Ég fékk alltaf bækur í jólagjöf frá því að ég man eftir mér
Jólagestur okkar í dag er Ingibjörg L. Ragnarsdóttir
Mér er mjög ljúft að minnast jólanna úr bernsku, undirbúningurinn byrjaði með bakstri á jólasmákökunum mamma bakaði alltaf margar sortir og fullt af gómsætum tertum. Mamma saumaði alltaf nýjan kjól handa mér fyrir jólin. Pabbi og mamma fóru í kaupstaðinn fyrir jólin og sáu um að versla það sem til þurfti og stundum fékk ég að fara með. Jólahátíðin gekk í garð þegar búið var að sinna skepnunum eins og títt er í sveitum og var þeim alltaf gefið heldur meira en í annan tíma og eftir að rafmagnið kom var látið loga ljós hjá kúnum fram eftir.
Á borðum hjá okkur á aðfangadagskvöld var ávallt steiktur lambahryggur eftirréttur var heimatilbúinn ávaxtagrautur með rjóma út á og svo var það jólahangikjötið heimareykta sem borðað var á jóladag, pabbi var snillingur í að reykja kjöt og er það eitt af því sem ég sakna mest að fá ekki heimareykt hangikjöt lengur, kjötið hékk út í skemmu eftir að það kom úr reyk og laumuðumst við oft í hráa kjötið því það þótti okkur svo gott. Í heimili hjá okkur voru alltaf föðuramma mín Ingibjörg og Guðbrandur bróðir pabba og Magga systir pabba kom alltaf heim um jól og var hjá okkur líka.. Fyrir ein jólin bjó pabbi til jólahús úr pappakassa handa mér það var klætt með bómull og rauður kreppappír límdur í gluggana og svo var sett ljós í húsið. Seint á aðfangadagskvöld var það siður að heimilisfólkið kæmi saman, ásamt Sigga bróðir pabba og hans fjölskyldu sem bjuggu í sama húsi og við, í kvöldkaffi hjá pabba og mömmu og þá var mamma búin að dekka borð með smákökum, rjómatertum og laga heitt súkkulaði.
Ég fékk alltaf bækur í jólagjöf frá því að ég man eftir mér og fannst mér ekkert notalegra en að ylja mér við lestur þeirra.
Jólaboð var alltaf hjá ömmu minni á Smyrlabjörgum og var þar oft margt um manninn.
Alltaf var farið í messu í Kálfafellsstaðarkirkju um jólin og jólaböllin í Hrollaugsstöðum voru ómissandi og þar mættu allir úr sveitinni.
Aðventunnar reyni ég að njóta sem best og gera eitthvað skemmtilegt, ég er hætt að baka tíu sortir af smákökum og fullt af tertum eins og ég gerði fyrst þegar ég fór að búa, en mér finnst desember einn skemmtilegasti mánuður ársins og þess vegna reyni ég að njóta hans.
Eftir að við Torfi fórum að búa höfum við skapað okkar eigin hefðir en hangikjötið borðum við enn hjá mömmu á jóladag.
Hjá okkur er alltaf elduð skata í hádeginu á Þorláksmessu og það má segja að það sé byrjunin á jólunum því þá borðum við öll fjölskyldan saman.
Laufabrauð steikjum við alltaf, það þekkti ég ekki en Torfi var vanur því. Við tókum upp jólagrautinn með möndlugjöfinni og þykir hann svo ómissandi að eftir að Borgþór sonur okkar og hans fjölskylda hættu að vera hjá hjá okkur á aðfangadagskvöld er grauturinn hafður í hádeginu á aðfangadag svo að allir geti verið með og er það hin mesta skemmtun.
Við eldum alltaf hamborgarahrygg með brúnuðum kartöflum á aðfangadagskvöld og er passað að hann sé ekki borðaður í annan tíma. Ég sé um hrygginn en Torfi um kartöflurnar og svo er heimalagaður ís á eftir.
Það tilheyrir jólunum að fara á jólatónleika sem karlakórinn stendur fyrir ásamt öllum öðrum kórum hér síðasta sunnudag fyrir jól og þegar kórarnir ljúka tónleikunum með því að allir syngja Heims um ból finnst mér jólin vera komin.
Ég læt hér fylgja með uppskrift sem eru góð með öllum sætindunum.
Gráðostahringur
50 g smjör
100 g gráðostur
150 g hvítlauksostur
Brætt í potti og kælt.
1 peli rjómi
4 blöð matarlím
Rjóminn þeyttur. Matarlímið lagt í bleyti í köldu vatni og síðan blöðin brædd í vatnabaði og kæld. Öllu síðan hrært saman. Passar í lítið hringform. Borið fram með víberjum og kexi.
Verði ykkur að góðu.
Ég óska svo öllum gleðilegrar jólahátíðar.




Skrifa athugasemd