka lyktandi eins og amoníak tunna. Seinna það kvöld þegar mesta lyktin var farin af pabba var jólatréð skreytt og voru það við bræður sem sáum um það með dyggri hjálp foreldra okkar.

Á þessum árum tíðkaðist það að íslenskir netabátar fiskuðu í siglingu eins og svo var nefnt. Það sem um er rætt þekkja Hornfirðingar vel eins og aðrir íslendingar sem alist hafa upp í sjávarplássi úti á landi. Sigldu skipin oft á Þýskaland, Belgíu og Bretland man ég. Höfðu þessar siglingar mikil áhrif á það hvernig fjölskylda mín hélt heilög jól.

Þegar aðfangadagur nálgaðist var einmitt farið í kistuna og tekin fram þýskur gæðagrís sem snæddur var á aðfangadag. Var það nær undantekningarlaust jólamaturinn á borðum minnar fjölskyldu fyrir utan eitt skipti sem móðir mín fékk sendar dýrindis norðlenskar rjúpur frá systur sinni og manni hennar á Húsavík. Það er skemmst frá því að segja að við bræðurnir nörtuðum í rjúpurnar af okkar alkunnu kurteisi en um leið og stigið var upp frá borðum báðum við móður okkar vinsamlegast að vera ekkert að ónáða Halldóru frænku og Helga með rjúpur í framtíðinni og báðum um okkar þýska grís. Meine mutter! Einen gris aus frystenkisten Bitte!

Þótt mér finnist rjúpur í dag gómsætar sýnir þetta okkur hvað börn eru fastheldin.

Meðlætið var klassískt auk þess að oft var boðið upp á niðursoðna ávexti sem tilheyrðu erlenda góssinu úr siglinum föður míns. Þegar búið var að borða var það hlutverk okkar karlmannanna að ganga frá. Fékk móðir mín þá afar sanngjarna hvíld og gat látið líða úr sér mestu þreytuna eftir stússið í eldhúsinu.

Þegar eldhúsið var hreint var sest niður og öll jólakortin lesin áður en pakkarnir voru opnaðir. Ég man það eins og það hefði gerst í gær hvað pabbi var lengi að lesa þessi blessuðu kort. Ég var lengi viss um það að hann kynni bara ekki almennilega að lesa.
.
Ávallt voru gefnar bækur og kom Ástríkur Gallvaski oft upp úr jólapökkunum. Ég gerði mér ekki grein fyrir því þá en sé það núna að ástæðan var sú að Ástríkur var í miklu uppáhaldi hjá pabba og fór hann oft afsíðis með Ástrík og heyrðum við hlátur rokurnar í honum fram eftir kvöldi.

Fjölskylda mín spilaði mikið yfir jólin. Oft spiluðum við langt fram eftir nóttu og fórum ekki á fætur fyrr en seint næsta dag.

Það sem stendur upp úr frá æsku jólum mínum er sá mikli tími sem við eyddum saman við að gera ýmislegt skemmtileg. Við bjuggum á stað þar sem engir aðrir úr okkar fjölskyldu bjuggu svo ekki voru það jólaboðin sem þvældust fyrir okkur. Ég bý enn að þessum tíma enda eru jólin fyrst og fremst tími fjölskyldunnar og barnanna.

Jólin eru tími kærleiks og friðar, nándar og snertingar, elsku og hvíldar. Það er einmitt kjarni jólaboðskaparins. Jesúbarnið kemur í heiminn til þess að frelsa okkur mennina frá okkur sjálfum. Kristur boðaði og kenndi um kærleikann og ást Drottins til okkar allra.

Sá sem kann að dvelja í tímanum og nýtur þess að vera með sínum nánustu er í góðum málum. Hann þekkir friðinn og ástina sem svo sannarlega er frá Guði komin.

Mig langar að gefa ykkur óvenjulega uppskrift þetta árið og vona að þið kunnið að meta hana.

Uppskrift að kærleiksríkri fjölskyldu og einstaklings jólahátíð

Kærleikur (magn ótakmarkað)
Nánd (magn ótakmarkað)
Fyrirgefningin (magn ótakmarkað)
Gleði (magn ótakmarkað, munum það að það vera glaður er ákvörðun)
Húmör (magn ótakmarkað)
Snerting (magn ótakmarkað)
Hvíld (eftir þörfum)

Góður Guð gefi ykkur öllum kærleiksríka jólahátíð

Hólmgrímur Elís Bragason



Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica