Fengum alltaf ný náttföt fyrir jólin
Jólagestur okkar í dag er Vilborg Einarsdóttir fyrrverandi ljósmóðir
Það er ljúft að minnast bernskujólanna heima á Geithellum í Álftafirði og mikil er breytingin síðan ég var barn. Við systkinin vorum ekki gömul þegar við fórum að hjálpa til og ég held að öll börn hafi mjög gott af því að taka þátt í jólaundirbúningnum sem nú er ólíkur því sem áður var. Í nóvember var farið að hugsa fyrir því sem sauma þurfti fyrir jólin því þar var í mörg horn að líta, fjölskyldan stór og öll föt voru saumuð heima. Mamma var dugleg að sauma og ekki hafði hún sniðablöð heldur tók mál af þeim sem sauma átti á og sneið eftir þeim. Ég man hvað það var spennandi að fá nýjan kjól eða pils og við fengum alltaf ný náttföt fyrir jólin. Í desember var allt húsið gert hreint, þvegið hátt og lágt, þá voru notaðar kolavélar með tilheyrandi sóti og reyk, og ég verð að segja að það var gaman að sjá hvað allt varð bjart á eftir. Heima var mikill gestagangur og fyrir kom að fólk var að fara heim til sín rétt fyrir jól og t.d .komu einu sinni 20 manns, sem voru að fara til Hornafjarðar með skipi frá Reykjavík, en urðu að fara í land á Djúpavogi og landleiðina til Hafnar og vegna ófærðar þurfti fólkið að gista á Geithellum.
Tvíbýli var á staðnum og var fólkinu skipt niður á bæina og hélt það svo áfram daginn eftir, sem var Þorláksmessa. Fólkinu fylgt á bíl að Starmýri og þaðan gekk það yfir Lónsheiði nema ófrísk kona sem fékk lánaðan hest yfir heiðina. Lítið var til af auka sængurfatnaði í þá daga og var strax þvegið af rúmunum til að hægt væri að skipta á fyrir kvöldið. Ekki var mikið um jólagjafir á þeim tíma en spil og kerti fengum við og vorum hæst ánægð með það. Á aðfangadagskvöld var öllum verkum lokið fyrir kl sex, búið að fara í bað og allir komnir í sparifötin, síðan var borðað hangikjöt,alltaf heitt, og á jóladag var steikt lambalæri og tilheyrandi meðlæti. Ekki þekktist að skjóta rjúpur, sem voru heima við bæ. Á jóladag fórum við í kaffiboð til bróður pabba og fjölskyldu sem bjó á hinum bænum. Þar voru átta í heimili svo þarna voru saman komin um tuttugu manns. Eftir kaffið var sest niður við að spila en við börnin hlustuðum á barnatímann sem byrjaði kl.sex. Heim var svo haldið um miðnætti og á nýjársdag kom fjölskyldan þar til okkar. Þetta voru góð jól. Á þessum árum þurftum við oft að ganga úr rúmi fyrir gestum og sváfum í eldhúsinu með teppi ofaná okkur og var það ekkert mál eftir að Aga-vélarnar voru komnar á heimilin þá var alltaf heitt í eldhúsinu og jólailmur allstaðar.
Kúrenukökur.
250 gr ísl.smjör
2 bollar hveiti
2 bollar kókosmjöl
2 bollar sykur
1 egg
kúrenur
Hnoðið allt saman og geymið í kæli í hálfa klst. Flatt út, ekki mjög þunnt
stungnar undan glasi. Bakað við 200°




Skrifa athugasemd