En hvorki kynntist ég laufabrauði eða rjúpum
Jólagestur okkar í dag er Halldóra Bergljót Jónsdóttir
Lyktin af greni og Delicious eplum vekur alltaf upp minningar um jól bernskunnar. Epli fengust yfirleitt ekki nema fyrir jólin. Þegar ég man fyrst eftir mér var ég eina barnið á heimilinu, systkinin komu svo eitt af öðru þegar ég var orðin 7 ára. Við erum fimm systkinin Jólaundirbúningurinn var nokkuð hefðbundinn. Allt varð að vera hreint út úr dyrum og mamma bakaði og bjó til rjómaís. Á aðfangadagskvöld var hamborgarahryggur í matinn og hangiket á jóladag, en hvorki kynntist ég laufabrauði eða rjúpum. Á aðfangadag var stofan lokuð og læst og spenningurinn var mikill.. Ættingjar komu í heimsókn og skipst var á pökkum. Dagurinn leið svo við undirbúning, en klukkan 6 var allt tilbúið þegar jólin hringdu inn í útvarpinu þá var stofan opnuð og dýrðin blasti við. Jólatréð skreytt og pakkar undir. Stundum voru afi og amma hjá okkur og kvöldið leið í ró og kyrrð.
Á jóladag fékk ég að fara með pabba í kirkju, en hann söng í kirkjukór. Svo liðu jólin við heimsóknir til ættingja. Einni reglu man ég eftir sem varð að fylgja. Það mátti ekki spila á spil fyrr en eftir hádegi á jóladag og sú regla var ófrávíkjanleg. Mikið spilafólk var í fjölskyldunni en það samrýmdist ekki heilögum jólum að spila meðan heilagast var. Mér er minnisstætt að þegar ég var tíu ára lagðist mamma á sæng í desember. Hún var komin heim með litlu systur um miðjan desember. Við bjuggum þá í lítilli 4ra herberja íbúð og hún var fjórða barnið. Þetta árið var ég afar áhyggjufull yfir jólunum og undirbúningnum. Mér fannst ekkert miða í neinu. En stuttu fyrir jól var svo tekið til hendinni og bakað eitthvað lítilræði og í minningunni voru þessi jól síst hátíðlegri en önnur, því hátíðleikinn felst ekki í veraldlegum undirbúningi heldur stemmningunni og stundum velti ég því fyrir mér hvort umgjörð jólanna sé ekki orðin of mikil en að innihaldið og tilgangurinn vilji gleymast.
Hér læt ég fylgja uppskriftina af jólarrjómaísnum hennar mömmu. Og hún er svona:
4 egg
200 gr flórsykur
1/2 ltr rjómi
vanilludropar
og suðusúkkulaði brytjað.
Egg og sykur er þeytt saman. Rjóminn þeyttur. Öllu blandað saman varlega með sleif of fryst. Þetta getur ekki klikkað.
Ég vil óska Hornfirðingum öllum gleðilegra jóla og gæfuríkrar framtíðar.
Halldóra Bergljót Jónsdóttir




Skrifa athugasemd