Jólagestir
María Gísladóttir
María Gísladóttir
María Gísladóttir

17.12.2006 Jólagestir

Að skapa sínar eigin hefðir fyrir fjölskylduna er mikilvægur þáttur í jólahaldinu.

Jólagestur okkar 17. desember er María Gísladóttir

Jól í Kanada

Við komumst að því í minni fjölskyldu þegar við bjuggum í Nova Scotia, Kanada, hvað maður er tilbúinn að leggja mikið á sig til að halda jól að íslenskum sið. Til þess að sýna lit og jákvæðni reyndum við þó fyrst þetta með kalkúninn en það gekk bara alls ekki upp hjá okkur. Þegar það þótti fullreynt að kalkúni væri ekki gjaldgengur sem jólamatur hjá okkur varð að taka til annarra ráða. Það var mjög strangt eftirlit með allri matvöru sem flutt var til Kanda á þessum tíma vegna gin og klaufaveiki, kúariðu eða öðrum sjúkdómum sem herjuðu á svín og nautgripi í evrópu. Það skipti engu máli þótt kjötið væri reykt, vakúmpakkað og frá Íslandi, allt slíkt var fjarlægt úr farangri og pökkum umsvifalaust. Það var meira að segja gert veður út af franskri gæsalifur í niðursuðudós sem við fengum þó að taka með inn í landið eftir töluvert mas og múður.

Næsta skref hjá okkur var að hafa upp á þýskættuðum kjöverkendum í Halifax og fengum þá til að reykja fyrir okkur sérskorinn hamborgarhrygg að íslenskum sið en það tókst ekki með nokkru móti að ná fram rétta bragðinu. Eftir að hafa gert tilraunir með bæði kalkún og þarlendan hamborgarhrygg sem hvorugt gekk upp var ákveðið að reyna að bjarga jólunum með því að gerast smyglarar.
Við komumst í samband við starfsmenn Eimskipafélags Íslands í Bandaríkjunum og með þeirra hjálp gátum við fengið sendingu frá Íslandi með skipi sem var í millilandaflutningum og landaði meðal annars í næsta bæ við okkur á Nova Scotia. Það gekk hins vegar ekki að láta tollskoða varninginn þannig að menn úr áhöfninni gerðu okkur þann stóra greiða að henda honum í land á meðan skipið var enn á ferð áður en það lagðist að bryggju. Það var svo okkar vandamál að reyna að grípa góssið með háfum og höndum og litlu munaði að sumt endaði í sjónum. En þetta tókst á endanum og við gátum haldið okkar íslensku jól með hangikjöti, hamborgarhrygg, malti, apelsíni og Ora grænum baunum.
Að skapa sínar eigin hefðir fyrir fjölskylduna er mikilvægur þáttur í jólahaldinu. Eftir að við fluttum aftur heim höfum við reynt að nýta það góða sem við höfum lært annars staðar og tileinkað okkur sumar af þeim hefðum erlendis frá sem okkur líkar. Reykta álinn lærðum við að meta þegar við bjuggum í Danmörku, sætu kartöflurnar smökkuðum við fyrst í Kanada en þar eru þær ómissandi með kalkúninum. Annað sem hefur orðið ómissandi í jóla og áramótahaldi okkar er að horfa á ?90 ára afmælið? á gamlárskvöld. Þessi bráðskemmtilega stuttmynd var alltaf sýnd á gamlárskvöld í Danmörku og þann sið tókum við með okkur heim og finnst hann alveg ómissandi. Skjávarpið hér á Höfn hefur síðan tekið hann upp með okkur og sýnt myndina tvö síðustu áramót rétt fyrir áramótaskaupið og ætlar að gera það aftur í ár og vonandi á hverju ári þannig að þetta verði fastur liður í jóla og áramótahaldi á Höfn. Ég vona að sem flestir gefi sér tíma til að horfa með okkur í ár.

Óskir til allra um gleðileg jól og áramót frá fjölskyldunni á Austurbraut 13.

Chili og papriku sulta.

11 rauðir Chilipiprar 5 ? 10 cm (15 stk. ef þeir eru stærri)
3 rauðar frekar stórar paprikur
2.5dl borðedik
1 kg. sykur
3 tsk. Sultuhleypir (rauður melatín)

Kjarnhreinsa chilipipar (nota þunna einnota hanska þegar chili er handfjatlað og ekki nudda augun) og papriku.
Mauka vel saman í matvinnsluvél eða blandara, setja í pott með sykri og borðediki.
Hita allt saman og sjóða í 12 til 15 mín.
Setja sultuhleypi í, 1 tsk. í einu og hræra á milli.
Ekki sjóða of lengi þá verður sultan of þykk.

Kæla svolítið niður og hella á krukkur.
Mjög gott með osti, grillkjöti, út í sósur ofl.

Bon appetit.






Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica