Á aðventunni er súkkulaðidrykkja tekin mjög alvarlega.
Jólagestur vefsins í dag er Geirlaug Ottósdóttir kennari
Jólin á mínu æskuheimili mótuðust af því að foreldrar mínir unnu alltaf mikið fyrir okkar sóknarkirkju, Bústaðakirkju. Það má segja að kirkjan hafi verið órjúfanlegur hluti af jólum og jólaundirbúningi í foreldrahúsum. Mamma var í kirkjukórnum og ég skottaðist alltaf með henni í allar messur og á flestar æfingar. Á fyrsta sunnudag í aðventu var aðventukvöld í kirkjunni þar sem alltaf var flutt mikil og hátíðleg tónlist. Í lokin voru ljósin slökkt í kirkjunni og allir fengu lítið kerti til að kveikja á, á meðan Heims um ból var sungið. Þetta fannst mér sannkölluð jólastemning og í raun inngangur að jólahátíðinni.
Á aðfangadag þurfti að fara snemma af stað í kirkjuna því hún troðfylltist um fimmleytið og fram að athöfn var alltaf flutt mikil og falleg tónlist. Mamma var alltaf búin að gera allt klárt fyrir matinn áður en við fórum þannig að aðeins þurfti að leggja síðustu hönd á hamborgarhrygginn þegar við komum heim. Síðan var farið til kirkju á hverjum hátíðisdegi jóla og áramóta. Þegar ég var barn hefði ég ekki getað hugsað mér jólin án þess að fara í kirkju. Þegar ég hins vegar stofnaði sjálf heimili mótuðum við okkar eigin jólahefðir byggðar á því besta úr báðum fjölskyldum en ég var ofurliði borin hvað kirkjusóknina varðaði!
Í dag byrja ég alltaf að skreyta húsið á fyrsta sunnudegi í aðventu og síðan bæti ég í skrautið á hverjum sunnudegi til jóla. Á fjórða sunnudegi missi ég mig yfirleitt alveg í jólaskrautinu. Þá er nánast allt punt tæmt út úr húsinu og jólaskraut er sett í staðinn! Það liggur við að maður hengi jólakúlur á heimilisfólk! Á aðventunni er súkkulaðidrykkja tekin mjög alvarlega. Á mínu heimili er alveg bannað að drekka heitt súkkulaði nema á aðventu og á jólum enda er tekið hressilega á því þá. Á hverjum sunnudegi í aðventu er dekkað borð og drukkið súkkulaði með rjóma og smákökur borðaðar með. Það prufar enginn að kalla súkkulaðið kakó á mínu heimili nema einu sinni! Það er nefnilega stór munur á heitu súkkulaði og heitu kakói sem er algjörlega hversdagslegur drykkur! Yfirleitt er hitað það mikið af súkkulaði að það dugi eitthvað áfram inn í vikuna enda fátt betra til að ylja sálartetrinu í skammdeginu en heitt súkkulaði.
Ég baka alltaf heilmikið fyrir jólin, bæði smákökur og tertur. Terturnar vil ég hafa þannig að ég geti tekið þær tilbúnar út úr frysti. Ég ætla einmitt að gefa hér uppskrift að einni slíkri. Þessi terta er mjög einföld og þykir ómissandi á hvert veisluborð heima hjá mér.
Gleðileg jól!
Kaffikaka
7 eggjahvítur
250 gr. sykur (ég nota alltaf hrásykur, hann er hollari!)
100 gr. saxaðar heslihnetur
Stífþeytið eggjahvíturnar. Blandið síðan sykrinum í og þeytið vel. Heslihneturnar settar varlega í síðast.
Bakið eins og ofninum ykkar finnst gott að baka marens (ég hef u.þ.b. 120° hita). Ég baka hann alltaf á bökunarpappír á ofnplötunni þar til hann er orðinn þurr og laus við pappírinn.
Kremið:
100 gr. mjúkt smjör
100 gr. sykur
7 eggjarauður
1 ½ tsk neskaffiduft
100 gr. suðusúkkulaði
Þeyttur rjómi ofan á kremið
Hrærið smjör og sykur og látið eina og eina eggjarauðu útí. Bætið síðan við neskaffi og suðusúkkulaði. Kremið sett á milli botnanna og síðan þeyttur rjómi ofan á. Síðan er gumsinu skellt í frystinn og tertan tilbúin til átu á jólunum. Verði ykkur að góðu!




Skrifa athugasemd