Jólagestir
Bryndís Hólmarsdóttir
Bryndís Hólmarsdóttir
Bryndís Hólmarsdóttir

03.12.2006 Jólagestir

Ljósin gefa lífinu lit í bókstaflegri merkingu

Jólagestur okkar 3. desember er Bryndís Hólmarsdóttir

Í dag er fyrsti sunnudagur í aðventu og fólk farið að setja ljós utan á hús sín og í glugga til að lýsa upp skammdegið. Ljósin gefa lífinu lit í bókstaflegri merkingu því myrkrið er svo mikið sérstaklega þegar enginn snjór er á jörðu. Þegar maður lætur hugann reika til baka og hugsar til liðinna jóla, bernskujóla, þá var alltaf snjór og hægt að leika sér allan daginn úti. Ég er alin upp í sveit nánar tiltekið á Erpsstöðum í Dalasýslu og finnst mér að það hafi verið snjór allan veturinn að vísu mismikill en alltaf snjór. Jólaundirbúningur var líkt og hjá öðrum, húsið gert hreint og mikið bakað og gerði mamma þetta allt, að minnsta kosti finnst mér það og man ekki eftir að hafa gert mikið.

Ég var í heimavistaskóla allan veturinn, að vísu mismikið eftir aldri en alltaf viku í einu.. Í skólanum var talsverður jólaundirbúningur í síðustu vikunni fyrir jólafrí, þá voru gluggar málaðir í kennslustofum, jólakort handa öllum í skólanum unnin, margir metrar af músastigum fléttaðir og ógrynni af pappírs jólasveinum litaðir, þetta var svo hengt upp um allan skólann og mest í stofunni þar sem að litlu jólin fóru fram. Æfingar á leikritum og söngvum fór svo fram alla aðventuna. Litlu jólin byrjuðu svo á mat og svo byrjaði skemmtunin sem endaði alltaf á því að dansað var kringum jólatréð. Daginn eftir áttum við svo góða stund með umsjónarkennaranum, sem las sögu og útbýtti jólakortum og í minningunni voru þetta reglulega góðar stundir.

Mamma bakaði mikið af góðum smákökum og þar sem að þær áttu að geymast fram að jólum, þá límdi hún kökuboxin aftur með límbandi. Ekki dugði það nú alltaf því að við systkinin voru lagin að plokka upp límbandið og smakka á innihaldinu sama þótt að hún reyndi að fela fyrir okkur kökurnar.

Ég var svo heppinn að afi bjó hjá okkur og las mjög mikið fyrir okkur krakkana. Það var nánast regla að ?Jólin koma? eftir Jóhannes úr Kötlum var lesin upp til agna og kunnum við allar vísurnar í henni og kann ég flestar enn. Mömmu hefur örugglega þótt gott að losna við okkur til afa þegar spenningurinn var sem mestur.

Jólasveinninn gaf alltaf í skóinn hvort sem að maður var í skólanum eða heima, hann gleymdi engum og ekki man ég eftir kartöflum í skónum, enda alltaf svo stillt.
Eitt var svolítið undarlegt, jólasveinninn átti það til að skilja eftir pakka í póstkassanum niður við þjóðveg og þurftum við systur að ganga með litla bróður okkar niður á veg á aðfangadag til að sækja pakkann.

Jólatréð var skreytt á Þorláksmessu. Ekki var hægt að byrja að skreyta það fyrr en jólaserían var komin á en þar var hængur á það tók nefnilega mislangan tíma að koma henni í lag. Það var bara til ein jólasería. Ætli ég hafi ekki verið 8 eða 9 ára þá. Skrítið að hugsa til þess þegar maður hefur ekki tölu á öllum seríum og ljósum sem maður á. Í minningunni er pabbi með jólaseríuna í fanginu á Þorláksmessukvöld að reyna koma ljósum á hana og fór það eftir því hvað hann var fljótur að kveikja á henni hvort að við fengum að skreyta jólatréð. Það var ekki laust við að maður hefði áhyggjur af því hvort að það yrðu einhver ljós á trénu þessi jólin.

Yfirleitt var léttreyktur lambahryggur í matinn á aðfangadag og sítrónufrómas í eftirmat. Á jóladag var alltaf hangikjöt og laufabrauð. Lengi vel hafði mamma til kakó og kökur í kvöldkaffi á aðfangadagskvöld þá fengum við að borða þessar langþráðu smákökur.
Á milli jóla og nýárs var svo farið í heimsókn að Sauðafelli eða Stóra Vatnshorni, þar sem að systur mömmu bjuggu, og við krakkarnir spiluðum púkk, notaðar voru eldspýtur fyrir peninga eða kaffibaunir svo var farið út að leika sér í snjónum ef veður leyfði.


Já mikið er gaman að rifja svona upp
Ég læt hér fylgja uppskrift að súkkulaðibitakökum frá henni mömmu enda er hún listabakari og kokkur.

Súkkulaðibitakökur
140gr smjörlíki
170gr sykur
170gr púðursykur
2 Egg
340gr hveiti
1tes salt
1tes natron
1 1\2 bolli saxað súkkulaði
1 bolli valhnetukjarnar ( ef vill)

Öllu hrært saman, sett með skeið á plötu.
Bakað við 185C° í 6 til 8 mín

Vona að jólin verði öllum gleðileg og góð

Jólakveðjur
Bryndís Hólmarsdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica