Jólagestir
Séra Einar Jónsson
Séra Einar Jónsson
Séra Einar Jónsson

18.12.2005 Jólagestir

Ætli eplalyktin hafi ekki boðað komu jólanna

Jólagestur okkar í dag er Séra Einar Jónsson

Það er komið fram í Aðventu. Jólin eru í nánd enn einu sinni. Tíminn líður svo hratt og fyrr en varir erum við farin að undirbúa jólahátíðina. Orðið Aðventa er komið til okkar úr latínunni, Aðventus Domíne, eða koma Drottins, ef orðrétt er þýtt. Aðventutíminn eða jólafastan öðru nafni, er tími undirbúnings og eftirvæntingar. Aðventuboðskapurinn felst í því að benda á konung konunganna, sem kom, kemur og mun koma. Hann kom í barninu litla sem var lagt í jötu í Betlehem, hann kemur í fagnaðarerindinu á hverjum jólum, og hann kemur við endi aldanna, þegar tíminn er ekki framar til, eins og við játum í trúarjátningunni.

Aðventan hefur tekið á sig margar myndir í áranna rás. Þetta er uppgangstími hjá verslunar og veitingamönnum. Heilmikill bisness. En það sem ekki síst einkennir þennan tíma er áhugi fólks á að hlýða á fallega tónlist af ýmsum toga, og það var ánægjulegt að hlusta á kvennakórinn í Nýheimum þann 7. desember. Fólk sækir líka í andlega uppbyggingu, leitar að þeim rofa sem lýkur upp tilhlökkun og hátíðargleði. Við jólin er nefnilega bundin einhver heillandi síbernska, sem ekki vill láta neinn skugga á sig falla. Í sínu einfaldasta formi táknar hátíðin fögnuð bernsku yfir kertaljósinu, kerti sem var svo stórt af því að við vorum svo lítil,- kerti sem var svo bjart, af því að við vorum svo saklaus.

"Þú brosir er loginn blaktir
á bláu kerti og rauðu
öll þín óspillta gleði
yljar ríkum sem snauðum"
( Jóhannes úr Kötlum )

Ég er uppalinn í Reykjavík eftirstríðsáranna, yngstur þriggja barna sr. Jóns Péturssonar frá Kálfafellsstað og Þóru Einarsdóttur, síðar formanns fangahjálparinnar Verndar.
Þá var veturinn kaldari en nú í endurminningunni, nóg af sleðabrekkum á götunni, ef löggan var ekki nærri. Börn voru afgangsstærð í þjóðfélaginu, þá þekktist ekki barnadekur. Þá var ekkert sjónvarp eða vídeó, barnatíminn var klukkan 6 á sunnudögum. en tápmiklir krakkar finna sér alltaf eitthvað til að bjástra við.
Ætli eplalyktin hafi ekki boðað komu jólanna, þó ávextir sæjust ekki nema rétt fyrir jólin, og þá skammtaðir. Þess vegna fjallar söngleikurinn Deleríum Bubonis um þá skelfingu sem greip um sig þegar það fréttist að ávaxtaskipinu frá útlöndum myndi seinka, og nú yrði að fresta jólunum.

"Ekki gráta elskan mín,
þó þig vanti vítamín
þú færð í magann þinn mjóa
melónur og vínber fín"

Vöruúrval var fábreitt, enda hafði fólk ekki mikið handa á milli. Á Þorláksmessu var staðið í biðröð við ölgerðina Egill Skallagrímsson, með ílát. Eldri maður í bárujárnsskúr tappaði hvítöli úr gúmmíslöngu á dallana, samkvæmt greiddri nótu. Þetta var mun ódýrara en maltölið. Gosdrykkir sáust varla um hátíðir, og enn í dag eru ávextir og gos munaðarvara í undirmeðvitundinni. Jólahaldið sjálft var fjölskylduhátíð í föstum skorðum. Aðfangadagur ætlaði aldrei að líða, en klukkan 6 fórum við í Dómkirkjuna með pabba, en mamma var að sýsla við hangikjötið heima. Rjúpur voru sjaldséðar á borðum í Reykjavík. Á jóladag vorum við hjá Jóhönnu frænku og Helga Hermanni.
Þetta var yndislegur tími, og tilhlökkunin mikil í birtu hátíðarljósanna. Okkur finnst nú einhvernvegin að allir eigi skilið að eiga gleðileg jól. En það er á okkar valdi og á okkar ábyrgð að bera hátíðarljós jólanna til annarra. Hugsum til þeirra sem eru aðstoðar þurfi þessa dagana, eins og Steinunnar frá Breiðabólsstað, einstæðrar 5 barna móður, fárveik eftir hjartauppskurð. Fjársöfnun er í gangi henni til handa ( 1147-05-44949 ). Gáum að þessu sem öðru.
Nú er mikið talað um kökuuppskriftir. Besta jólakakan felst örugglega í hveiti trúarinnar, eggjum vonarinnar og lyftidufti kærleikans. Mætti skreyta með vináttu og hjálpsemi. Annars verður víst að játast að ég er klaufi að bak, nema helst í samvinnu við vinkonu mína Betty Crocker. ( fæst í pökkum í Krónunni ). En konan gaukaði að mér uppskrift sem gerir alltaf mikla lukku..

Lóukaka.
4 eggjahvítur
200 gr sykur
1 bolli döðlur
100 gr suðusúkkulaði
Eggjahvítur og sykur þeytt vel saman.
Döðlur og súkkulaði brytjað smátt og blandað varlega saman ( með sleif) út í marensinn.
Þekið formið bökunarpappír.
Bakist í ca 60 mín í 120°hita.
Þeyttur rjómi milli botnanna.
Gott að geyma í frysti.

Bon appetit og gleðileg a hátíð

sr. Einar G. Jónsson
Kálfafellsstað

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica