Gleymum ekki Jesú
Jólagestur okkar 24. desember Matthildur Þorsteinsdóttir
Hugurinn reikar heim á Norðurbraut 10 til mömmu og pabba. Þar áttum við systurnar alltaf friðsæl og kærleiksrík jól og eigum enn. Ég man að ég og Anna systir fengum tuskur og skál með Ajaxblönduðu vatni inn í herbergið okkar í kringum 10. desember. Við drifum í að þrífa glugga og hillur, og allt sem þoldi vatn var dýft miskunnarlaust ofan í sápuvatnið. Ég myndi segja að Ajax kæmi næst á eftir mandarínum og greni... hvað jólalyktina varðar. Svo man ég eftir þessari árlegu baráttu við jólaseríurnar. Fyrst var að leysa þessar endalausu flækjur og svo að stinga í samband. Ef einhverjar perur voru bilaðar þá voru þær ?skrúfaðar? úr og brunað í kaupfélagið til að kaupa nýjar.
Þorláksmessa var alltaf spennandi. Þá var allt húsið skreytt hátt og lágt. Þegar húsið var orðið fínt þá var jólatréð sótt inn í geymslu og allt skrautið á það. Mörgu af því, sem og trénu, hafði pabbi hafði bjargað eftir að við flúðum úr Eyjagosinu og mér hlýnar enn um hjartaræturnar við að skoða þetta skraut. Þegar tréð var komið upp, fengum við að raða öllum pökkunum undir það. Síðan voru seríurnar teknar úr sambandi og ekki var kveikt á trénu fyrr en á aðfangadagsmorgni.
Pabbi og mamma voru dugleg að fara með okkur á rúntinn, á skauta eða að renna til að dreifa huga okkar. Í minningunni voru oftast hvít jól á Hornafirði og er snjórinn kærkominn vinur um vetrartímann hjá mér og fjölskyldu minni.
Ég man líka eftir kassa af appelsíni og kók í gleri á bakvið eldhúshurðina og malt í lítra tali var auðvitað keypt líka.
Desember mánuður er fyrir mér einn skemmtilegasti mánuður ársins. Ég nýt þess að vera með börnunum mínum, sækja samkomur og hitta vini og kunningja. Fyrst og fremst þakka ég Drottni mínum fyrir hvern þann dag sem ég fæ að njóta með Honum, fjölskyldu minni og samferðarfólki allt árið í kring. Hjá mér eru eiginlega alltaf jólin, því að Jesú heimsækir mig ekki aðeins þann 24. desember heldur alla daga ársins.
Gleymum ekki Jesú, elsku vinir, mitt í öllum jóla undirbúningnum. Leyfum honum að dýfa hjarta okkar í Ajaxblandað vatn fyrir jólin. Það er oft nauðsynlegt að taka til í okkar andlega lífi ekki síður en að hreinsa hús okkar hátt og lágt. Jesú hefur miklu meiri áhuga á hreinu hjarta þínu en hvítbónuðu eldhúsgólfi og garði fullum að jólaljósum.
Með kærri jólakveðju Matta.
Rommkúlu ÍS
2 eggjarauður
2 heil egg
125 gr sykur
1/2 l rjómi
200-250 rommkúlur
Sykur, eggjarauður og egg þeytt saman þar til það er ljóst og létt. Þá er stífþeyttum rjómanum bætt í ásamt muldum rommkúlum. Blandað varlega saman, sett í hringlaga form og fryst í a.m.k. 4 klst.
Uppskriftin er frá Kristínu og tekin úr uppskriftabók Samkórsins




Skrifa athugasemd