Það var sko bakað og bakað, heill hellingur, smákökur, lagtertur og botnar.
Jólagestur okkar í dag er Auður Lóa Magnúsdóttir
Það er ýmislegt sem rifjast upp þegar ég fer mörg, mörg ár aftur í tímann og rifja upp jólin sem barn í sveitasælunni í Svínafelli í Öræfum. Allt var gert hreint hátt og lágt, allir skápar, skúffur og silfurteskeiðarnar hennar Ingu ömmu pússaðar (man að það var ekkert skemmtilegt) Yfirleitt held ég að mamma hafi saumað á okkur jólafötin, svo tókum við yngri við fötum af eldri systrum. Það var sko bakað og bakað, heill hellingur, smákökur, lagtertur og botnar. Ekkert af þessu var snert fyrr en um jólin. Á þessum tíma var svo margt fólk í heimili og man ég að mamma bakaði svo aftur milli jóla og nýárs.
Aðfangadagur var agalega lengi að líða, við þrjár yngri vorum látnar leggja okkur um miðjan daginn til að geta vakað lengur og ábyggilega til að mamma hefði meiri frið við undirbúninginn. En að leggja sig á þessum tíma var það ekkert auðvelt, vorum að reyna að klemma augun aftur. Jólatréð var skreytt eftir að við stelpurnar vorum sofnaðar á Þorláksmessukvöld og lokað inn í gestastofu og pakkarnir undir trénu þar til á aðfangadag.
Á Aðfangadag seinnipartinn þegar búið var að þvo öllum var okkur gefið að borða og var Kjötsúpa í matinn og það borðuðu ekkert allir saman í einu, því þá var verið að keppast við að ljúka útiverkunum og mamma alltaf á hlaupum, borðaði við eldhúsbekkinn og yfirleitt afgangana eftir okkur börnin. Síðan vorum við klædd í sparifötin. Þegar búið var að taka upp gjafir og lesa á jólakortin var skellt á kaffihlaðborð og kakó. Í hádeginu á jóladag var borðað hangikjöt.
Eitt af því sem mér finnst svo skýrt í endurminningunni er lyktin af eplum og appelsínum sem komu með flutningabíl frá Vík, það var svona jólalykt og svo kveikti pabbi sér stundum í vindli, það var eitthvað svo jólalegt. (En reykingar eru það nú ekki beint lengur) Á Jóladagskvöld og yfirleitt öll kvöld fram á þrettándann var spilað fjögurra- manna vist, þá kom fólkið, aðallega karlmennirnir af hinum bæjunum í Svínafelli og spiluðu langt fram á nætur og við börnin fengum að vaka með. Alltaf var tekið hlé og þá hámað í sig smákökur, tertur, kaffi og kakó. Á milli jóla og nýárs var haldið svokallað barnaball, gengið hringinn í kringum jólatré, jólasveinn kom í heimsókn og gaf okkur börnunum eitthvað gott, sennilega epli úr Vík, bláan ópal eða Prins Póló úr búðinni hjá Dodda. Oo! Lyktin í Doddabúð var svo góð, svona ópal, súkkulaði, fata lykt alveg spes. Þetta jólaball var í fundar-samkomu-skóla-húsinu á Hofi. Þangað var ekið í Víboninum hans Jóns í Austur-bænum, ekkert smá gaman og allir sungu hástöfum báðar leiðir. Já, þegar búið var að ganga hring í kring um jólatréð og syngja heil ósköp, drekka heitt kakó og borða fullt af góðum smákökum sem mömmurnar í sveitinni bökuðu var skellt upp balli og dansað fram á nótt, við harmonikkuspil, því þarna komu næstum allir saman úr sveitinni og skemmtu sér saman, ungir, miðaldra og gamlir. Þetta var sko gaman. Þegar líða fór að áramótum var safnað í brennu.
Á þessum tíma var svona handsnúinn sími og allir hlustuðu á alla og kl 12 (að miðnætti) hlupu menn í símann og hringdu út árið, þvílíkur hávaði en gaman.
Jæja þetta var þá og hvernig komst mamma yfir þetta allt sem þurfti að gera inni? Og pabbi í útiverkum og allt miklu seinlegra og erfiðara. En við nútímakonur vælandi yfir hvað allt sé erfitt og mikið að gera með 1, 2 eða 3 börn og öll þægindi. Þurfum helst að vera búnar að baka, pakka inn jólagjöfum og skrifa á kort fyrir 1. Des. Nú til dags finnst mér gaman að fylla allt af jólaskrauti, borða af jóladiskum, drekka úr jóla- glösum eða könnum. En það allra mikilvægasta í þessu lífi er að eiga tvær heilbrigðar stelpur og mann og hafa það gott.
En hafið það sem allra best og lifið í ljósinu. Gleðileg Jól.
Uppskrift dagsins er að mjög einfaldri kryddköku.
3 dl. Hveiti
3 dl. Haframjöl
3 dl. Sykur
3 dl. Mjólk
2 tsk. Natron
1 tsk. Negull
1 tsk. Engifer
Öllu er hrært saman og sett í hringlaga kökuform. Ekki þarf að nota hrærivél heldur nægir góð sleif. Kakan er bökuð í 200 gráða heitum ofni í 55 mínútur, fyrstu 15 mínúturnar má ekki opna ofninn. Kakan er borin fram köld eða heit með smjöri, gott er að hafa ost líka ef fólk er hrifið af osti.




Skrifa athugasemd