Jólagestir
Gísli Már Vilhjálmsson
Gísli Már Vilhjálmsson
Gísli Már Vilhjálmsson í eldhúsinu á Hótel Höfn.

13.12.2004 Jólagestir

Háma í sig konfekt og drekka mikið jólaöl

Gísli Már Vilhjálmsson jólagestur hornafjörður.is

Það er mjög stór hluti af mínum jólaundirbúningi fólgin í gömlum og nýjum hefðum sem í dag mætti kalla okkar hefðir. T.d í gamla daga heima hjá mömmu var skreytt á Þorláksmessu en núna byrjum við miklu fyrr, jólatréð þó alltaf skreytt á Þorláksmessukvöldi.
Í gamla daga voru öll jólakort opnuð strax til að engin myndi gleymast en núna opnum við þau á aðfangadagskvöld þannig veist þú lesandi góður, ástæðuna ef þú færð ekki kort fyrr en milli jóla og nýárs !! Jólasmákökurnar voru geymdar sem hernaðarleyndarmál til jóla. Síðan var þessu úðað í sig ef ég var ekki of seinn þar sem ég á tvo eldri bræður þurfti nú oft að taka tillit til þeirra fyrst en síðan komu mínar þarfir eða svo minnir mig allavega.

Í dag er bakað í lok nóvember og við borðum smákökur alla aðventuna við mikinn fögnuð barnanna og Þórdísar!! Síðan við Þórdís kynntumst þá höfum við gefið hvort öðru bók sem lesin er yfir jólahátíðina það er alveg ómissandi partur af jólunum að lesa bók, háma í sig konfekt og drekka mikið jólaöl.
Jólasteikin er hamborgarahryggur algerlega ómissandi og ég reyni að passa mig á að smakka ekki á honum fyrr en á jólunum en vinnu minnar vegna er það stundum erfitt.
Hápunkturinn á jólunum er síðan að opna pakkana og þar var líka ákveðin hefð. Pabbi las á pakkana en ég fékk að dreifa þeim á heimilisfólkið. Þessari hefð kom ég á hjá okkur og er það gert, en fyrstu jólin fóru í að útskýra fyrir Felix Þór að pakkarnir væru ekki allir frá honum!!

Ég vil nota tækifærið og óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Hér fylgir uppskrift að mömmukökum sem við Þórdís fengum hjá Völu og Rönnu.
Verði ykkur að góðu.

Mömmukökur Völu og Rönnu
125 gr smjörlíki
250 gr síróp
125 gr sykur

Sett í pott látið malla við vægan hita ? þangað til það nær saman. KÆLT
1 egg
500 gr hveiti
2 tsk natron
1 tsk engifer

Egg sett fyrst út í hrært saman við að lokum þurrefnin - hnoðað ? látið standa yfir nótt. Flatt út og skorið út (gott að nota mjólkurglas ? fer eftir hvaða stærð maður vill hafa á kökunni)

Smjörkrem
3 msk smjör
2 bollar flórsykur
1 eggjarauða
2 msk rjómi

Kremið sett á milli með skeið - kökurnar eru bestar með ískaldri mjólk !!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica