Fjölskyldan um jólin
Jólagestur okkar 2. desember er Sigrún Kapitola
Jólin eru mikill fjölskyldutími í minni minningu heima á Rifi. Allt gekk sinn vana gang í desember en á þorláksmessu fór allt að gerast. Þá tókum við systurnar og pabbi síðustu þrifin fyrir jólin og þegar því var lokið var ráðist í að skreyta húsið. Alltaf var skata í matinn á Þorláksmessu og sagði mamma að henni fyndist ekki koma jól nema fá smá skötulykt í húsið. Ég hef nú aldrei verið mikið sammála henni í því en skötuna borða ég þó með bestu lyst, en samt þara þennan eina dag á ári. Klukkan fimm á Þorláksmessu var og er alltaf haldið jólahappadrætti af Lionsmönnum í félagsheimilinu. Við systurnar fórum alltaf á þetta happadrætti og pabbi fór með okkur. Leifur afi var í Lions og hann var mjög oft að stjórna því sem fram fór á sviðinu í úrdrættinum. Það var alltaf svo gaman og þarna komu allir bæjarbúar saman og oftast pabbarnir með börnin því að mömmurnar voru heima að leggja lokahönd á jólaundirbúninginn.
Aðfangadagur gekk sinn vanagang, jólasveininn kom í heimsókn, möndlugrautur í hádeginu og eftir hann var farið í það að keyra út jólakortum og jólapökkum til vina og ættingja í bænum. Klukkan sex var farið í messu og þegar heim var komið voru komin jól. Í matinn á aðfangadagskvöld var yfirleitt reykt svínakjöt með brúnuðum kartöflum, salati og gulumbaunum með ananas. Oh, þetta var alltaf svo gott og ég borðaði alltaf svo mikið. Þetta var sko langbesta máltíðin sem ég fékk yfir árið og svo fylgdi gómsæt ísterta í eftirrétt. Það er svolítið skemmtilegt að hugsa til þess að mamma og pabbi keyptu alltaf einn kassa af appelsíni í gleri og einn kassa af malti fyrir jólin. Þegar máltíð var, þá var farið út í bílskúr og sótt tvær flöskur af appelsíni og ein af malti og þessu blandað í könnu, og þetta dugði fyrir okkur öll með matnum.
Á aðfangadagskvöld þegar við vorum búin að opna pakkanna þá fórum við alltaf heim til ömmu og afa í Rifi í heimsókn og þangað komu líka þau systkyni hans pabba sem búsett voru á staðnum með sín börn. Seinnipartinn á jóladag komum við svo aftur saman heima hjá ömmu og afa og borðuðum saman jólamat, jólaís og svo fullt af jólakökum og jólakakói. Á annan í jólum tók svo við önnur eins veisla með ömmu og afa í Grundarfirði og systur hennar mömmu og hennar börnum.
Í minningunni er eins og alltaf hafi verið frost og snjór á jólunum. Ég man að stundum á jóladag fórum við með pabba niður á Ós að skauta og þar voru oft flestir íbúarnir á Rifi samankomnir, sumir að rifja upp gamla takta en þó flestir að reyna nýju skautana. Í dag bý ég á stað þar sem ekki eru miklar líkur á hvítum jólum og því verður maður nú bara að venjast. Ég á mína eigin fjölskyldu, sem með tíð og tíma, mun eignast sínar eigin jólahefðir sem vonandi verða mínum börnum jafn kærar og jólahefðirnar úr minni barnæsku eru mér.
Hér fylgir uppskrift af vanilluhringjunum hennar ömmu í Rifi, þeir eru æði:
500 gr. Hveiti
1. Egg
350 gr. Smjörlíki
250 gr. Sykur
¼ tsk Hjartasalt
Vanilludropar.
Öllu blandað saman og gert vel mjúkt. Setja í hakkavél og gera fallega litla hringi.
Baka efsti í ofni í 7 ? 10 mín á 200°C.
Njótið tímans og hvers annars í desember.
Jólakveðja,
Sigrún Kapitola




Skrifa athugasemd