Jólagestir
Haukur Þorvaldsson
Haukur Þorvaldsson

07.12.2006 Jólagestir

Jólin fyrir austan

Jólagestur okkar 7. desember er Haukur Þorvaldsson

Þegar Júlía hringdi í mig sl. föstudag og spurði hvort ég væri ekki til í að skrifa jólaminningu á vefinn hornafjordur.is tók ég því ekki fjarri ef ég þyrfti ekki að leggja helgina undir í þankagang með tilheyrandi tölvupikki. Við sömdum um að ég reyndi að koma þessu frá mér í þessari viku og hún skaut því líka að mér í leiðinni að svona til að krydda jólaminningarnar væri ekki verra ef mér tækist að fá frúna til að gefa eina uppskrift af einhverju gómsætu á jólaborðið. Svo heppilega vildi til að frúin sat við hlið mér er Júlía hringdi og sagði ég henni að nú yrði hún að koma mér til bjargar eins og svo oft áður og setja punktinn yfir i..ið með því að fatta upp á (eins og krakkarnir gjarnar segja) einhverri góðri uppskrift í lok jólaminninganna.

Æskujólin

En hvernig voru æskujólin á Sigurðarhúsinu á Eskifirði sem stóð nánast í flæðarmálinu? Góð. Undirbúningurinn hófst í desember er mamma hóf að baka jólakökurnar s.s. hálfmána, gyðingakökur að ógleymdum sprúttukökunum sem bráðnuðu bókstaflega upp í manni ummm. Terturnar biðu betri tíma. Kökurnar voru síðan settar í stauka og farið með upp á loft í geymslu. Pabbi tók sig oft til og skellti málningu á eitt og eitt herbergi en aðallega var það þó forstofan sem fékk beholningu fyrir jólin. Þegar þetta fór allt saman málningar-köku- og sápuilmur var stemningin að nálgast hámark aðeins vantaði hangiketsilminn en hann bættist ekki í flóruna fyrr en á aðfangadag. Einu sinni á ári svona rétt fyrir jólin var hægt að fá epli og appelsínurnar er sendingar komu með strandferðaskipunum og var oft handagangur í öskjunni við að ná sér í skammt. Á þessum tíma um 1953 + voru gerðir út togarar frá Eskifirði og vertíðarbátar og var oft viðtekin venja að gera siglingartúra með fisk til Aberdeen , Hull eða Grimsby svona fyrir jólin. Stundum var  reynt að skrapa saman einhverju góssi til að biðja kunningja í áhöfninni að koma í verð úti s.s. ónýtum bílgeymum í þeim var blý og einhverju úr kopar og stundum saltfiski. Fyrir þetta var síðan keyptir niðursoðnir ávextir og Makintos staukar og stundum fengu kallarnir nokkrar öllara í uppbót.

 

Þorláksmessa

Þorláksmessukvöld var kvöld karlanna í bænum sem geystust í verslanir angandi af kaupsstaðarlykt að finna réttu gjöfina handa sinni heitt elskuðu eða kellingunni eins og þeir sögðu þegar þeir höfðu náð á karlrembustigið. Þá var opið í búðunum til miðnættis og nýttum við krakkarnir okkur það og vorum að þvælast þar og stundum spurðu karlarnir hvort okkur langaði ekki í Spur ( var vinsæll kóladrykkur og ágætis ropvatn, því það þótti alltaf ferleg gæjalegt að ropa hraustlega á eftir góðum gúlsopa) og buff.  Á þessum tíma var útivistartíminn heldur frjálsari en endranær. 

 

Aðfangadagur

Pabbi var lítið fyrir að fara í búðir og sendi hann okkur strákana stundum til að kaupa jólagjöfina handa mömmu á aðfangadag og mælti hann oftast með undirkjól. Allir  urðu að tensa sig til, eins og mamma orðaði það, áður en hátíðin gekk í garð. Við bræður vorum baðaðir hátt og lágt í stóra þvottabalanum hennar mömmu og þá varð nú oft gusugangur og sopnar hveljur. Síðan var farið í sparifötin og allir voru vatnsgreiddir. Hangikjötið kraumaði á eldavélinni og fleira bættist á vélina sem kynnt var með olíu s.s. kartöflurnar, grænu baunirnar og að lokum var jafningurinn búinn til. Eftir vel lukkaða máltíð var vaskað upp og síðan farið að taka upp pakkana og allir undu glaðir við sitt, að því loknu kom mamma með blandaða ávexti og þeyttan rjóma í skál og var það algjör toppur á kvöldinu. Jólagjafirnar voru bækur, bílar ýmist úr tré eða járni, fatnaður, spil og kábojbyssur í byssubeltum en það var eitt af því sem sjómennirnir keyptu erlendis. Vinsælustu bækurnar voru um Árna í Hraunkoti eftir Ármann Kr. Einarsson og var ekki lítið spennandi að skríða með þær upp í rúm og gefa sig á vald ævintýranna sem Árni lenti í. Maður vorkenndi fullorðna fólkinu hvað það fékk miklu færri pakka en við krakkarnir. Ekki var alltaf farið í kirkju um jól en þeim mun meira hlustað á útvarpið og fannst mömmu að jólin væru gengin í garð er byrjað var að lesa jólakveðjurnar í útvarpinu. Tekið var í spil á jólunum en aldrei fyrr en á jóladagskvöld. Aldrei var spilað á aðfangadag það boðaði ekki gott. Var það oft hlutverk okkar krakkana að fá að skrifa slagina og um leið  að vaka aðeins fram eftir.

 

Jólaböllin og brennurnar

Á annan í jólum var jólaball haldið í Ungó, félagsheimili Ungmennafélagsins Austra en það var herbraggi. Eftir að hafa dansað í kringum jólatréð með jólasveinum og öllum krökkunum bauð Kvenfélagið Döggin skaranum í kakó og tertur upp á hóteli sem var rétt ofan við Ungó.

Á mínu heimili voru nokkrar kindur og var þeim vel gefið á jólum. Oft var maður svolítið myrkhræddur í fjárhúsinu svo gjöfina  tók  fljótt af.   Yfirleitt var mikið fannfergi á jólum og voru þá grafin út fönn til að búa til gott snjóhús og náð í kerti inn til að lýsa  þau upp. Þá var tíminn milli jóla og nýárs nýttur til að safna í áramótabrennu svo alltaf var nóg að gera.

Ég læt hér staðar numið og vona að jólagleðin ráði sem víðast ríkjum. Ég veit hinsvegar að alltof margir eiga um sárt að binda og er það því verkefni okkar sem höfum getu til að liðsinna og létta undir með þeim eins og við mögulega getum.

Svo kemur hér jólasendingin frá Björgu.

 

Sælgætiskökur

100 gr. smjör
½ bolli sykur
½ bolli púðursykur
2 egg
1 tsk. vanilla
1 ½ bolli hveiti
1 tsk. lyftiduft
½ tsk. natron
¼ tsk. salt
2. bollar Rice Crispies
1 ½ bolli kókosmjöl
1 ½ bolli saxað suðusúkkulaði

 

Smjör og öllum sykri hrært vel saman. Eggin þeytt vel ásamt vanillu, því næst er öllu hinu bætt út í. Deigið er fremur þurrt og sundurlaust. Sett með teskeið á smurða plötu og bakað við 190° C í c.a. 10 mínútur.

Þessa uppskrift ásamt mörgum öðrum má finna í uppskriftarbókinni Kór-réttir sem Samkór Hornafjarðar gaf út fyrir nokkrum árum.

 

Ekkert stress og verið hress !   Gleðileg jól!    

 

Haukur H. Þorvaldsson

 


 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica