Jólagestir
Anna María Ragnarsdóttir í Freysnesi
Anna María Ragnarsdóttir í Freysnesi
Anna María Ragnarsdóttir í Freysnesi

16.12.2004 Jólagestir

Ekkert jafnast á við að geta verið heima með krökkunum.

Jólagesturinn í dag er Anna María Ragnarsdóttir.

Þegar ég átti heima í Skaftafelli var það á þeim árum þegar snjóaði á veturna. Þá varð vegurinn upp í Hæðir oft ófær, því þó að hægt væri að brjótast á bíl upp í Bölta, komu oft stórir skaflar á veginn þar fyrir ofan, svo það var með öllu ófært. Þessi vetur sem ég minnist á hér, var snjóþungur og því ófært upp. Þess vegna var
bíllinn okkar geymdur í skemmu við brekkurnar, sem var fyrir austan varnargarð Skeiðarár. Síðan gengum við upp Drangana og komum upp túnið fyrir neðan Selbæinn.Þennan vetur höfðu foreldrar mínir gert jólainnkaupin í búðinni á Fagurhólsmýri eftir að ófært var orðið heim. Við höfðum borið með okkur eitthvað af viðkvæmustu vörunum s.s. jólagjafir og ávexti upp brekkurnar þegar úr verslunarferðinni kom en skilið s.s. niðursuðuvörur og þess háttar eftir í bílnum.

Svo undarlegt sem það nú er, þá varð ég heldur ólatari að hjálpa til í desember því jólin voru framundan, og eftir því sem ?jólaverkefnum? fækkaði á lista mömmu styttist til jólanna. Minnug þess að það væri eftir að sækja eitthvað úr verslunarferðinni
ákvað ég að bjóða fram aðstoð mína að ná í það sem eftir væri í bílnum. Þó að úti væri kalt en fallegt veður tókst mér að telja foreldrum mínum trú um að þetta væri ekkert mál. Einhverjar fortölur frá foreldrum mínum um að það væri harðfenni og stórir skaflar í brekkunum lét ég sem vind um eyru þjóta ? nú ákvað ég að sýna foreldrum mínum hvers ég væri megnug, enda var ég orðin 12 ára gömul. Það voru líka bara örfáir dagar til jóla.
Ferðin gekk vel niður brekkurnar og í bílnum setti ég fullt af dóti í poka og skellti honum á bakið og lagði af stað upp. Ferðin gekk hægt og bara nokkuð örugglega, alveg þangað til efst í brekkunum. Þá þurfti ég að hvíla mig . Þá vildi ekki betur til en svo að pokanum fannst nóg komið líka, og upp úr honum ultu niðursuðudósir og rúlluðu niður þennan frosna skafl og stoppuðu á hríslum hér og þar . Mér fannst allt mitt puð til einskis og
það sem fór í gegn um huga mér á þessari stundu ætla ég ekki að skrifa hér en hugur minn og skap áttu ekkert skilt við frið og ró jólanna. En þar sem foreldrar mínir máttu ekki með nokkru móti komast að þessu svo ég þyrfti ekki að viðurkenna að þau hefðu haft rétt fyrir sér, var ekki um annað að ræða en að renna sér á rassinum eftir grænu baununum og rauðkálinu og tína saman fjárans dósirnar. Þetta tókst ? en ég hef sjaldan verið jafn þakklát fyrir öll trén í Skaftafellsskógi eins og ég var þennan dag. Aftur á móti sagði ég foreldrum mínum ekki frá þessu fyrr en mörgum árum seinna, en þessi ferð kemur alltaf upp í huga minn fyrir hver jól.

Desembermánuður er mikill jólamánuður hjá okkur og við reynum að vera eins mikið heima með krökkunum og hægt er. Við byrjum að taka upp jóladót með aðventunni og höfum smákökur og þ.h. alla aðventuna. En samt jafnast ekkert á við að geta verið heima með krökkunum yfir þennan tíma.

Ég læt fylgja með nokkrar uppskriftir sem eru vinsælar allt árið á mínu heimili.

Draumterta:

3 egg
1 ½ dl sykur
3 msk hveiti
3 msk kartöflumjöl
3 msk kakó
1 ½ tsk lyftiduft

Egg og sykur þeytt saman. Þurrefnunum bætt út í og allt hrært varlega saman. Deigið er sett í smurt mót c.a. 30x40 cm stórt og bökuð við 175°C í 5-8 mínútur. Eftir baksturinn er kakan látin kólna og útbúin fylling.

Fylling:
2 ½ dl rjómi
1 lítil dós jarðarber

Rjóminn er þeyttur og jarðarberjunum bætt út í (ath að láta safann renna vel af). Ég nota oft banana og stappa þá og hræri saman við rjómann í staðin fyrir jarðarberin. Það má líka nota aðra ávexti bæði ferska og frosna. Síðan er þessu smurt á kökuna og henni rúllað upp. Þessa köku er upplagt að búa til með fyrirvara og frysta. Svo má auðvitað sprauta rjóma á hana en það er smekksatriði.



Sælgætisréttur:

Þú þarft mót t.d. eldfast mót eða eitthvað sem er grunnt.
Einn botn marengs ? eða eitthvað því um líkt en þetta er mulið í botninn á mótinu.
½ ltr rjómi þeyttur og saman við hann er blandað 2-3 kókosbollum (eða negrakossum)
Þessu er hellt yfir marengskurlið
Yfir þetta er stráð: súkkulaðirúsínum,
Söxuðu mars súkkulaði eða rollo súkkulaði eða bara einhverju fylltu súkkulaði
Gróft söxuðu kiwi
Gróft söxuðum banönum
Vínberjum
Jarðarberjum
Bláberjum

Rétturinn er látinn bíða (ef hægt er) á meðan marengsinn linast upp og hvað tekur bragð af öðru. Þetta er mjög góður réttur bæði einn og sér og sem eftirréttur.

 

Peruterta:

Botninn:
3 egg brotin í glas
Sykur settur í annað glas jafnhátt
Í þriðja glasið eru settar 2 tsk. lyftiduft, 1 matskeið kartöflumjöl og hveiti jafnhátt og í hinum glösunum.
Egg og sykur þeytt vel og þurrefnunum síðan blandað út í .
Bakað við góðan hita um það bil 200-220 gráður.

Þegar kakan er orðin köld er smurt ofan á hana sultu og síðan er einni heildós af perum raðað ofan á. Kreminu er síðan hellt yfir.

Kremið:
3 eggjarauður
1 msk. sykur
70 grömm súkkulaði
2 blöð matarlím
3 desilítrar rjómi

Rauðurnar þeyttar með sykrinum. Súkkulaðið brætt og kælt og látið út í ásamt matarlíminu sem hefur verið leyst upp, og þeyttum rjóma. Ég tek oft af þessu svolítinn rjóma til að sprauta á kökuna á eftir ? en þetta er smekksatriði.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica