Bræður mínir fimm voru duglegir við uppvaskið eftir matinn
Jólagestur vefsins í dag er Svandís Bogadóttir
Undirbúningur jólanna þegar ég var að alast upp heima á Djúpavogi var hefðbundinn allt þrifið hátt og lágt, mikið bakað bæði smákökur og tertur og kökudunkarnir innsiglaðir með límbandi því ekki var boðið upp á smákökur fyrr en á aðfangadagskvöld með súkkulaðinu. Ég man eftir að sérlega vinsælar voru málsháttakökur, alltaf spennandi að heyra hvaða málshátt hver fékk. Mamma saumaði jólafötin á okkur systkinin og heklaði eða prjónaði vesti á strákana, og ný náttföt fengum við alltaf fyrir jólin. Einn var siður á mínu heimili þegar jólasveinarnir fóru að týnast til byggða þrettán dögum fyrir jól að skrifa nöfn þeirra á blað í réttri röð og síðan var sá gestur sem fyrstur kom í heimsókn þann daginn jólasveinn dagsins, svo þegar allir sveinarnir voru mættir voru nöfn gestanna sett í skál og eitt nafn dregið út og fékk sá gestur smá gjöf.
Enn er í fersku minni jólalyktin af eplunum og mikið tilhlökkunarefni var að fá nammikassa frá frænku minni á Akureyri sem vann í Lindu og sendi alltaf nammi fyrir jólin. Á aðfangadag fór pabbi með okkur krakkana í kirkjugarðinn og fannst mér það heilög stund. Við fórum ekki í messu á aðfangadagskvöld en hlustuðum á útvarpsmessuna og fórum svo í kirkju á jóladag. Ótvírætt merki þess að jólin væru að ganga í garð var þegar pabbi var lagstur á fjóra fætur á eldhúsgólfið á aðfangadag og farinn að skúra. Maturinn á aðfangadagskvöld var lambahryggur ýmist nýr eða léttreyktur, heimatilbúinn ís á eftir og mikið var jólaölið gott . Mikið fannst mér ánægjulegt að sjá hvað bræður mínir fimm voru duglegir við uppvaskið eftir matinn, enda biðu jólapakkarnir, sem í minningunni voru margir.
Eftir að við Reynir fórum að búa höfum við haft svínahamborgarhrygg og heimatilbúinn ís á eftir, hann var vanur rjúpum á aðfangadagskvöld á sínu heimili en er sáttur við svínið. Fjölskylda Reynis hefur alltaf komið saman í desember og bakað laufabrauð og finnst mér þessi siður ómissandi í jólaundirbúningnum, einnig hittist fjölskyldan á annan í jólum og borðar saman. Mín fjölskylda reynir svo að hittast milli hátíða hjá mömmu og pabba, nú á Egilsstöðum. Mér finnst aðventan mjög notalegur tími og reyni að njóta hennar sem og jólanna og alltaf fæ ég kökk í hálsinn þegar Heims um ból hljómar í útvarpsmessunni á aðfangadagskvöld og eins þegar lestur jólakveðjanna í útvarpinu hefst á Þorláksmessu. Ekki er alltaf sjálfgefið að allir eigi gleðileg jól og er mér oft hugsað til þess, án þess að ég geti nokkurn tíma sett mig í spor móður minnar, um hvernig hennar jól voru 1948 en ég vona að við fjölskyldan höfum gert henni lífið bærilegt á þessum tíma í gegnum tíðina. Að lokum óska ég öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Konfektkaka:
4 eggjahvítur
140 gr.flórsykur
140 gr. kókosmjöl
Eggjahvíturnar stífþeyttar og flórsykri og
kókosmjöli blandað saman við.
Bakað í tveim tertumótum við meðalhita.
Krem.
4 eggjarauður
60 gr. flórsykur
100 gr. smjör
100 gr.brætt súkkulaði
Smjörið hrært vel með flórsykrinum,
Eggjarauðum bætt út í og þeytt um stund.
Að síðustu er bræddu súkkulaði hrært saman við.
Krem á milli og ofan á kökuna ,skreytt með konfekti.
Skinkuhorn:
51/2-6 dl.hveiti
50 gr. smjörlíki
1 tsk. salt
1 tsk sykur
31/2 tsk.þurrger
2 dl.vatn (ylvolgt)
Hrærið gerið út í ylvolgu vatni. Myljið smjörlíkið saman við hveitið.
Blandið salti og sykri í og hellið út í gerblönduna,sláið lofti vel í deigið
eða hrærið í hrærivél. Hnoðið deigið jafnt og gljáandi. Skiptið því í tvennt og
fletjið út í kringlóttar kökur og skerið út með kleinujárni í 8 þríhyrninga.
Setjið fyllingu á og rúllið upp í horn ,látið lyfta sér við yl í u.þ.b.
30 mín.Penslað með vatni eða eggi og kúmeni eða birkifræi stráð yfir.
Bakað í miðjum ofni við 225¨° í 8-10 mín.
Fylling.
150 gr. skinka
100 gr. smurostur
Verði ykkur að góðu.
Svandís Guðný Bogadóttir.




Skrifa athugasemd