Jólagestir
Birna Aðalsteinsdóttir
Birna Aðalsteinsdóttir
Birna Aðalsteinsdóttir jólagestur Hornafjörður.is

08.12.2004 Jólagestir

Allt er tekið með stökustu rólegheitum

Jólagestur vefsins í dag er Birna Aðalsteinsdóttir búsett í Danmörku.

Hér i Danmörku er jólaundirbúningurinn hafinn en langt frá að það sé stress i kringum hann eins og heima (Þá hefur Island breyst) hér er ekki kappsmál um hver er búinn að baka mest og þvo og þrifa mest. Hér eru heldur ekki jólaljós í öllum gluggum, þökum, grindverkum og þakskeggjum og alls ekki litaðar perur í seríum. Allt er tekið með stökustu rólegheitum og allir að hugga sig (eins og það er kallað hér). Julefrukosten er hér i fullum gangi og ég er að fara á einn slíkan á morgun með gömlum og nýjum ekta dönskum mat og með honum er drukki öl og skálað í snafsi. Það stóð i dagblaðinu i gær að julefrokosten væri að tröllríða Danmörku um þessar mundir.

Svo ég komi nú aftur að ljósunum, þá bý ég i litlu hverfi hér á norður Als og allir þar eru byrjaðir að setja ljós og punt upp og eru nokkur hús hér ansi mikið skreytt og með allavega litum perum og fígúrum utan dyra og upp á þökum m.m. og viti menn hverjir haldið þið að búi i þessum húsum, það eru ISLENDINGAR. En ég er sennilega bara orðin of dönsk ( það segir dóttir mín að minnsta kosti ) að ég er bara með fá ljós og ekki litaðar perur. Nú annars er jólahaldið sjálft svipað og heima, á aðfangadag er borðað kl 18, dansað i kringum jólatré opnaðir pakkar og slappað af jafnvel farið í leiki og sumir fara i messu. Þetta er svo sem ekki svo frábrugðið jólahaldi heima, hér á Suður Jótlandi eru að vísu smákökur sem eru kallaðar fedtkager ljósar og brúnar (ekki góðar) og svo á gamlaárskvöld er borðað grænkál, hamborgarahryggur,kálpulsur, spik (flesk) ásamt brúnuðum kartöflum.

Uppskrift af grænkáli.
Hakka grænkál.
Hakkaðar kartöflur.
brúnaður laukur hakkaður settur út í
Allt soðið saman i stórum potti i 30 mín, rjóma bætt út í, salt og pipar eftir smekk.
Á að vera á þykkt við kartöflumús.

Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs.
Ég og mín fjölskylda höldum Íslensk jól og áramót í ár og hlökkum við öll til að koma heim.

Kveðja Birna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica