Ég held enn þann sið að borða hangikjötið hjá mömmu á jóladag.
Jólagesturinn í dag er Magnhildur Gísladóttir
Mér finnst aðventan vera yndislegur tími. Aðventan hefur breyst mjög mikið frá því ég var lítil. Núna finnst mér þetta vera sá tími sem fólk er duglegt að búa sér til notalega stund. Á æskuheimili mínu breyttist móðir mín í stórvirka hreingerningarvél. Hún þvoði allt hátt og lágt inn í skápum og alls staðar svo það var eins gott að verða ekki á vegi hennar. Einnig voru bakaðar smákökur en þær mátti ekki borða fyrr en jólin voru gengin í garð því allt var innsiglað í staukum. Á aðfangadag voru jólakortin borin út en eftir það var spennan alveg að ná hámarki. Þá tók móðir mín á það ráð að leyfa þessu óþolinmóða barni sínu að taka upp einn pakka sem var yfirleitt frá móðursystir minni henni Ástu. Það var alltaf borðað svínakjöt á aðafangadagskvöld frá því ég man eftir en síðan hangikjötið á jóladag. Og ég man alltaf eftir hvað mig langaði alltaf að heimsækja Dísu vinkonu mína Imsland á aðfangadagskvöld til að sína henni gjafirnar en eins var þá og nú að jólin voru hátíð fjölskyldunnar. Ég held enn þann sið að borða hangikjötið hjá mömmu á jóladag.
Fyrst eftir að ég byrjaði að búa reyndi ég að halda í hefðir móðir minnar og hreingera og gera allt sem hún gerði en því miður virðist ég ekki hafa erft þessa frábæru tækni móður minnar svo ég varð að finna nýjar hefðir.
Í minni vinnu er jólin líka áberandi og einnig full af hefðum það er jólaföndrið, stofujólin og svo litlu jólin. En við í skólanum höfum aldrei byrjað of snemma í jólastússinu svo á mínum kennsluferli hefur mér aldrei fundist vera mikil spenna meðal barnanna heldur eigum við góðar stundir í kennslustofunni. En heima hjá mér baka ég alltaf eina tvær smákökusortir sem eru borðaðar jafnóðum og brúna rúllutertu. Þegar jólin eru gengin í garð er lagst í mikið át sem stendur yfir fram yfir áramót en þá strengir maður þess heit að borða minna og hreyfa sig meira. Það sem er og verður alltaf best við jólin er að þau eru hátíð hefðanna því allir eiga sínar hefðir og siði í kring um jólin.
Hér kemur smákökuuppskrift sem mér finnst alveg ómissandi og uppskrift að brúnni rúllutertu.
Hnetublóm (uppskrift ættuð frá Sigurbjörgu Hákonardóttur)
1 ¾ bolli hveiti
1 teskeið matarsóti
½ teskeið salt
½ bolli smjörlíki
½ bolli hnetusmjör
½ bolli sykur
½ bolli púðursykur (þjappaður)
1 egg
1 teskeið vanilludropar
súkkulaðidropar
Hrært deig og sett með tesk á plötu.
Bakið við 190 °C í 10 ? 15 mín. Þá eru kökurnar teknar út og súkkulaðidropum þrýst ofaná hverja köku.
Bakið í 2 ? 5 mín lengur.
Ath. Bakið í efstu rim.
Brún rúlla
3 egg
105 gr sykur
60 gr hveiti
1 ½ msk kartöflumjöl
2 teskeið kakó
½ teskeið matarsóti
Krem
150 gr smjör
100 gr smjörlíki
230 gr flórsykur
1 egg
1 teskeið vanilludropar
Einnig er mjög gott að þeyta rjóma og setja súkkulaðispænir og t.d. perur á milli í rúllutertuna.
Þeytið egg og sykur el saman í ca. 10 mín. Sigtið þurrefnin saman út í eggjahræruna og blandið varlega saman með sleikju. Smyrjið á bökunarplötu og bakið við 230°C í 6 ? 7 mín.




Skrifa athugasemd