Jólagestir
Gulla um jól
Gulla um jól
Guðlaug Úlfarsdóttir
Mynd 1 af 3
1 2 3

02.12.2005 Jólagestir

Á Þorláksmessu eða daginn fyrir gerði amma líka alltaf ísinn

Jólagestur okkar í dag er Guðlaug Úlfarsdóttir kennari við Heppuskóla

Já bernskujólin, þegar maður eldist þá fer maður smá saman að sjá þau í rósrauðum bjarma minninganna. Ég átti mitt bernskuheimili að Stóru ? Mörk undir Eyjafjöllum og þaðan á ég margar af mínum bestu minningum og margar þeirra tengjast jólunum. Mér finnst til dæmis þegar ég hugsa til baka að það hafi alltaf verið snjór á jólunum. Þegar ég hugsa mig betur um þá veit ég ósköp vel að það getur nú ekki hafa verið svo. Ég man líka vel eftir einum jólum, ætli ég hafi ekki verið svona 10 ára. Það hafði lítið sem ekkert snjóað það sem af var vetrar og lítið útlit fyrir snjókomu en rétt um kl. 17:00 á aðfangadag byrjaði á snjóa í logni þessum stóru blautu flyksum sem heima hjá mér var kölluð hundslappadrífa. Á jóladag var enn að snjóa og áður en yfir lauk var allt komið á kaf í snjó.

Á heimilinu var mannmargt miðað við flest heimili í dag. Við erum 7 systkinin og auk mömmu og pabba voru föðurafi minn og föðuramma líka heimilisföst í Stóru ? Mörk. Á jólunum dvöldu einnig oft hjá okkur, eftir að afi dó, móðuramma mín og svo einnig systir hennar hún Ella frænka. Einnig kom fyrir að fleira fólk var statt á heimilinu yfir jólin. Þegar ég lít yfir húsakynnin núna þá skil ég ekki vel hvar allt þetta fólk komst fyrir í einu venjulegu húsi. Aldrei man ég þó til þess að það hafi verið nokkuð vandamál ég minnist þess reyndar aldrei að hafa heyrt minnst á það hvar einhver ætti að sofa. Á þessu heimili kristallaðist orðtakið ? að þar sem er hjartarúm þar er húsrúm?.
Þegar langt var liðið á aðventuna barst heimilinu fyrsta jólagjöfin hún kom alltaf frá Ástu frænku. Það var ömmusystir mín sem gift var heildsala í Reykjavík. Aldrei brást það að frá þeim fengum við stóran kassa af rauðum og ilmandi eplum og annan aðeins minni fullan af mandarínum.

Á Þorláksmessu var oft farið í síðustu ferðina í Kaupfélagið. Þá fengum við systkinin lambapeningana okkar og gátum keypt fyrir þá gjafir handa hinum í fjölskyldunni. Stundum slógum við eldri systkinin saman til að eiga fyrir svolítið veglegri gjöfum handa mömmu og pabba og afa og ömmu. Þegar heim var komið upphófst svo alsherja pukur og launung þar sem hver og einn var að pakka inn sínum gjöfum og merkja. Án þess að þeir sem gjafirnar áttu að fá fengju veður af. Þetta var alltaf ein af mínum uppáhaldsstundum því svo sannarlega er gleðin yfir því að geta gefið mun kröftugri en gleðin yfir því að þiggja.

Það segir sig sjálft að það þarf að hafa reglu á hlutunum á mannmörgu heimili og jólin voru þar engin undantekning. Ekki man ég til þess að skata hafi verið borðuð á Þorláksmessu frekar en á öðrum dögum. Hinsvegar vissi afi fátt betra en skötu og hún var því stundum í matinn á laugardögum þegar ekki var saltfiskur. Oftast var hangikjötið soðið á Þorláksmessu en stundum þó fyrir hádegi á aðfangadag. Á Þorláksmessu eða daginn fyrir gerði amma líka alltaf ísinn sem var eftirmatur á aðfangadag. Oftast var í þessu lostæti að finna appelsínur og oft líka mulinn brjóstsykur. Þar sem þetta var ekta rjóma ís var hann mun gulari á litinn en ísinn sem keyptur er í búðum.

Á aðfangadagsmorgun voru öll börnin snemma á fótum og tilhlökkunin byrjuð að segja til sín. Þá var náð í alla kassana með jólaskrautinu og húsið skreytt rækilega. Ekki man ég til þess að byrjað hafi verið á skreytingum fyrr en það hefur vafalaust verið geymt til þessa tíma til þess að hafa ofan af fyrir okkur fram eftir degi því þá var ekki byrjað að sýna teiknimyndir í dögun eins og nú er.
Í jólamatinn var oftast lambasteik með öllu því sem hægt var að hugsa sér bestu í meðlæti, baunum, rauðkáli, ljúffengri sósu og sultu. Seinna þegar svínakjöt fór að verða algengara og auðveldara að nálgast slíkt varð það Hamborgarhryggur sem tók við af lambakjötinu.

Að máltíð lokinni hjálpuðust allir við að ganga frá í eldhúsi og borðstofu áður en haldið var upp á efri hæðina og allir fundu sér sæti í Baðstofunni en þar var búið að stilla upp jólatrénu og bera undir það allar gjafirnar. Við vorum nú reyndar alltaf svo mörg að ekki var pláss fyrir allt undir trénu svo gjafastaflarnir voru allt í kring um það líka. Í bernskuminningunum er hér um að ræða heilu fjöllin af gjöfum, en svo mikið var það nú sjálfsagt ekki.
Áður en farið var að huga að gjöfunum sátu þó allir hljóðir og hlýddu á jólaguðspjallið en það las móðir mín ætíð mjög hátíðlega og ég man vel hvernig hin síunga saga af fæðingu frelsarans fyllti hjörtun friði og rak burt óróleikann og spenninginn sem gjafahrúgurnar vöktu upp. Að lokum voru sungnir einn eða tveir sálmar eða spilaðir á hljóðfæri eftir að systkini mín byrjuðu að læra á slíkt. Gjafirnar voru síðan dregnar fram og mamma las utan á pakkana og yngstu börnin voru í hlutverki jólasveina og færðu hreykin hverjum og einum sínar gjafir. Eftir að ég varð læs get ég með sanni sagt að bestu jólin voru þegar mest af gjöfunum innihélt bækur. Ég lagðist oft undir feld og ef ég þurfti ekki að stússast í einhverju fyrir mömmu eða ömmu þá las ég jafnvel dögum saman bæði mínar eigin bækur og þær sem systkini mín fengu. Best var að geta birgt sig upp af mandarínum og einu eða tveimur eplum og lesið og lesið. Á kvöldin fórum við svo í allskonar spil og leiki og þetta er eini tíminn sem ég man eftir að við höfum farið seint að sofa jafnvel ekki fyrr en um miðjar nætur því ekki var hægt að hætta að spila. Við spiluðum Púkk, Söguspilið, Matador, ýmis algeng borðspil og svo var auðvitað sígilt að spila á venjuleg spil Vist, Kana eða Manna.

Þó við séum mörg systkinin þá er það nú svo að erfitt er að rífa sig burt frá þeim sterku fjölskyldu böndum sem myndast á svona stundum og því er það nú svo að jafnvel þó flest okkar séu komin með sína eigin fjölskyldur þá leitum við nú enn heim í Stóru ? Mörk yfir jólin og að minnst kosti einhver okkar eru þar alltaf um hver jól. Ég ætla til dæmis að eyða næstu jólum þar með mín börn sem öll hlakka til jólanna hjá afa og ömmu.



Uppskrift að ísnum hennar ömmu Laugu.

Í ísinn fer:

8 egg

7.5 dl. Rjómi

5 skeiðar af sykri

2 appelsínur (sætar) skornar niður í litla bita

Kandís mulinn

Brjóstsykur (Bismark) mulinn

Rjóminn er þeyttur og geymdur í skál. Þeytið saman eggjarauðurnar og sykurinn þar til blandan er ljós og létt. Blandið saman við þeytta rjómann, mulinn kandís,. mulinn brjóstsykur og smátt skornar appelsínurnar. Hrærið það vel saman en ekki þeyta. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega samanvið. Setjið í frysti. Gott er að hræra í blöndunni áður en hún frýs alveg til að gera ísinn léttari (eftir svo sem klukkustund )

Borið fram sem eftirréttur með þeyttum rjóma og ávöxtum.

Verði ykkur að góðu og gleðileg jól.



Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica