Jólagjafirnar frá afa voru þær stórkostlegustu sem sést hafa
Jólagestur okkar í dag er sr. Fjölnir Ásbjörnsson
Foreldrar mínir fluttu til Sauðárkróks þegar ég var lítill en vildu samt sem áður lengi vel verja jólunum í Reykjavík. Ég man vel hvað það var erfitt að ferðast á milli landshluta á þessum tíma. Þar sem foreldrar mínir átt ekki bíl var oftast nær reynt að fljúga en það gekk ekki alltaf samkvæmt áætlun og oft þurfti að bíða og vona að veðrið lagaðist. Svo þegar tími var kominn til að halda til baka eftir jólin var yfirleitt það sama upp á teningnum og við þurftum að sitja heilu og hálfu dagana úti á Reykjavíkurflugvelli í von um að komast heim.
Þegar við vorum í Reykjavík bjuggum við hjá ömmu sem bjó ein í Meðalholtinu og hafði verið ekkja síðan 1963. Mér þótti mjög vænt um ömmu mína og henni sömuleiðis um mig, mér þótti þess vegna ágætt að vera hjá henni yfir jólin. Amma bjó í lítilli íbúð og átti auk þess eitt herbergi í kjallaranum þar sem við sváfum yfirleitt, foreldrar mínir og ég þegar við komum í heimsókn. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því af hverju foreldrar mínir vildu endilega hafa þetta fyrirkomulag á hlutunum en mér þótti þetta ágætt. Jólin með gömlu konunni voru hátíðlega og góð þrátt fyrir óþægindin sem fylgdu þessu jólaflakki.
Fyrir utan þessa einu ömmu átti ég einn afa sem einnig var ekkill og bjó í næstu götu við ömmu. Ég skildi ekkert í því af hverju amma og afi bjuggu ekki saman og þegar ég færði það í mál við ömmu hvort hún vildi ekki giftast afa fussaði hún bara og sveiaði. Þessi afi minn sem bjó í Stangarholti var loftskeytamaður á Goðafossi og var þess vegna oft í útlöndum, þar keypti hann meðal annars jólagjafir fyrir barnabörnin sín. Afi var lokaður maður og lítið fyrir að sína tilfinningar sínar en jólagjafirnar frá honum voru þær stórkostlegustu sem sést hafa. Jólagjafirnar frá foreldrum mínum féllu gjarnan í skuggann af gjöfunum frá afa sem voru keyptar í Ameríku flottari en allt sem sást á Íslandi. Meðal þess sem leyndist í pökkunum frá afa var rafdrifinn gervikarl, risastórir leikfangabílar og forkunnafagurt reiðhjól með bananasæti sem var líkara vélhjóli en nokkru reiðhjóli. Um jólin gaf afi okkur alltaf dósagos og kassa af M&M en hvorugt var þá fáanlegt á Íslandi og þótti hinn mesti fengur.
Eitt sem hefur verið sérstakt við þau jól sem ég lifði í foreldrahúsum var það að faðir minn bannaði algjörlega kertaljós og þótti mér það heldur súrt í broti þegar ég var yngri og þótti mér lítið jólalegt ef ekkert var kertaljós. Ég öfundaði mikið börnin í sögunum sem gengu um baðstofuna með tólgarkertin sín. Þessa kertafælni föður míns mátti trúlega rekja til þess tíma þegar hann bjó í timburhúsi.
Amma mín átti það til að baka eplaköku og tengi ég því eplakökur við jólin. Hér er uppskrift af einni slíkri. Ekki er ég viss um að þetta sé uppskriftin hennar ömmu en afurðin er í það minnsta svipuð.
EPLAKAKA
Uppskrift:
250 g sykur
250 g smjörlíki
4 egg
7-10 msk sjóðandi vatn
vanilludropar
250 g hveiti
1,5 tsk lyftiduft
2 stór epli
kanilsykur
Aðferð:
Hræra saman smjörlíki og sykri þar til áferð verður kremuð. Næst bætt út í eggjum, einu eggi í einu. Skafa vel upp úr botninum og bæta að lokum rest út í og vinna vel saman.
Epli flysjuð og hreinsuð, sett ofaná í sneiðum síðan er kanilsykri dreift yfir.
Bakað við ca.200°C
Passar í tvö form /eitt ca 24-26 cm. og eitt 22 cm
Verði ykkur að góðu.
Ég óska svo öllum gleðilegra jóla.




Skrifa athugasemd