Auðvita hélt maður þá að hvergi á jarðríki væri jafn jólalegt eins og á Höfn
Jólagestur okkar 21. desember er Ingibjörg Gísladóttir
Það er fátt sem lifir jafnlengi og vel i endurminningunum eins og jólaundirbúningurinn, aðventan og auðvita jólin,þegar ég var að alast upp á Höfn. Auðvita hélt maður þá að hvergi á jarðríki væri jafn jólalegt eins og á Höfn,og vorkenndi ég öllum þeim sem ekki nutu þeirra gæfu að búa á Höfn i desember. Þeir höfðu ekki ljósadýrðina hjá Unnsteini Guðmunds og því síður mastrið fyrir innan hæð því þegar var búið að kveikja á ljósunum þar þá vissi maður að jólin voru i nánd. Jólaundirbúningur í Björk var með hefðbundnum hætti mamma bakaði kynstrin öll af smákökum, tertum og lagkökum, saumaði kjóla fram eftir kvöldum og pabbi sá um að draga i búið epli, appelsínur, malt og aðra gosdrykki. Í endurminningunni var allt þetta keypt i kassavís nema þegar fyrst voru keyptar perur til jólanna, sennilega hafa þær verið dýrar enda bara keyptur hálfur kassi. En mikið var erfitt að láta þær i friði, enda tíðar ferðir niður i bílskúr þar til maginn sagði stopp.
Á Þorláksmessukvöld kom pabbi jólatrénu fyrir og bjöllu-seríunni og síðan var skreytt og skreytt.
Kl 18.00 á aðfangadagskvöld voru svo ALLIR ALLTAF tilbúnir, og þegar klukkurnar i útvarpinu hringdu inn hátíðina var kveikt á jólatrénu, allir kysstust og óskuðu gleðilegra jóla. Þá var komið að því að mamma færi í eldhúsið og pabbi settist með jólakortin inn í stofu opnaði og las. Síðan liðu jólin með áti, gjöfum, spilum og leikjum.
Allmörg ár eru síðan ég hef eytt jólum á Höfn og síðustu 18 jólahátíðir hef ég dvalið erlendis nánar tiltekið í Svíþjóð.
Alltaf ætlaði ég að halda íslensk jól, en svo bregðast krosstré sem önnur tré og auðvita hafa læðst inn sænskir siðir hjá okkur og er það bara af hinu góða.
Aðventan hér í Gautaborg er skemmtileg eða mysig eins og Svíinn segir. Lucian setur mikinn svip á aðventuna byrjað er strax i byrjun desember að velja luciur og þann 13 er svo luciudagurinn og byrjar þá dagurinn bæði í skólum, vinnustöðum, heimilum, sjúkrahúsum og lengi mætti telja með söng, glöggi, piparkökum og luciuköttum sem eru bollur með saffran og rúsínum.
Nú halda kannski margir landar mínir að Svíar byrji daginn með áfengisdrykkju en hér er jafnmikið drukkið af óáfengri glögg sem áfengri.
Það má segja að það haldist í hendur 1. í aðventu fyllast allir gluggar á öllum heimilum af aðventustjökum og fyrsti glöggbollinn drukkinn.
Ég held ennþá mínum matarhefðum frá Íslandi að mestu, hamborgarhryggur á aðfangadagskvöld og er það orðin hefð að fara yfir til Danmerkur með barnabörnin gera sér glaðan dag og sækja kjetið.
Hangikjötið kaupir maður þegar maður á leið til Íslands sem er svo borðað á jóladag með fjölskyldunni eftir íslenska guðsþjónustu hér i Gautaborg.
Síðan á annan í jólum er sænska jólaborðið dregið fram gjarnan með vinum og fjölskyldu
Það væri synd að segja um Svíann að hann væri of kristilega sinnaður og þess má geta að jólin hér í Svíþjóð byrja þegar að Andrés Önd byrjar kl. 15.00 í sjónvarpinu.
Ekki fannst mér þetta nú eiga við í fyrstu, en eftir að barnabörnin komu eitt af öðru þá er þetta líka orðin einskonar hefð, en alvöru jólin koma hér ennþá kl. 18.00
Ég vil óska öllum Hornfirðingum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.
Ingibjörg Gísladóttir úr Björk (núna Bogaslóð 20)
Hér kemur uppskrift af ístertunni hennar mömmu.
Sem er líka hefð.
Hvað eru jólin annað en hefð.
4 eggjahvítur stífþeyttar
140 gr flórsykur hrærður í hvíturnar
140 gr kókosmjöl
bakað við vægan hita.
Kremið
4 eggjarauður
100gr flórsykur
100 gr smjör (tæplega)
100 gr suðusúkkulaði.
60 gr af flórsykrinum hrært með rauðunum. Súkkulaðið brætt yfir gufu.
Smjörið sett í ,kælt ,flórsykur hrærður þar í
Flórsykurinn með eggjarauðunum hrærður létt út í .
Sett á kaldan tertubotninn
Frystur þeyttur rjómi
Verði ykkur að góðu




Skrifa athugasemd