Auðvitað var verið að bíða eftir pökkunum
Eins og svo hjá mörgum öðrum þá er það í minningunni um jólin, þegar pabbi kom með eplin og appelsínurnar þá voru jólin loksins að koma þá voru þessir ávexti ekki á borðum nema á jólum og smákökurnar sem mamma bakaði einkver ósköp af, margar gerðir. En auðvitað var verið að bíða eftir pökkunum sem ekki mátti opna fyrr en eftir mat og fannst manni það frekar ósanngjarnt að þurfa að bíða eftir því að allir væru búnir að borða, en í seinni tíð hefur maður látið þennan sið bitna á sinum eigin börnum.
Gleðileg jól
Magnús Jónasson
Fljótleg og gómsæt brúnterta.
250 gr. smjörlíki
400 gr. sykur
500 gr. hveiti
2 ½ dl. mjólk
3 egg
2 ½ tesk natron
3 tesk. negull
3 tesk kanill
3 msk .kakó.
Krem.
350 gr. smjörlíki
rúmlega 1 pk flórsykur
vanilludropar, sítrónudropar kardimommudropar.
Smjörl. linað og hrært, eggjum bætt í og síðan öllu hrært saman.
Smurt á bökunarplötu, gott að hafa bökunarpappír á plötunni.
Bakað við 200-225° Kælt vel áður en kremið er sett á
Krem: Allt hrært vel saman




Skrifa athugasemd