Aðventan er mikill uppáhalds tími hjá mér
Jólagestur vefsins í dag, Ragnhildur Guðmundsdóttir
Ég er í kirkjukór og í byrjun nóvember erum við farin að æfa jólalögin og þá kemur alltaf svo góð tilfinning. Svo koma jólabækurnar og þá les maður meira en á öðrum tíma. Þegar ég hugsa til baka um jólin og aðventuna þegar ég var barn, þá kemur Unnsteinn bróðir minn fyrst upp í hugann. Hann var og er einstaklega lagtækur.
Við áttum heima í Sólbæ (Hagatúni 14) og þar breyttist húsið og garðurinn í ævintýraland. Við Gyða vinkona vorum sendar í hús til að fá tóma þvolbrúsa (undan uppþvottalegi), sem svo voru notaðir sem skermar yfir perur sem vafðar voru utanum flaggstöngina og blikkuðu. Uppi á húsinu var stór stjarna með glærum perum og líka stór hringur með lituðum perum og blikkandi ljósum. Síðan var sería úr okkar húsi yfir götuna til Dadda og Ollýar. Þetta var glæsilegt, maður var ekki vanur svona miklu skrauti eins og er í dag.
Og svo rann stóra stundin upp þegar mamma opnaði fallega skreytta stofuna á aðfangadagskvöld, ég man eftir pappakirkju með bómull á þakinu og lituðu rauðu plasti í gluggunum og ljósapera inní, svo spilaði mamma jólasálma á gamla orgelið. Já það er endalaust hægt að rifja upp góðar stundir og jólin eru hátíð barnanna, segir einhversstaðar en við erum öll börn í hjarta okkar. Notum jólatímann til að vera saman og veita gleði, við gleymum svo oft að vera þakklát fyrir það sem við höfum.
Kærar jólakveðjur frá Röggu Guðmunds.
Tvær uppskriftir fylgdu með frá Röggu.
After Eight og pistasíuhnetur.
1 púðursykurbotn.
5 dl. rjómi
2 tesk vanillusykur
20 stk After Eight
súkkulaðiplötur
100 gr pistasiuhnetur,skeljalausar
100 gr súkkulaðirúsínur
250 gr bláber.
Myljið marensbotninn gróft niður í fat eða víða skál. Þeytið rjómann með vanillusykrinum.Brjótið After Eight plöturnar í minni bita og blandið þeim saman við rjómann, ásamt pistasíuhnetunm og súkkulaði rúsínum. Dreifið yfir marensbotninn.Dreifið bláberjum yfir fyllinguna, látið þetta standa í ísslkáp í 1-2 tíma áður en borið er fram.
Blóðappelsínu-skyrkaka
100 gr heilhveitikex
100 gr hrökkbrauð ( má nota eingöngu heilhveitikex)
25 gr möndlur
75 gr lint smjör
1 kg ( 2 stórar dósir) Kea-skyr með blóðappelssínum
100 gr sykur, eða eftir smekk
1 pakki Royal vanillubúðingur.
Skreyting t.d.
1-2 appelssínur,nokkur jarðarber og 25 gr súkkulaðispænir.
Hitið ofninn í 180°C. Myljið heilhveiti og hrökkbrauð,setjið það í matvinnsluvél ásamt möndlunum og látið ganga þar til það er orðið að mylsnu. Hrærið smjörinu saman við.Setjið mylsnuna í bökuform eða kringlótt eldfast mót og þrýstið henni niður á botninn og ögn upp með hliðunum. Bakið botninn í 8-10 mín, en ekki láta hann brúnast neitt að ráði. Kældur í forminu. Skyrið hrært í skál og sykrinum hrært saman við og síðan búðingsduftinu. Smyrjið blöndunni jafnt í kökuformið (látið hana ekki bíða,hún er fljót að stífna) og skreytið hana. Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram.




Skrifa athugasemd