Jólasveinninn í alveg eins úlpu og pabbi átti
Jólagestur okkar í dag er Björn Arnarson
Það rifjast ýmislegt upp þegar hugsað er til baka um jólin í sveitinni það er að segja jólin á Reynivöllum í Suðursveit en þar er ég upp alinn Í minningunni var alltaf mikill tilhlökkun þegar jólin nálguðust . Eftir gegningar á Þorláksmessukvöld var farið að skreyta húsið og þá fengum við bræður að hengja það skraut á Jólatréð sem ekki var brothætt. Einu sinni man ég eftir því að það kom jólasveinn í heimsókn til okkar bræðra en það þótti mér verst að pabbi skildi ekki vera inni þegar hann kom því að jólasveinninn var nefnilega í alveg eins úlpu og pabbi átti og það þótti mér merkilegt (en hvar skildi nú pabbi hafa verið ?) jú hann var niðri í Fjárhúsi að gefa rollunum sagði mamma. Svo var það eitt sinn að Mamma var að gera gjafir fyrir okkur bræður og hafði lokað að sér inn í stofu og þá voru litlir menn nú frekar forvitnir og reyndu ýmislegt til að komast inn í stofuna og sjá nú alla dýrðina og eitthvað hafði mamma verið að föndra við körfugerð úr tágum og ég var svo ótrúlega heppnir að finna nú tág á ganginum og nú var ég viss um að nú væri ég komin með lykilorðið að stofudyrunum og með tágna að vopni fór ég að stofuhurðinni og sagði mamma ég fann tág en ekkert gekk ekki opnaðist hurðin sama hvað ég bar mig illa með tágna í höndunum.
Á annan dag jóla fórum við yfirleitt í heimsókn að Brunnum en þar áttu Sigurborg amma Jóhann afi og Gísli frændi heima þá var gjarnan tekið í spil.
Á milli jóla og nýárs var svo alltaf jólaball í Hrollaugsstöðum og var það ómissandi þáttur í jólahaldinu hvort sem var hjá börnum eða fullorðnum þarna var ekkert kynslóðabil þar voru kannski 4 ættliðir saman að skemmta sér á jólaballi sem sagt undirritaður mamma (Þóra) amma (Sigurborg) og langamma (Ingunn) og einu sinna þurfti nú langamma að hugga litla guttann er hann datt um gamla konu sem var á jólaballinu og ekki vildi nú betur til þegar sá stutti stóð upp þá var svartamyrkur og hann flæktur í eitthvað hræðilegt þarna var hann komin undir pilsið hjá gömlukonunni og fór að há gráta og þá var langamma nálæg og huggaði litla guttana sem ekkert hafði meitt sig á þessum hremmingum en orðið yfirsig hræddur þegar hann stóð upp innan undir pilsinu hjá konunni
Jólakveðja
Björn Gísli Arnarson
Þá er hér einn uppskrift að Hálfmánum sem eru í uppáhaldi hjá mér
500. gr Hveiti
1 egg
3 tsk ger
350 gr smjör
2 tsk kardimommudropar
250 gr sykur
3 matskeiðar rjómi
Þetta á að hnoða saman og fletja út í þunnar sneiðar upplagt er að nota mjólkur glas til að forma kökurnar síðan er sett rabbabarasulta á hverja köku og svo er brotið í hálfmána og að endingu er farið létt á jaðrana með gafli til að loka þeim og þá er bara að skella þessu í Ofninn.




Skrifa athugasemd