Jólagestir
Laurey Helgadóttir
Laurey Helgadóttir
Laurey Helgadóttir jólagestur á Hornafjörður.is

17.12.2004 Jólagestir

Desember mánuður var eitt ævintýri heima

Jólagesturinn í dag er Laufey Helgadóttir

Að minnast sinna bernskujóla er mér afar ljúft.Ég er fædd og uppalin á Höfn, ég er elst þriggja systra.
Foreldrar mínir eru Helgi Hálfdanarson og Vilborg Einarsdóttir.Þegar ég man jólin og undirbúning jólanna bjuggum við á Hafnarbraut 37 þar sem foreldrar mínir búa enn. Höfn var þá lítill bær og maður þekkti nánast alla. Foreldrar mínir unnu mikið og var ekki oft að pabbi væri heima bæði á laugardögum og sunnudögum, ég held að það hafi verið algjör undantekning ef svo bar við. Í minningunni var miklu kaldara í veðri en kannski eru fötin sem við eigum í dag hlýrri.Við krakkarnir biðum eftir að jólaljósin á Grísstaðarhæðinni og Sólbæ væru sett upp, og mikið voru þau falleg.

Desember mánuður var eitt ævintýri heima, fólk kom frá Djúpavogi Álftafirði sveitunum hér í kring og Öræfunum að versla inn fyrir jólin og margir komu heim á Hafnarbrautina og þáðu kaffisopa og sumir þáðu gistingu, því oft var ófært á milli Hafnar og Djúpavogs á þessum tíma er skólakrakkarnir voru að koma heim í jólafrí
Mamma bakaði oft á nóttinni og tók til í húsinu því allt varð að vera hreint eins og í dag. Ekki veit ég hvernig hún komst yfir þetta því oft var hún með sængurkonur, annað hvort heima hjá sér eða í öðrum húsum á Höfn. Stundum þurfti að skammta rafmagnið, og þá var nú gaman að vera barn og hópuðumst við krakkarnir saman úti að leika okkur.


Ein jól eru þó minnisstæð því þau voru svolítið öðruvísi.Við vissum að von væri á frænda okkar sem koma átti með flugi frá Reykjavík, hann, konan hans og þrjú börn og það yngsta tveggja mánaðar gamalt.
Það var mikil ófærð þennan desember. Þau komu með flugi 23 des og ætluðu austur sama dag eða daginn eftir, en veðurguðirnir voru ekki á því.
Lónsheiðin ófær og enginn fór neitt. Þau eyddu jólunum hjá okkur og ég man hvað ég vorkenndi eldri börnunum að jólagjafirnar þeirra voru allar ofan í tösku og þau fengu bara fáeina pakka til að opna. Þetta aðfangadagskvöld vorum við 10 manns og bættist ein 5 mann fjölskylda úr Nesjunum við á jóladag. Mamma var með tvær sængurkonur og fór til þeirra tvisvar á dag en samt var allt til sem við þurftum og meira til, til að metta allt þetta fólk.
Á hverju Þorláksmessu kvöldi lokuðu mamma og pabbi stofunum og inn fengum við ekki að fara fyrr en við komum úr kirkju sem við systurnar fórum með pabba í kl 18. Og mikið var stofan fín og jólatréð stórt og fínt (þó það væri ekki nema 1 metir á hæð). Af ferðafólkinu er það að segja að á þriðja í jólum komust þau sjóleiðina til Djúpavogs. Þó svo að miklar annir væru oft á bernskuheimili mínu var samt svo mikill friður og ró sem fylgir jólunum enn þann dag í dag þegar jólin ganga í garð.

Það er ósk mín að jólin nú færi okkur birtu og yl og blessun fylgi nýja árinu.
Laufey Helgadóttir
Smyrlabjörgum

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica