Jólagestir
Þórdís Einarsdóttir
Þórdís Einarsdóttir
Þórdís Einarsdóttir

16.12.2005 Jólagestir

Það mátti alls ekki borða kökurnar fyrr en á jólunum

Jólagestur okkar í dag er Þórdís Einarsdóttir

Jólin eru yndislegur tími. Og í minningunni þegar ég var að alast upp í Þinganesi, var alltaf nóg af jólasnjó. Tilhlökkun var mikil og eftirvænting. Mamma var á fullu að baka og þrífa húsið hátt og lágt og við systkinin að hjálpa til. Það mátti alls ekki borða kökurnar fyrr en á jólunum, en þá tók maður nokkrar smákökur með sér upp í rúm þegar farið var að lesa á kvöldin og mjólk með. Þegar von var á Stekkjastaur þá vorum við Halldór bróðir oft að hugsa um hvernig hann kæmist upp í gluggann til okkar (3 hæð). Einu sinni settum við stiga upp að húsinu til að auðvelda honum að komast, daginn eftir fórum við að athuga með sporin og þar voru þau auðvita og þau lágu beint niður í fjöru, hann hafði komið á bát.

Þegar farið var að skreyta, voru jólin alveg að koma ? allt var orðið klárt 20 des en þá á Jón stóri bróðir afmæli. Í hádeginu á Þorláksmessu var alltaf soðin skata og saltfiskur, en um kvöldið þegar allt var tilbúið settumst við oftast niður til að hlusta á jólakveðjurnar í útvarpinu, það var svo hátíðlegt. Á aðfangadag þegar búið var að gefa fyrri gjöfina í fjárhúsunum, var farin pakkaferð til ættingja og vina. Þeirri ferð varð að ljúka áður en teiknimyndirnar á Rúv byrjuðu. Þegar svo jólaklukkurnar hringdu inn jólin á aðfangadagskvöld þá var sest til borðs það var alltaf tvíréttað, kótelettur í raspi og kjúklingur en síðar kom hamborgarahryggur sem tók við af kjúllanum. Ávaxtagrautinn fengum við á jóladag á eftir hangikjötsveislunni.
Á Jóladag var alltaf farið í messu í Bjarnaneskirkju og endað í jólakaffi á Stapa eða í Akurnesi.

Læt fljóta með uppskrift af fjórsettri lagtertu..

1 kg. Hveiti
500 gr. Sykur
500 gr. Smjörlíki
3 tsk. Lyftiduft
1 tsk. Hjartarsalt
4 egg

Sulta eftir þörfum

Þurrefnum blandað saman og smjörlíki mulið í eggjunum bætt út í og hnoðað.
Deiginu skipt í 4 hluta og þeir flattir út á bökunarplötu
Bakað við 180 þar til kakan verður gullinbrún ? látin kólna ? sulta sett á milli og þá er hún tilbúin..

Óska ykkur öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýja árinu
Þórdís

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica