Ég hef eldað jólahrygginn frá því ég var í gaggó
Jólagesturinn í dag er Ingólfur Einarsson.
Jóla undirbúningurinn hefst þrem vikum fyrir jól en þá eru fyrstu jólahlaðborðin og einkennist desember af því að vinna allar helgar, börnin ekki alltaf ánægð en svona er þetta. Hér úr fortíðinni voru það jólaböllin á Stokksnesi og hjá Lions sem var beðið eftir það var mikill eftir vænting að fara með Ingólfi afa útá nes á jólaball og fá stóru rauðu eplin sem voru á stærð við handbolta eða kannski eru þau bara svona stór í minningunni og svo kom jólasveininn með þyrlu. Þar var allt í boði, matur, nammi og skemmtun, Lions jólaböllin standa enn og nú fer maður með sín eigin börn þangað um hver jól.
Starf matreiðslumanna er mikið svona fyrir jólin og minnist ég þess ekki eftir að ég fór að læra kokkinn að vera heima á Þorláksmessu til að sjóða hangikjörið en hef nú samt náð að skreyta jólatréð seint og um síðir á Þorláksmessu en það er aldrei sett upp fyrr en þá. Á aðfangadag er vaknað snemma og beðið eftir jólasveininum sem kemur með gjafir handa börnunum og svo er farið að keyra út kortum og gjöfum. Þegar líður á daginn er farið í eldhúsið og jóla hamborgarahryggurinn settur til suðu með negul eins og hjá mömmu, en ég hef eldað jólahrygginn frá því ég var í gaggó en mamma og pabbi fóru alltaf í kirkju á aðfangadag en ég var heima að elda, nema kannski tvenn jól sem ég hélt í Sviss en eftir það vill maður bara vera heima í faðmi fjölskyldunnar á jólunum. Nú hjálpumst við Kristin að við undirbúninginn, ég elda og hún leggur jólastellið á borð og kemur öllum í sparifötin.
Kristín og krakkarni er búin að tryggja að það verða smákökur um þessi jól því þau eru búinn að baka og eru kökurnar ekki síðri en hjá mömmu hér í den.
Hér kemur uppaskrift af rúsínukökum sem eru ómissandi um jólin.
4 bollar haframjöl
5 bollar hveiti
400 gr smjörlíki
2 bollar rúsínur
4 bollar sykur
4 egg
4 tsk natron
1 tsk salt
Allt sett i skál og hnoðað saman rúllað upp og kælt í smá tíma , skorið niður og
bakað við 180 °C i ofni
Grafinn gæs
2 gæsabringur
3 msk salt
1 msk sykur
1 msk timian
2 msk villikrydd
1 msk steinselja
1 tsk nýmalaður pipar
1 tsk rósapipar
gordon gin
Látið standa inni kæli í tvo sólahringa, sneitt niður og borið fram með bláberja vinargret
bláberja sulta
balsamikvinegret
þessu tvennu er blandað saman með písk og saltað og piprað eftir smekk.
Jólakveðja Ingólfur og fjölskylda.




Skrifa athugasemd