Alltaf er minningin um bernskujólin sveipuð helgri birtu og yl
Jólagestur okkar 10. desember Sigrún Bergsdóttir
Þau eru orðin ansi mörg jólin, sem ég hef upplifað. Alltaf er minningin um bernskujólin sveipuð helgri birtu og yl sem gerði lágreistu baðstofuna í Austurhúsum að höll, þegar allir voru komnir í sparifötin og settust hver á sitt rúm og hlýddu á jólaklukkurnar hringja til messu í Dómkirkjunni í Reykjavík. Það var mikið tækniundur í þá daga að geta fylgst með helgri jólamessu frá höfuðborginni, sitjandi á rúminu sínu austur í Öræfasveit. Það reyndi á þolinmæðina hjá okkur krökkunum að bíða eftir jólamatnum, sem þá var kalt hangikjöt með kartöflum í uppstúf og gulum baunum. Hangikjötið og pokabaunirnar voru alltaf soðnar á Þorláksmessu og fengu allir að smakka á því þá. Að sjálfsögðu voru kaffi og kökur um jólin, þó ekki væru eins margar sortir eins og nú.
Á Hofi voru 7 bæir og margt fólk á hverjum bæ. Það var alveg föst venja að ekki mátti snerta spil á aðfangadagskvöld, okkur var sagt að skrattinn kæmi í spilin í líki aukakóngs. Ég man að bróðir minn hafði á orði að gaman væri að prófa hvort satt væri. Að kvöldi jóladags þegar útiverkum var lokið, safnaðist unga fólkið saman í gamla græna fundarhúsinu við spil, söng, dans og aðra leiki og fengum við börnin að vera með. Það voru allir glaðir og ánægðir þó ekki væru nú haugarnir af jólapökkum. En allir fengu eitthvað nýtt og nóg var af góðum kökum sem ekki sáust í annan tíma. Blessuð jólin entust fram á þrettándann og dagurinn hafði lengst um mörg hænufet.
Ég læt hér fylgja eina uppskrift:
150 gr smjörlíki
225 gr sykur
2 egg
200 gr hveiti
1 tsk lyftiduft
3 msk kakó
¾ dl mjólk
1 dl sjóðandi vatn
Smjörlíki og sykur hrært vel, eggin sett útí eitt og eitt. Þurrefnum bætt í ásamt mjólkinni, sjóðandi vatni bætt í síðast.
Þessa uppskrift má baka sem formköku í klukkustund við meðalhita eða í tveim smurðum tertumótum og þá í styttri tíma. Ef hún er bökuð í tertumótum má leggja botnana saman með kremi.
Gleðileg jól
Sigrún Bergsdóttir




Skrifa athugasemd