Jól í Sól
Jólagestur okkar 16. desember Birna Jensdóttir
Það var sumarið 99 sem mér datt í hug að við skyldum breyta til og fara til Kanaríeyja um jólin. Ég var búin að heyra að það væri einfaldlega svo ljúft þar um jólin,við vorum búin að vera þar á öðrum tíma. Síðan var það í ágúst að þetta var ákveðið og allir sáttir við að prufa. Við fórum 17desember og komum heim 3. janúar. Við vorum hræddust við að vera þarna úti yfir áramótin 99-2000 út af öllu því ógurlega sem átti að geta skeð þá. Tíminn leið, það var komin aðventa og við á fullu við að hreingera, kaupa gjafir og skrifa jólakort. Allt átti að vera klárt þó að við yrðum ekki heima. En ég sleppti samt að baka og skreyta. Senn leið að brottför og stundum nagaði efinn okkur:,,vorum við kannski að fara þarna út og svo yrðu engin jól? ÚFF þetta var dálítið erfitt. Og svona til vara þá pakkaði ég niður nokkrum jólapökkum, fallegum jóladúk, kertastjaka og geisladisk með fallegum jólalögum, þar á meðal Heims um Ból. Stelpurnar voru með geislaspilara meðferðis eins og venjulega ef við brugðum okkur út af bæ. Farið var á flugvöllinn tímanlega til að versla ef eitthvað væri sem okkur vantaði.
Ég fór í Íslenskan markað og verslaði heil ósköp af mat sem við gætum tekið með okkur ef ekki væri til ætur kjaftbiti á Kanaríeyjum. Ég keypti lambalærissneiðar sem ég gæti steikt á pönnu, því ekki eru steikarofnar eða mikið af mataráhöldum og borðbúnaði í íbúðarhótelunum þarna. Hangikjöt,harðfisk, flatkökur, Ora grænar og Ora rauðkál og það sem alls ekki mátti vanta en það var Egils malt og appelsín. Nú var okkur ekkert að vanbúnaði til að halda jól í útlandinu. Liðu fyrstu dagarnir mjög hratt og allt í einu var komin Þorláksmessa. Við notuðum hluta úr deginum til að keyra upp í fjöllin til að skoða okkur um, og enduðum á því að fara upp að úlfaldabúgarð sem þarna var, fengum okkur leigða úlfalda til að fara í smá útreiðartúr. Við fórum tvö og tvö á hvern úlfalda og sátum í mjög hallærislegum tréstólum sem festir voru á járngrind sem var í boga yfir bakið á úlfaldanum. Auðvitað þurftum við að spenna beltin og við komumst að því að ekki var vanþörf á því. Svo þegar úlfaldinn stóð upp og leiðsögumaðurinn sá hvernig stólarnir hölluðust hengdi hann sandpoka sem þyngdu þeim megin sem sá léttri sat. Síðan var taumurinn hnýttur í halann á þeim sem fór á undan(þrír í röð). Nú var loksins hægt að leggja af stað. Ég held að úlfaldarnir hafi verið mjög fúlir yfir þessu því þeir þurftu endilega að nudda sér utan í alla kaktusa sem þeir fundu á leiðinni. Sem betur fór fyrir lappirnar á okur var þetta ekki ýkja löng ferð. Við vorum alveg viss um að leiðsögumaðurinn hafi farið með okkur einn hring um ruslahaugana þarna á bænum (þannig var umhorfs þarna) Þegar þessari ferð lauk drifum við okkur í bæinn beint á Klöru bar svo ég gæti fengið mér skötu, rúgbrauð og hamsatólg að Íslenskum sið. Ég var sú eina af minni fjölskyldu sem sat þarna og naut skötunnar því hin vilja ekki borða skemmdan mat eins og þau orðuðu það mjög pent. Það var mjög fyndið að sitja þarna og horfa á allt fólkið sem fór fram hjá, það greip flest fyrir nefið og hraðaði sér burt. Enda var skötulyktin alveg yfirþyrmandi því búið var að afgreiða fleiri hundruð skötudiska á skömmum tíma. Þetta var yndislegt. Þegar að aðfangadagur rann upp bjartur og fagur þá vorum við búin að vera þarna í heila viku á stuttbuxum og ermalausum bol eins og sagt er og orðin brún og sælleg. Eftir hádegið ákváðum við að fara á ströndina. Vera stutt því við ætluðum að fara tímanlega upp í íbúð til að gera okkur klár fyrir jólin, en við gleymdum okkur í sólinni og sælunni, vorum svo afslöppuð að við gleymdum alveg hvaða dagur var. Núps!! Þetta var svolítið neyðarlegt þegar við rönkuðum við okkur. Og var aldeilis sprett úr spori svo við gætum verið komin upp í íbúð klukkan 6 til að hefja jólahaldið. Við rétt náðum því móð og másandi. Það var aldeilis hamagangur við að koma jólunum fyrir eins og mér fannst við vera að gera. Við höfðum tekið með okkur pínulítið rafmagnsjólatré og kveikt á því, og jólagjöfunum raðað í kring,dúkurinn settur á borðið, kertastjakinn með kertinu og kveikt á því. Og að lokum var settur jólageisladiskur í geislaspilarann þá hreinlega hrundu jólin yfir okkur og þetta var svo hátíðlegt. Þegar maturinn var búinn fengum við okkur auðvitað Nóa Síríus konfekt með kaffinu. Það vantaði ekkert upp á alíslensk jól nema kökurnar og hreina húsið mitt. Þar sem ég sat þarna í miklum makindum og var að hugsa um allt þetta jólastress á mér. : til hvers var ég að öllu þessu?? jólin kæmu hvort sem ég vildi það eða ekki. Það væri mitt að hleypa þeim inn, hvar sem ég væri í heiminum. eða við hvaða aðstæður sem væri. Næst þegar við fórum til Kanaríeyja um jól þá hafði ég þetta að leiðarljósi: engan mat meðferðis eða jóladót, bara góða skapið og væntumþykjuna til hvers annars, þá er allt fullkomið. .
Gleðileg Jól
Ómissandi um jólin hjá okkur:
Engiferkökur..
500gr. Hveiti
500gr. Dökkur púðursykur
250gr. Lint smjörlíki
2stk. Egg
1tsk. Lyftiduft
1tsk.matarsóti
2.tsk.engifer
1tsk.negull
1tsk.kanill
Hnoðað vel, búnar til litlar kúlur sett síðan á plötu og þrýst á þær létt með gafli svo á þær myndast rákir. Bakað við 200°C blástur.. Þar til að þið sjáið að þær séu tilbúnar.




Skrifa athugasemd