Brún randalín og þá eru komin jól
Jólagestur okkar 13. desember er Ragna Pétursdóttir
Ég hef alltaf verið talsvert jólabarn í mér og haft gaman að undirbúningi jólanna. Ég ólst upp við að allt var gert hreint úti sem inni fyrir jól, fjárhúsin voru extra vel sópuð fyrir jólahátíðina og allt sem mátti brenna var týnt til og safnað í áramótabrennu. Ég er einnig alin upp við að við systkinin vorum flest í heimavistaskóla og var alltaf mikil tilhlökkun að allir yrðu heima og þá var spilað á spil næstum á hverju kvöldi og t.d lærðum við eldri systkinin að spila Lomber og alltaf upp á gamlar krónur en einnig var oft spilað vist, kani og einnig ýmis önnur spil eins og kasína, rommý, marías. Þegar við vorum yngri var aldrei spilað á aðfangadagskvöld vegna gamallar hjátrúar sem var að. Það kæmi illur andi í spilin og tigulkonginn myndi fjölga í spilunum.
En eitt sinn var ákveðið að spila á afangadagskvöld kom þá hrekkjalómurinn upp í mér og ég fann mér önnur spil og tók tígulkónginn úr þeim og geymdi hann vel hjá mér var svo búið að spila talsverða stund og ég læddi honum í spilin og gaf, Ég gleymi aldrei þeim svip sem kom á bróðir minn þegar hann sagði ég er líka með tígulkóng og pabbi varð líka hálf skrítinn á svipinn.
Á milli jóla og nýjárs var alltaf sameiginlegt jólasamvera í sveitinni þar sem allir komu með eitthvað ætilegt á eitt stórt hlaðborð og í sínu fínasta pússi, fyrst var dansað í kringum jólatréð ungir sem aldnir, að því loknu var trénu ýtt til hliðar og þá spilaði harmonikkuleikarinn undir samkvæmisdönsum fram eftir kvöldi þar lærði unga fólkið að dansa. Í seinni tíð var afgangarnir settir inn í ísskáp og geymdir til gamlárskvöld og þá var áramótaball eftir miðnætti sem stóð venjulega fram að morgungjöfum.
Ég vandist því að mamma bakaði mikið fyrir jólin 7-8 smáköku sortir og allskonar tertur síðan var bakkelsið geymt í mjólkurbrúsum út í snjóskafli þar sem allar frysti geymslur voru fullar af öðrum mat, en í minningunni var alltaf snjór og frost á þessum tíma.
Mér finnst alltaf tilheyra jólum að baka talsvert, við systurnar hittumst alltaf snemma á aðventunni og bökum nokkrar sortir og eigum ánægjulega stund saman.
Hvað jólamat snertir þá var yfirleit lambahryggur á afangadagskvöld hangikjöt á jóladag og hlaðborð af kökum og kakó.
Annars er ég heimakær um jól og finnst að allir sem búnir eru að stofna heimili og eiga börn skapi sínar eigin hefðir á aðfangadag.
Að lokum óskum við öllum Hornfirðingum og nærsveitungum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Jólakveðjur.
Ragna og fjölskylda.
Bubbukaka_/ Brún lagterta.
1 kg. hveiti
300 gr. sykur
400 gr. smjörlíki
3 stk. egg
1 dós / 450 gr. sýróp
3 tsk. negull
2 mat. kakó
2 tsk. kanill
3 tsk. hjartasalt
Hnoðað upp og kælt í 2 tíma, skipt í 4 hluta , flatt út eftir ofnskúffunni.
Bakað við 180 c í 8-10 mín.
Sett hvítt krem á milli




Skrifa athugasemd