Jólagestir
Ásdís Gunnarsdóttir Hofi
Ásdís Gunnarsdóttir Hofi
Ásdís Gunnarsdóttir Hofi, jólagestur á Hornafjörður.is

19.12.2004 Jólagestir

Alltaf tekið sauðahangikjöt í jólamatinn

Ásdís Gunnarsdóttir Hofi er jólagesturinn í dag

Þegar ég lít til baka og rifja upp mín bernskujól á Hnappavöllum kemur upp í hugann að alltaf fengum við systurnar nýja kjóla fyrir hver jól og lagði mamma oft mikið á sig til að ljúka við saumaskapinn í tæka tíð. Ég man sérstaklega eftir kjól úr bleiku tafti, sem pantað hafði verið eftir prufum sem komu frá KS Vík. Ég var mikið búin að skoða efnið og strjúka og fylgdist vel með þegar verið var að sníða kjólana en þeir voru með hringskornu pilsi og miklum pífum á blússunni. Það var alltaf bakað mikið fyrir jólin bæði smákökur, jólakökur og sneiddar tertur og oft var verið að fram á nótt því rafmagnið var af skornum skammti á bæjunum og því oft hærri spenna á nóttunni Þá fengum við einnig epli rauð og gljáandi og fylgdi þeim sérstakur ilmur sem var ótvírætt vitni um að jólin væru að nálgast.

Á Þorláksmessu var hangikjötið soðið og man ég sérstaklega eftir því þegar pabbi kom inn með kjötið sem hann var búinn að saga niður og tilbúið var í stóran pott. Þá fengum við krakkarnir að smakka þunnar sneiðar af hráu hangikjöti úr góðum bita og fannst okkur það mikið lostæti. En sumir bitarnir voru ansi feitir því alltaf var tekið sauðahangikjöt í jólamatinn. Á aðfangadag var skipt á rúmunum og allt var skúrað og og þvegið hátt og lágt. Ekki var mikið um skreytingar aðeins jólalöber og músastigar úr pappír, enga jólaseríu höfðum við bara lítil snúin kerti í mörgum litum. Alltaf var snemma búið með gegningar á þessum degi því það var borðað milli kl. 5 og 6,
hangikjöt, uppstúf og þykkan ávaxtagraut með rjóma. Þegar máltíðin lauk fóru allir upp og hvíldu sig meðan hlustað var á messuna í útvarpinu.

Man ég sérstaklega eftir því þegar sr Óskar J. Þorláksson las jólaguðspjallið. Seinna um kvöldið var svo sparikaffistellið tekið fram og drukkið kakó með rjóma og boraðar góðar kökur í stofunni, okkur hafði verið gefið lítið borðjólatré sem okkur þótti mjög fallegt. Á jóladag og annan í jólum var oft farið á aðra bæi eða krakkarnir úr Vestur-Hjáleigu komu í heimsókn til okkar, stundum var þá spilað, sérstaklega púkk sem amma kenndi okkur. Á þriðja í jólum var svo jólaballið á Hofi og var mikil tilhlökkun að fara þangað í nýju
kjólunum, þá komum við til afa og ömmu og þeirra í Lækjarhúsum og fengum eitthvað gott hjá þeim.

Gleðileg jól.



Súkkulaðikökur

200 gr hveiti
100 gr kókosmjöl
200 gr smjörlíki
125 gr sykur
hálf tsk hjartarsalt
3 tsk kakó
1 stk egg
vanilludropar

Allt hnoðað og búnar til kúlur sem velt er upp úr kókosmjöli.


Englatoppar

4 eggjahvítur stífþeyttar
200 gr sykur
200 gr kókosmjöl
100 gr suðusúkkulaði brytjað
1 poki bismarkbrjóstsykur mulinn



Sett með teskeið á plötu, bakað í 10-15 mín.


Ásdís Gunnarsdóttir Hofi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica