Jólagestir
Anna María Kristjánsdóttir
Anna María Kristjánsdóttir
Anna María Kristjánsdóttir

14.12.2005 Jólagestir

Þegar ég hafði aldur til þá var ég sett í að pússa silfrið

Jólagestur okkar í dag er Anna María Kristjánsdóttir

Á mínu æskuheimili var aðventan yfirleitt mjög ljúf í minningunni. Jú, mamma að þrífa og baka en aldrei neitt stress. Ég fékk að hjálpa til við baksturinn og þegar ég hafði aldur til þá var ég sett í að pússa silfrið, sem alltaf var mjög fyrirkvíðanlegt. Og alltaf var mikil tilhlökkun þegar pabbi kom heim með eplakassann, já þó ég sé ekki nema 33 ára gömul þá man ég eftir þessum stóru eplakössum og gómsætum rauðum eplunum sem voru ákveðinn fyrirboði jólanna. Á Þorláksmessu var húsið alltaf skreytt og þá fengum við krakkarnir að hjálpa til, og svo eftir að systkini mín fluttu að heiman þá voru það bara ég og pabbi sem sáum um það. Ekki síður en á aðfangadag eru fastir siðir á Þorláksmessu. Þá sauð mamma alltaf hangikjötið og sýslaði í eldhúsinu á meðan við skreyttum jólatréð og lokahönd var lögð á heimilið, og alltaf vakti mamma frameftir til að búa til kertaskreytingar og skreyta grenigreinar.

En í dag er það ég sem vaki frameftir og geri skreytingar og jafnvel hringi í mömmu til að spjalla. Mér finnst þetta ómissandi hluti jólanna og aðeins eitt Þorláksmessukvöld hef ég ekki verið heima en þá var ég á fæðingardeildinni að eignast frumburðinn minn.

Þegar ég var krakki þá var amma alltaf hjá okkur á jólunum og maður beið alltaf spenntur eftir að hún kæmi því alltaf kom hún með STÓRAN konfektkassa sem hún fékk í jólagjöf frá vinnuveitanda sínum, og alltaf fékk maður að taka þátt í að tæma hann. En eftir að amma féll frá þá varð það að föstum sið að fara að leiðinu hennar á aðfangadag og fórum við pabbi þá alltaf saman, og mikið var nú hátíðlegt að sjá Fossvogskirkjugarðinn í jólabúningi.

En mikið var nú erfitt að bíða eftir kvöldinu á aðfangadag, mamma eldaði yfirleitt grjónagraut í hádeginu og stundum var mandla í honum. Svo kl.18.00 var sest að borðum inni í borðstofu og fyrst borðuð rjómalöguð súpa, og svo svínakjöt. Svo kom að því að bíða eftir að uppvaskinu lyki og yfirleitt fékk ég að opna einn pakka á meðan, svona rétt til að slá á spennuna. Þegar búið var að opna pakkana þá var yfirleitt borðaður ís og ávextir í bland við konfekt og smákökur á meðan jólakortin voru opnuð.

Jóladagur og annar í jólum voru yfirleitt rólegir dagar sem fóru í lestur góðra bóka og bara slappað af heima við. Og á heildina litið þá eru jólin í minningunni alltaf ljúfur tími þar sem fjölskyldan naut þess að vera saman og slappa af.
Eftir að við Siggi fórum að búa þá höfum við haldið í sumar hefðir heiman frá mér og aðrar heiman frá honum og tekið upp aðrar hefðir og gert að okkar eigin. Og þegar búið er að blanda þessu saman eru það orðin jólin sem börnin okkar upplifa og vona ég að þau eigi eftir að hugsa til æskujólanna með sama söknuði og góðu minningum og ég geri í dag.

Hér kemur uppskrift að uppáhaldskökunum hans pabba.

Amerískar smákökur
200 gr smjörlíki
200 gr sykur
1.tsk lyftiduft
470 gr hveiti
2 egg
súkkulaði(raspað)
appelsínubörkur(raspaður)

Smjörlíki, sykur og egg hrært saman, hveiti og lyftiduft sigtað saman við. Deigið á að vera vel þykkt. Rúllað í sívalninga(ein uppskrift= 2sívalningar), sett á brétti og kælt í ískáp yfir nótt eða í sólarhring. Skorið í þunnar sneiðar, sett á plötu og bakað við 170-180°C.

með ósk um gleðileg jól,
Anna María

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica