Jólalyktin var af eplum og svo var stundum kveikt í smá grenigrein sem gaf sérstakan ilm í húsið.
Ég man fyrst eftir jólahaldi í litla timburhúsinu á Grímsstaðaholtinu í Reykjavík. Þá var nú ekki byrjað eins snemma og núna að undirbúa jólin og það var ekki fyrr en á Þorláksmessu að húsið var skreytt og þá líka jólatréð. Þegar við systkinin vorum lítil sáu foreldrar okkar um að skreyta jólatréð á Þorláksmessukvöld eftir að við vorum sofnuð og stóð það skreytt og fallegt í stofunni á aðfangadag. Ég man að ár eftir ár var sama skrautið á trénu þó alltaf væri bætt einhverju við fyrir hver jól og sumir hlutir áttu alltaf sinn sama stað á trénu. Jólalyktin var af eplum og svo var stundum kveikt í smá grenigrein sem gaf sérstakan ilm í húsið. Ég held að jólahald á okkar heimili hafi verið með hefðbundnu sniði með jólamessunni í útvarpinu, miklum og góðum jólamat og gjöfum frá vinum og vandamönnum.
Stundum bar það við að pabbi þurfti að fara út á aðfangadagskvöld en hann var starfsmaður hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur því oft kom fyrir að álagið á aðfangadagskvöld varð rafkerfi borgarinnar ofviða. Þá þurfti að hafa hraðar hendur við að koma rafmagni á aftur en stundum gat það tekið langan tíma og var hann þá að vinna alla jólanóttina. Milli hátíða var farið í jólaboð til ættingja og bar auðvitað hæst heimsókn til afa og ömmu í Eskihlíð. Þangað komu öll systkini pabba með sín börn og það var ekki svo lítill hópur. Þar var alltaf glatt á hjalla, sungið og dansað og smákökum og tertum gerð góð skil að ógleymdum pönnukökunum hennar ömmu.
Og nú er enn framundan nóttin helga, hátíðin mesta, og jólagesturinn eini sanni kemur og vill eiga við okkur erindi. Við þurfum einungis að hlusta og þiggja.
Og engillinn sagði við þá: ?Verið óhræddir, því sjá ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum mönnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu.?
Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita sem lofuðu Guð og sögðu:
Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu og velþóknun Guðs yfir mönnum.
Uppskriftin er að syndsamlega góðum jólasmákökum:
Döðlumarengs
2 eggjahvítur
125 gr sykur
250 gr saxaðar döðlur
250 gr hakkaðar möndlur
Eggjahvítur og sykur þeytt vel. Hinu blandað saman við. Látið með teskeið á plötu. Bakað við miðlungshita þar til kökurnar verða fallega ljósbrúnar.
Guð gefi okkur öllum gleðilega jólahátíð.
Sigurður Kr. Sigurðsson




Skrifa athugasemd