Við erum búin að baka nokkrar sortir af smákökum
Jólagestur vefsins í dag er Jóhanna Arnbjörnsdóttir
Í dag, þegar ég skrifa þetta, er 1 des og það er svolítið sérstakur dagur hjá okkur, Alexander Jósep og Elisabeth María voru fædd þann dag fyrir 7 árum, þegar litið er til baka hafa þessi 7 ár liðið ótrúlega fljótt. Það eru löngu komin jól hér ef miðað er við allt skrautið bæði á götum og í öllum verslunum og allt er rosalega ýkt, já bara eins og í þessum amerísku jóla bíómyndum, það er eins og þegar að einn nágranni byrjar þá geta hinir ekki beðið og hér eru að spretta upp svona jólaskreytingar í hverjum garði, þetta er eins og allir séu "Öddar" hér en þó er hann nú bara hóflegur á miðað við þetta. Ég hef nú vanist því að það sé allavega komin desember þegar jólaskrautið er sett upp og þannig verður það á okkar heimili, við byrjum að skreyta á morgun. Við erum búin að baka nokkrar sortir af smákökum en svo fannst mér ekki vera jól af því að mig vantaði hunangstertuna hennar mömmu, hún var vön að gera þær og þær eru bestar.
Ég fékk uppskriftina hjá henni og þá var ekki um annað að gera en baka hana bara sjálf, úbbs...ég steingleymdi að biðja hana um leiðbeiningarnar. Ég ákvað að gera bara nokkrar og fjórfaldaði uppskriftina, og þið sem kunnið að baka þessa tertu getið brosað núna, ég setti þessa hræru í tvær skúffur og fína þunna tertan varð allt í einu eins og reisuleg þykk skúffukaka, hmmm hvað geri ég nú, en lyktin var eins og hjá mömmu. Þá var bara að hringja og ath hvað ég hafi gert vitlaust. Ég náði sambandi við mömmu og í ljós kom að allt var rétt nema að alls ekki mátti hræra nema í eina uppskrift í einu en þar sem ég er með ofurvaxnar amerískar skúffur er hægt að gera eina og hálfa uppskrift í einu, og þegar skúffu terturnar voru skornar í tvennt eftir endilöngu, þá urðu þær aðeins líkari því sem að ég kannaðist við, en ekki samt eins og hjá mömmu. Fyrir þá sem fatta ekki hvernig þessar tertur eiga að líta út, þá er þetta dökkbrún rúlluterta með smjörkremi á milli. algjört nammi.
Það má segja 24. nóvember sé svona æfing fyrir jólin hér, þá er þakkargerðardagurinn sem er mjög hátíðlegur, þá borða allir kalkún með öllu því sem honum fylgir. Við vorum heppin af því að á mörgum vinnustöðum er það siður að starfsfólki er gefin kalkún, og bæði Arnbjörn og Brooks komu heim með kalkún svo ég er þá komin með kalkún í matinn á gamlárskvöld líka. Við fengum frábæra gesti í heimsókn um þakkargjörða helgina, þau komu frá Tulsa, Leifur Gíslason og konan hans Kim, Egill Guðmundsson og svo Svenni bróðir frá Canada. Það var mjög gaman. En átti þetta ekki að vera grein um jólin, þá kemur það: Börnin fá jólafrí þann 17 des. til 5. janúar og á þeim tíma gerum við piparkökurnar sem að við málum, föndrum eitthvað og skrifum á jólakort til þeirra sem eru hér í Ameríku. Það er frekar sorglegt að hugsa til þess hvernig það er hér, það er einn frídagur sem er jóladagur 25. desember.
Ég held okkar íslensku jól mjög hátíðleg þann 24. þá borðum við kl 6 eftir að ég kveiki á öllum kertunum um allt, það gerði mamma alltaf, "það gera börnin sem fyrir þeim er haft", er það ekki? og ég spila íslensk jólalög af diskum, þó að það séu bara börnin mín og ég. Við höfum haft það fyrir venju að borða lambalæri undanfarin jól og það hefur bara komið vel út og verður sennilega líka gert á þessum jólum þó að það verði ekki læri frá pabba á Mýrunum, en svo er auðvitað Herbalife í hádeginu á línuna. Það eru 5 klst. munur á okkur hér og heima svo að þegar að ég er í undirbúningi þá hlusta ég á messuna og íslensku jólin í beinni gegnum tölvuna. Það er dálítið erfitt og tekur sinn tíma að venjast og laga sig að breyttum aðstæðum enda er þetta langt frá því að vera nokkuð í líkingu við það sem að ég er vön. Jólin eru nú sá tími sem heimþráin herjar helst á mann, en ég vona að þessi jól verði gleðileg, eða á maður ekki bara að ákveða að þau verði það, það er jú sagt að hver er sinnar gæfu smiður. Óskum svo öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Hér kemur svo hunangskakan góða.
100 gr sýróp
50 gr sykur
125 gr hveiti
2 egg
1 tesk. natron
1 tesk.kanill
1 tesk. engifer.
Allra síðast er 1 msk. súrmjólk eða rjómi.
egg og sykur þeytt mjög vel, þurrefnunum blandað í og síðast súrmjólkinni eða rjómanum. Deigið sett í ofnskúffu (best að setja bökunarpappír í skúffuna).
Bakað við ca 180° í stutta stund. Smjörkremi smurt á kökuna og henni rúllað upp.
Smjörkrem:
100 gr flórsykur
50 gr smjörlíki
1 eggjarauða
½ sítrónudropi.
Hrært vel saman.




Skrifa athugasemd