Jólagestir
Friðþór Harðarsson
Friðþór Harðarsson
Friðþór Harðarson

15.12.2005 Jólagestir

Aðfangadagur byrjaði á að ég fór með frænda mínum Sæmundi Hallsyni í fjárhúsin

Jólagestur okkar í dag er Friðþór Harðarson

Ein jól með Sæmundi.

Við hengjum seríur upp í kringum 1. des. eins og flestir Hornfirðingar gera nú orðið og finnst mér það bara notalegt, gott að létta á skammdegis drunganum og svo látum við loga lengur og lengur fram eftir janúar mánuði. Þetta var allt öðruvísi um og eftir 1970 í Laufási, þá hengdi pabbi útiseríuna upp nokkrum dögum fyrir jól, mestalagi viku fyrir. Og seríurnar sem voru með stórum perum, sem pabbi málaði með perulakki því ekki fengust litaðar perur í þá daga, þær tóku mikið rafmagn og fólk leyfði sér ekki að bruðla með rafmagnið frekar en annað og slökkt var á seríunni yfir nóttina. Á Þorláksmessudag var klárað að skreyta og við krakkarnir hjálpuðu til, svo var endað á jólatrénu og pakkarnir settir undir tréð og Fúsi bróðir var óendanlega lengi að pakka gjöfunum sem hann keypti í jólasiglingunni, kannski af því að gjafirnar voru svo stórar eða til að stríða litla bróður, gæti verið, en svo komu pakkarnir niður stigann og minn eðlilega síðastur og langstæðastur og þarna sat ég og góndi á pakkana sem næstum huldu jólatréð enda er svolítið af pökkum þar sem eru 9 manns í heimili.

Aðfangadagur byrjaði á að ég fór með frænda mínum Sæmundi Hallsyni í fjárhúsin en þau stóðu rétt norðan við mjólkurstöðina og löbbuðum við Sæmundur eins og oftast, enda Sæmundur ekki með bílpróf frekar en margir á hans aldri á þeim tíma. Ég fleygði heyinu í rollurnar og korninu í hænurnar eða öfugt svo mikið lá á að komast heim og ýtti á eftir Sæmundi, en honum lá ekkert á enda áttu dýrin hann að alveg eins og menn og hann svaraði eins og venjulega með jánei í sama orðinu. Sæmundur bjó hjá foreldrum okkar í Laufási í mörg ár, eða eins og Fúsi bróðir segir hann kom eitt sinn í kaffi og var í 25 ár. Þegar maður var kominn í sparifötin byrjaði einn biðtíminn í viðbót, þá var gott að geta farið inn til Sæmundar og gefið í þjóf eða veiðimann en svo kom ilmurinn af rafasteikinni inn um dyrnar og Sæmundur blandaði hana með ilm frá fánavindli.

Nú voru jólin komin.

Gleðilega jólahátíð
Friðþór Harðarson



Verkalýðsterta

4 Egg
125 gr Sykur
100 gr Suðusúkkulaði brytjað
100 gr Möndluspænir


Eggin og sykurinn þeytt vel saman

síðan eru súkkulaðið og möndlurnar sett út í hrært saman með sleif

bakað í tveimur formum í 10 mín 180° hita.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica